Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Side 33

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Side 33
■ 1 Munir í eigu Bligh, dagbók hans og sjóferðabók, innsigli hans, kanna og púðurmál. yfirmenn, sem og aðra skipverja, þannig að leiddi til uppreisnarinnar. Nú á tímum hefði þetta gefið fullt til- efni til málssóknar.“ Hinn virti stríðsfréttaritari í fyrri heimsstyrjöldinni, mikill áhugamaður á sjóferðum, H.M. Tomlinson, ræddi eitt sinn um Bligh, eins og hann var sýndur í kvikmyndum, hafði hann orð á hve auðvirðilega sé farið með heim- ildir og séu þær notaðar til þess að sanna rangfaerslur í sögunni, eins og þeir vilja helzt hafa þær, ekki sízt kvikmyndaframleiðendur. Við hefðum fyrir löngu getað komist að raun um, að skipstjóri, sem sigldi opnum báti lengstu vegalengd, sem um getur í sögunni við verstu aðstæð- ur, og sýndi með því bæði siglinga- fræðilegt afrek og frelsaði líf og limi manna sinna. Slíkur skipstjórnarmað- ur, gat trauðlega hafa verið svo harð- svíraður óþokki, að hann einn ætti sök á uppreisninni. Hafa verður í huga að á þessum tímum var aginn til sjós harður, þegar áhöfnin var þvinguð um borð í skipin, ferðirnar langar og viðurværi og að- búnaður hræðilegur. Við gætum spurt hversvegna Cook skipstjóri hinn mikli siglingafræðingur, bar svo mikið traust til hans. En söguritarar álitu betra að lýsa Bligh, sem þrælmenni, og að hann hefði fengið verðskulduð eftirmæli. Að minnsta kosti var kvik- myndasagan áhrifaríkari fyrir al- menning, túlkuð á þann hátt. Charles Laughton túlkaði Bligh, sem kjaftfort illfenni, einræðissegg og bleyðu, djöf- ul, sem kvaldi jafnt yfir- og undir- menn með svipunni, eða með öðrum orðum, hann var svívirðing fyrir ein- kennisföt Hans Hátignar. Eflaust var þessi lýsing spennandi söguefni, en einfaldlega rangtúlkað. Það er ótrú- legt að sjómaður, sem hlaut hrósyrði frá hinum fræga Nelson, fyrir góða skipstjórn við Kaupmannahöfn og sem síðar hlaut eigin fána, skyldi svo oft og tíðum, vera svertur í umtali, aðeins ef nafn hans var nefnt. Enginn vafi er á því að Bligh var bráðlyndur maður, sérstaklega ef við bjálfa var að eiga. Hann var orðhvat- ur, og það kom jafnvel fram í dag- bókum hans, með viðeigandi orð- bragði. Hann gat verið ósanngjarn í dómum sínum um aðra, og skammir hans við misgerðarmenn voru ekki af betri endanum, en hann var síður en svo verri heldur en aðrir skipstjórar á þeim tímum, og jafnvel betri. Ef miðað er við átjándu aldar við- urkenndar venjur, var Bligh vissulega manneskjulegur og sanngjarn skip- stjóri, sem var á móti líkamlegri refs- ingu, og lét píska menn sjaldnar held- ur en starfsbræður hans. Maður, sem hafði ekki annað tii að bera heldur en að vera hrottalegur sjómaður, hafði aldrei verið dáður af mönnum eins og Cook, Nelson og Sir Joseph Banks, sem voru harla ólíkir menn. Sem landkönnuður og siglingafræðingur ávann Bligh sér hina mestu virðingu. I hlutlausri rannsókn á Bligh (1952) kallar Dr. George Mackaness hann „Mikinn siglingafræðing".... verðug- an til að sitja sama bekk og Vancouv- er, Flinders og King.“ Bligh var einn þeirra, sem tileink- uðu sér vísindalega siglingafræði þeirra tíma, og lagði, að fyrirmynd Cooks, afar mikla áherzlu á gott heilsufar skipverja, með rétt samsettu mataræði og kröfu um sem mestan þrifnað. Þessi atriði voru viðurkennd bæði af þeim sem voru trúir Bligh og hinum, sem gerðu uppreisnina. Hann var vel menntaður og framúrskarandi skilningsgóður og hinn áberandi sterki karakter, kom best í ljós, við afrek hans í lengstu ferð á opnum báti, allra tíma. Þegar Bligh var látinn í lítinn bát, ásamt 18 öðrum mönnum, af upp- reisnarmönnum á Bounty, sýndi hann hvað einbeittur og fær skipstjórnar- önnumst viðgerðir á rafvél- um og raflögnum fyrir skip og í landi. Góðir farmenn. Vönduð vinna. VOLTI H/F Norðurstfg 3, símar 16458 og 16398 VÍKINGUR 217

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.