Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Qupperneq 41
O.EIIingsen 60 ára
O. Ellingsen sem var lærður
skipasmiður, kom hingað ásamt
konu sinni frá Noregi 1903 til að
veita forstöðu Slippfélagi Reykja-
víkur.
Hann opnaði verzlun með veið-
arfæri og málningarvörur 16. júní
1916, fyrst í Kolasundi en flutti í
desember 1917 í nýtt húsnæði i
Hafnarstræti 15, beint upp af
Steinbryggjunni sem þá var mið-
depill athafnasvæðisins við höfn-
ina.
Vorið 1956 flutti verzlunin
veiðarfæradeild og vinnufatnað í
nýtt húsnæði á horni Pósthús-
strætis og Tryggvagötu.
Haustið 1974 flutti veiðarfæra-
deildin í hið nýja húsnæði i Ána-
naustum við Grandagarð og vorið
1975 var öll starfsemin flutt í hið
nýja húsnæði að Ánanaustum.
Verzlunin er nú á ný mjög vel
staðsett við aðal athafnasvæði
veiðiflotans og samt sem áður
skammt frá miðborginni og liggur
vel við aðal samgönguæðar borg-
arinnar og býður viðskiptavinum
sínum næg bílastæði sem nú eru
ómetanleg hlunnindi.
O. Ellingsen rak verzlun sína af
miklum dugnaði og víðsýni til
dauðadags janúar 1936. Það var
hinum ört vaxandi fiskveiðiflota
landsmanna mikil nauðsyn að geta
fengið þann besta útbúnað sem þá
var fáanlegur í öðrum löndum.
Kunnátta hans og reynsla í þessum
efnum var flotanum ómetanleg.
1937 var fyrirtækinu breytt í
hlutafélag og hefir sonur hans
Othar Ellingsen veitt fyrirtækinu
forstöðu siðan. Verzlunin hefur átt
því láni að fagna að hafa mjög gott
starfsfólk sem starfað hefur hjá
fyrirtækinu í áratugi. Þannig hafa
8 starfsmenn unnið hjá fyrirtæk-
inu í meira en 30 ár og starfa nú
hjá Ellingsen um 30 manns.
Verzlunin er tvímælalaust
stærsta og jafnframt elsta veiða-
færaverzlun landsins með alls
konar útbúnað fyrir skipaflotann,
og selur jafnframt vélanauðsynjar,
málningarvörur, verkfæri alls
konar, ásamt vinnufatnaði fyrir
sjómenn og verkamenn. Verzlunin
þjónar þannig flestum atvinnu-
vegum þjóðarinnar.
Viðskiptavinir verzlunarinnar
eru um allt landið, enda er kapp-
kostað að hafa jafnan á boðstóln-
um allar vörur sem þarf til útgerð-
ar og fylgst er vel með öllum nýj-
ungum og breytingum sem ávallt
eru að koma fram með hinni hröðu
þróun í veiðitækni.
Til að geta þjónað öllúm við-
skiptavinum sínum þarf verzlunin
jafnan að hafa um 6000 vöruteg-
undir á boðstólnum. Vörur þessar
eru keyptar beint frá yfir 250 er-
lendum og 80 innlendum fram-
leiðendum, auk frá um 100 inn-
lendum innflytjendum. Þannig
þarf verzlunin á hverjum tíma að
vera i stöðugu sambandi við milli
400 og 500 framleiðendur.
V I K I N G U R
225