Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Page 17

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Page 17
Laumu- farþegar Fyrir um 35 árum kom kínverskt skip í höfnina í Rangkok. Ekkert óvenjulegt, ef allt hefði verið með feldu um borð, en það var nú eitt- hvað annað. í skipinu fundust hvorki fleiri né færri en 391 laumufarþegi. Hafnarverðir urðu sem steini lostnir yfir þessum ósköpum og þegar skýrzla þeirra komst í hendur yfirvalda staðarins, ætluðu þeir ekki að trúa sínum eigin augum og héldu að hér væri um misritun að ræða, en svo var þó ekki, þetta var staðreynd. Lögreglan í Rangkok hafði aldrei komist í annað eins, enda var þetta tilfelli hreint met, sem ekki hefur verið knekkt, hvorki fyrr né síðar. Það var engin furða þótt þeir héldu að hér væru einhver brögð í tafli. Hvernig gat þessi fjöldi Kínverja falið sig alla þessa löngu leið frá Kína, án þess að upp kæmist? Jú, sagði skipstjórinn, þeir hafa falið sig á hinum ótrúlegustu stöðum, t.d. í lestarúmum, í kol- unum, í stefnisloka, björgunarbát- um, lífbelta kössum o.s.frv. Já, en á hverju lifðu þeir á leið- inni? Jú, sagði skipstjórinn. Kín- verjar eru neyzlugrannir, þeir geta lifað á einum hnefa af hrísgrjónum í lengri tíma. — En enn þann dag í dag, þykist lögreglan viss um að skipstjórinn hafi haft óhreint mél í pokanum, t.d. þegið þóknun frá hverjum einstökum Kínverja fyrir / kínverska skipinu voru 391 laumufarþegi VlKlNGUR 201

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.