Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Page 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Page 3
Lífið er dsson forstjóra saltfiskverkun að M/B (Hrungnir þýðir Jötunn, en Þorsteinn Hrungnir var sonur Molda-Gnúps, sem var landnámsmaður í Grindavík.) Á myndinni eru talið frá mastrinu: Tómas Þorvaldsson, Sigmundur Guðmundsson, sem lengi hefur verið stýrimaður á Víkingi og nú á Vigra. Hinir eru allir dánir, en þeir eru Magnús ívarsson, Vilbergur Aðalgeirsson, sem var kunnur for. maður í Grindavík og Sigurður Jónsson frá Hópi, velþekktur Grindvíkingur. HRUNGNIR Var einn fyrsti dekkbáturínn, sem smíðaður var fyrir Grindvíkinga. Tómas Þorvaldsson, útgerðar- maður í Grindavík er fyrir löngu landsþekktur og þá fyrst og fremst fyrir opinber sörf og afskipti af fisksölumálum, en hann er for- maður Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda, og hefur verið það frá árinu 1965. Þá er hann einnig kunnur fyrir afskipti sín af slysavarnamálum og er formaður Þorbjörns, hinnar dugmiklu björgunarsveitar Slysa- varnarfélags íslands, en sveitin hefur sem kunnugt er oft unnið mikil afrek við að bjarga mönnum úr skipum sem strandað hafa við hina klettóttu strönd, og þá oft við mjög erfiðar aðstæður. Tómas Þorvaldsson er öllum hnútum kunnugur, þegar sjó- mennska og sjávarafli er annars- vegar. Hann var í vinnuflokki, sem byrjaði að grafa rennuna inn í Hópið í Grindavík með haka, skóflu og berar hendur að vopni og þeir föðmuðu kalt grjótið og báru upp og eftir þriggja vikna starf mátti fleyta bátum inn á Hópið á hálfföllnum sjó og þá þurfti ekki lengur að setja alla báta í Grinda- vík á höndum að afloknum róðri. Tómas hóf sjómennsku með föður sínum og frændum strax á fermingaraldri og formaður á vetrarvertíð varð hann aðeins 18 ára gamall. Báturinn var áraskip, sem búið var að setja i mótor og dálítið skýli yfir vélina, en ekki stýrishús og höfuð og herðar for- mannsins stóðu upp úr vélarhús- inu á stímum, einsog stundum má sjá á merkilegum málverkum Gunnlaugs Schevings, sem mikið málaði í Grindavík. Þótt ekki væru skipin stór né 187 V í K I N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.