Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Page 42

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1976, Page 42
MARU. Viðskeyti á öilum japönskum skipaheitum. Eins og flestir hafa tekið eftir hafa Japanir orðið „Maru“ aftan við skipsnöfn sín. Þótt einkennilegt megi teljast virðist enginn vita hvað þetta orð þýðir, eða hvernig það er tilkomið. Ýmsar skýringar hafa komið fram og sumar harla fáránlegar, aðrar þó ekki ólíklegar. Eina slíka er að finna i lesanda- bréfi brezka blaðsins „Sea Breeses“, hún er að vísu ekki trúleg en skemmtileg: Þegar Japanir eignuðust sitt fyrsta gufuskip, með japanskri áhöfn, kunni vélaliðið ekki þá kúnst að stöðva vélina. Eftir margar misheppnaðar til- raunir, var ákveðið að bíða þar til gufan var þrotin. Til þess að það yrði sem fyrst sigldu þeir skipinu í hringi í höfninni. Áhorfendum í landi þótti þetta hin mesta skemmtun, en enginn þeirra hafði fyrr séð gufuskip. Þeir gáfu skipinu nafnið „Maru“, sem þýðir „Hringsól“, eða það sem fer í hringi. Eftir það fengu öll skip i Japan viðskeytið Maru, við nöfn sín. Rautt og grænt Það var árið 1848, að settar voru nýjar samræmdar reglur, sem giltu fyrir öll skip á heimshöfunum, sem sagt að hliðarljós skipa skyldu vera grænt á stjórnborða og rautt á bakborða, en áður höfðu mörg skip, rautt á stjórnborðshlið og grænt á bakborða, sem að sjálf- sögðu var stór hættulegt misræmi og hafði oft valdið slysum. Sandstormur á Suez. Jafnvel á Suez-skurðinum getur skipum seinkað vegna óveðurs. Oft liggur þétt þoka yfir skurðinum, en stundum kemur fyrir að sand- stormur frá eyðimörkinni, þýtur yfir skurðinn, sem gerir skyggnið eins lítið og í svörtustu þoku. Svo ekki sé talað um að skipið verður þakið sandi. Báta kaupmenn. Allir sjómenn, sem siglt hafa til erlendra hafna kannast við litlu verzlunarbátana, sem koma oft í stórum hópum út að aðkomuskip- um, með allskonar varning. Þessi viðskipti eiga sér langað aldur frá því á dögum seglskipanna, og tíðkast víst enn, víða koma málar- ar um borð í bátunum, sem bjóða skipstjórunum að mála myndir af skipunum og þeim sjálfum. Vin- sælt var meðal skipstjórnarmanna að fá málverk af sér með sjónauka í annarri hendinni og sjókort í hinni. Engin miskunn. Fyrr á öldum voru leiðarmerki fyrir sjófarendur við strendur og á venjulegum siglingaleiðum næsta ófullkomin, en ekki síður nauð- synleg heldur en í dag, með alla tæknina. Það þótti því ástæða til að setja ströng viðurlög við að SÖLUSAMBAND ÍSLENZERA FISKFRAMLEDÖENDA stofnað í júlímánuði 1982, með samtökum fiskframleið- enda, til þess að ná eðlilegu verði á útfluttan fisk landsmanna. Skrifstofa Sölusambandsins er í Aðalstræti 6. Símnefni: FISKSÖLUNEFNDIN Sími: 11480 (7 Hnur). EINKASALAR HÉR A LANDI FYRIR HIN HEIMSÞEKKTU „LION" vélþétti. Framleiðendur: JAMESWALKER &Co.Ltd. Woking, England. 226 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.