Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Side 35

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Side 35
því þetta var siglingafræðilegt afrek, sem hver sjómaður gat verið stoltur af. Owen Rutter, (sérfræðingur um Bounty málið) segir í riti sínu: Þetta var eitt hið bezta dæmi um valdstjórn og aga, og það var rétt notað. þeim dögum. Skipstjóri gat látið píska menn sína miskunnarlaust, en jafn- framt sýnt þeim furðu mikla góðvild og sanngirni. Dagbók Bligh’s á leið skipsins til Tahiti gefur gott dæmi um slíkt. Það var ekkert í sambandi við meðferð hans á skipverjum, sem rétt- lætti uppreisn. Það er staðreynd, að sumstaðar bera bókanirnar með sér, að hann má jafnvel vera álitinn sann- gjarn gagnvart mönnum sínum og hafi hann verið strangur stjórnandi, þá er það einmitt það, sem af honum var ætlast og það, sem okkur finnst hrottalegur agi, var aðeins siðvenja gagnvart skipverjum. Eftirfarandi bókun er nokkuð mótsagnakennd við það almenna álit á Bligh, að hann hafi verið grimmur og tillitslaus. „Stundum er afslöppun og skemmtun algjörlega nauðsynleg, og ég hef hugsað mér að tíminn eftir kl. 4 á eftirmiðdögum skuli notaður til slíks. Ég var í vandræðum með að fá einhvern til að spila á fiðlu fyrir dansi, en fékk loks viðvaning til þess. Hann var þó betri en enginn.“ Hér er svo enn ein bókun: „í kvöld urðu þeir, sem fóru yfir línuna í fyrsta sinn, að gang- ast undir hina hefðbundnu athöfn, nema kaffæringuna, sem ég aldrei leyfi, því að sá þáttur athafnarinnar, er hrottalegastur og ómannúðlegast- ur. Sérhver skipverjanna af hinum 27, Hvað viðvíkur lifnaðarháttum Bligh’s, á tímum þar sem drykkju- skapur og sviksemi var almenn, þá drakk hann aldrei, og jafnvel verstu óvinir hans gátu aldrei bendlað hann við neitt óheiðarlegt. Hann virti og var virtur af konu sinni og sex dætrum og bréfaskipti hans við fjölskylduna, gefa til kynna að hann hefur verið fyrirmyndar fjölskyldufaðir. Ákveðni og hugrekki, koma vel í Ijós í leiðarbók hans í ferðinni til Batavia. „Kjarkur og bjartsýni ríkti, allir hugsuðu til skjótra endiloka, þessarar þrautar. Hvað sjálfan mig snerti, þá fann ég hvorki til mikils hungurs eða sárs þorsta, þótt undarlegt megi virðast. Skammturinn var mér nógur, því að ég vissi að um annað eða meira var ekki að ræða.“ Hann var eins ákveðinn og þraut- seigur sem dæmigerður hermaður þeirra tíma og hvað hugrekki snerti, þegar uppreisnin brauzt út var fram- koma hans honum til sóma. Bligh hefur verið legið á hálsi fyrir hörku gagnvart skipverjum, en hún var engu meiri en jafnan tíðkaðist á íbúðarhús Bligh í London. Skilti er á húsinu, en þar stendur: „William Bligh 1754—1817, skipstjóri á Bounty bjó hér. ÚTGERÐARMENN! Vér erum umboðsmenn fyrir þýzku Dieselverksmiðjuna KLÖCWNER-HUMBOLT- DEUTZ, stærstu Dieselverksmiðju í heimi, hin elzta og reyndasta í sinni grein. Margra ára reynsla hér á landi. HAMAR HF. Símar: 22123 — 22126 VÍKINGUR 219

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.