Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Síða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Síða 18
að flytja þá og stungið aurunum í sinn eigin vasa. Hitt er þó alls ekki útilokað að skipstjórinn hafi verið saklaus af því. Laumufarþegar geta orsakað hin mestu vandræði fyrir útgerðina og spillt andlegri heilsu skipstjórans. Þannig var það eitt sinn, á því herrans ári 1930 að gríska skipið „Theodoris Galahis“ á leið til heimalands frá Huelva á Spáni. Þegar skipið var statt á Mið- jarðarhafi fundust 3 laumufarþeg- ar um borð. Skipstjórinn missti al- gjörlega stjórn á sér og fyrirskipaði að þeim skyldi kastað fyrir borð — og það var gert. Skipstjórinn var í þann mund að halda ferðinni áfram, þegar kona hans, sem var með í ferðinni, kom upp á þilfar. Hún fékk taugaáfall, þegar hún sá hvað gerzt hafði og bað mann sinn, að taka mennina aftur um borð. Skipstjórinn fékk nú samvizkubit og bátur var settur út. Það heppn- aðist þó aðeins að bjarga tveimur mannanna, en sá þirðji drukknaði, áður en báturinn komst að honum. Skipstjórinn var nú orðinn all smeykur og bauð þeim, sem lifðu, stóra fjárupphæð fyrir að þegja yfir þessu. En Spánverjunum varð ekki mútað, og skipstjóranum var síðan stefnt fyrir rétt og hlaut þunga refsingu. Á vissan hátt vorkun. Laumufarþegar valda ætíð miklum vandræðum, töfum, ætíð mikil vandræði, töfum, auknum útgjöldum og stríði við yfirvöldin, þar sem skipið kemur að landi með þessa vandræðagripi innanborðs. Að lokinni heimstyrjöldinni síðari og í kalda stríðinu milli aust- urs og vesturs, sem fylgdi á eftir, jókst tala laumufarþega mjög mikið. Það er meiri vandkvæðum bundið að losna við óæskilega far- þega nú, heldur en var fyrir nokkrum áratugum. Eftir styrjöldina var meirihluti þessara farþega hinir svokölluðu „Land- laust“ fólk. (Displaced persons), sem hefur gefið skipaútgerðum tilefni til alvarlegra viðræðna, um heim allan. Þessir ólánsömu menn eru orðnir alvarlegt vandamál. Engin þjóð vill fá þá inn í land sitt, því að víðast hvar er meira og minna atvinnuleysi og nógu erfitt að sjá mönnum fyrir fæði og öðr- um nauðsynjum og svo bætist við óttinn við njósnara. Skipstjóri getur átt það á hættu að þurfa að sigla, jafnvel í kringum jörðina, með einn eða fleiri óæski- lega farþega um borð, áður en hann losnar við þá, kannski eftir mikið þras við útgerðina, stjórn- málamenn og stjórnvöld, en á meðan þeir eru um borð í skipinu, ber hann ábyrgð á að þeir læðist ekki einhversstaðar í land og svo verður hann að fæða þá og veita þeim kojupláss um borð. Allt þetta veldur útgerð skipsins fjárútlátum, en það versta er þó, á meðan þeir eru í felum, stafar af þeim mikið eldhætta, þar sem þeir eru að matbúa og fara með eld á hinum ólíklegustu stöðum á skip- inu. Þá hefur það komið fyrir, að í vissum tilfellum er skipshöfnin, 202 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.