Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Qupperneq 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Qupperneq 5
burðarmikil í þá daga, báru þau mikinn afla á land og þóttu mikil framför frá áraskipunum sem róðið hafði verið úr grýttri vör i Grindavik, svo að segja frá land- námsöld að því er talið er. Þótt Tómas Þorvaldsson sé enn á besta aldri, fæddur 1919, þá spannar starfssaga hans eigi að síður yfir langa þróun í sjávarút- vegi Grindavikur. Hann man eftir áraskipum, mótorknúnum ára- skipum, opnum þilfarsbátum og svo hinum glæsilegu stálskipum og skuturum, sem nú sækja til fanga á hafinu og hann man samanlagða hafnarsögu Grindavikur, sem ligg- ur frá grýttri vör inn í Hópið þar sem viðlegukantar eru fyrir hundruð skipa. Það var því fýsilegt fyrir sjó- mannablaðið að ræða ögn við Tómas og einn daginn í vertíðar- lok, hittum við hann að máli í aðalstöðvum SÍF og báðum hann að segja lesendum Vikings ofur- litið af sjálfum sér Grindavik og af hinni merkilegu skepnu, saltfisk- inum. Við spurðum hann fyrst: Rætt við Tómas Þorvaldsson — Er lífið ennþá saltfiskur á íslandi? Hvaða þýðingu hefur saltfiskurinn á vorum dögum fyrir þjóðina? Og Tómas svaraði á þessa leið: — Talandi um þýðingu saltfisks fyrir þjóðarbúið verður ekki hjá því komist að fara nokkuð aftur í tímann, til þeirra daga þegar þjóðin lifði nær einvörðungu á saltfiskframleiðslu og sveitabú- skap. Þetta tímabil nær talsvert aftur i seinustu öld og því lýkur raunverulega ekki i sinni upphaf- legu mynd fyrr en á stríðsárunum síðari, þegar saltfiskmarkaðurinn lokaðist vegna hernaðarins. Eftir heimsstyrjöldina var þráð- urinn tekinn upp á ný og menn voru mjög fljótir að ná sér aftur á strik með saltfiskframleiðslu og komst framleiðslan i hámark árið 1952, en þá voru framleidd hér 52.000 tonn. Hluti af þessu var þurrkaður saltfiskur með gamla laginu. — Um þessar mundir varð svo- lítil breyting á atvinnuháttum Is- lendinga. Menn fóru að sinna síldinni meira en áður og bundu miklar vonir við síldariðnaðinn. Þá komu nýsköpunartogararnir til sögunnar og í rauninni mátti eng- inn vera að því lengur að salta fisk til útflutnings. Afurð þjóðarinnar varð blautfiskur, saltsíld og frystur fiskur. Árið 1966 komst saltfisk- framleiðslan í algjört lágmark, en þá voru aðeins flutt héðan á annað þúsund tonn af saltfiski. (Þurr- fiski). — Árið þar á eftir var gert mikið átak í sölumálum. Það var farið í heimsókn í ýms ríki Suður- og Mið Ameríku og til annarra viðskipta- landa okkar og það tókst að afla nýrra markaða og auka fram- leiðslu á þessari afurð og má heita að stöðug sókn hafi verið allt fram til þessa dags, þegar nokkrir örðugleikar eru á sölu þurrfiski. Munar þar mestu að Brasilíu- Lagt at stað í róður árið 1922 eða 1923. Þorvaldur Klemensson formaður við stjórn á teinæringi sínum og vaskur maður í hverju rúmi. Björgvin í nausti 1929—30. Á myndinni eru talið frá stafni, Bjarni frá Þúfu í Kjós, sem lengi réri hjá þeim feðgum á Járngerðarstöðum. Jón Tómasson, símstjóri í Kefiavík, Sveinn Sigurþórsson frá Kollabæ í Fljótshlíð, Tómas Sigurþórsson frá Kollabæ í Fljótshlíð, sem lengi var í stjórn Dagsbrúnar. Þá er það Þorvaldur Klemensson, faðir Tómasar. Þá Tómas Þorvaldsson, Gestur bóndi í Sólheimum í Hreppum, Gunnar Hálfdánsson og Eiríkur Tómasson. VÍKINGUR 189

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.