Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Síða 9
Á skiptavelli
Fiskurinn var borinn upp á
bakinu. Formaðurinn stóð í
lendingunni og deildi af seilar-
ólunum yfir á svonefndar burðar-
ólar og á þeim var fiskurinn síðan
borinn á kamb. Þá var oft metn-
aður í mönnum að bera sem flesta
þorska upp vörina. Það voru ótrú-
legar byrðar sem sumir lögðu á sig
þarna.
Skipið var síðan sett á höndum.
— Þessi vinnubrögð tíðkuðust
hjá okkur fram undir 1930 og
jafnvel lengur. Þá voru fyrstu
bryggjustubbarnir byggðir i
Grindavík og þá var unnt að aka
fiskinum á handvögnum, síðar
hestvögnum og svo loks á bílum,
Fyrstu bryggjurnar urðu til þannig
að útgerðin gaf einn hlut af hverju
skipi til bryggjugerðarinnar og
fékkst þá framlag frá ríkinu á móti.
Með sama hætti var fyrsti
akvegurinn frá Grindavík að
Stapa gerður. Með einum hlut af
hverju skipi, en það er önnur saga.
— Aflanum var skipt á „skipta-
vellinum“. Það var skipt þannig að
tveir áttu „kastið“. Tveir hlutir
voru í hverju kasti. Ég man að
sumir fengu meira í hlut og það
þótti drjúgt að „eiga kastið“. Síðan
gerði hver að sinum hlut i kofum
og litlum fiskhúsum. Þeir sem áttu
kast saman, þeir gerðu oft saman
að hlutum sinum.
Tómas Þorváldsson, formaður
í Grindavík 17 ára að aldri.
Myndin er af sama skipi, Björgvin frá Grindavík, en á bak við það sést fyrsta
skipið sem var „dekkað“ úr opinni trillu í Grindavík, Sæborg, en á það skip
fiskaðist mjög mikið. Við skipið standa talið frá stafni, Magnús frá Skúfholti í
Holtum, Tómas Þorvaidsson, Haraldur Teitsson frá Hvammstanga, en hann
réri 10 vertíðir hjáokkur og Eiríkur Tómasson. Þann sem stendur í stafni hefur
Tómasi ekki tekist að bera kennsl á, en maðurinn með hattinn er Kristján
heitinn Bender, rithöfundurog stjórnarráðsfuiltrúi, Þorgeir Þorleifsson, bróðir
Skúla, glímukappa og svo er það Þorvaidur Klemensson, formaður, sagði
Tómas.
Þessi mynd af hensti og vagni þáknar eflaust liðinn tíma í augum flestra, en
þessi mynd er þó af umtalsverðri nýjung í Grindavík á árunum 1929 eða 30, en
hún sýnir Þorvald bónda og formann á Járngerðarstöðum og einn fyrsta
hestvagninn sem notaður var til þess að aka fiski upp í Grindavík. Áður báru
menn fiskinn á skiptavöll á sér sjálfum. Hestvagninn komst í gagnið með
fyrstu bryggjunum og svo komu bílarnir og tóku hlutverkið af þarfasta þjón-
inum þar sem víðast hvar annarsstaðar.
VÍKINGUR
193