Náttúrufræðingurinn - 1931, Qupperneq 20
H
Það er eftirtektarvert, að til eru
margs konar kirtlar, og myndar
h\er tegund þræði af sjerstakri
gerð.
Köngulærnar nota þræðina, sem
þær spinna á margvíslegan hátt.
Þær spinna veiðinet eða vef, ekis
og við höfum sjeð, margar gera
sjer skýli eins og t. d. liúsaköngu-
lóin, flestar siiinna hjúp um egg
sín, karldýrin spinna þræði, sem
þau nota við æxlunina, eins og
síðar skal vikið að, og loks geta
köngulærnar hreyft sig úr stað
með þráðum, sem þær spinna. Al-
kunnur er fiskikarlinn eða dor-
dingullinn, sem sígur á þráðum
í liúsum inni eins og veiðimaður
í bjargi.
Könguiærnar sltifta oft um bú-
stað. Þær geta ekki lyft sjer á
vængjum yfir torfærurnar eins og
skordýrin, en kunna þó ráð við
vandanum. Þær byggja „hengi-
brýr“ yfir gjótur og læki, frá
hríslu til hríslu. En sá er gallinn
á, að ekki er hægt að byggja slíka
brú nema einhver gola sje, því
vindur J)arf að bera þráðinn þang-
að, sem ferðinni er heitið. Þegar
á að byggja brú, snýr köngulóin
sjer undan vindinum, beinir aft-
urbolnum upp á við og spinnur
af alefli. Brátt myndast langur
silkiþráður, og er annar endinn
fastur í spunavörtum dýrsins en
liinn berst laus út í geiminn að
óþektu marki. Loks festist liann,
og dregur köngulóin þá inn til
sín af ])ræðinum, uns hún er Jsess
fullviss að endinn er vel fastur
svo óhætt sje að nota brúna. Á
haustin þegar kjörin fara að
versna gera margir köngulóarung-
ar sjer þræði, sem verða svo lang-
ir og ljettir að þeir taka nngann
á loft og bera hann feikilangar
leiðir. Talið er að köngulær geti
borist á þennan hátt alla leið yfir
Atlantshafið frá Suður-Ameríku
til Afríku.
Þegar köngulóin finnur að fluga
er í netinu, hleypur hún þegar til
og lieggur bráðina banasári með
bitkrókunum, og kemur eitrið
henni þá að góðu lialdi. Hún sýgur
nú alt ])að úr flugunni, sem æti-
legt er, svo ekkert er eftir nema
vængir og húð þegar máltíðinni
er lokið. Geti hún ekki torgað
allri flugunni í einu, vill hún þó
tryggja sjer hana sem birgðir til
seinni tíma og spinnur því um
hana hjúp. Margar köngulær ráð-
ast elcki strax að bráðinni, heldur
spinna fyrst um þær hylki til þess
að þeim takist ekki að flýja og
drepa þær síðan og eta.
Hvað innri byggingu köngu-
lónna snertir skal þess getið, að
út frá maganum ganga mjög lang-
ir pokar, einn út í hvern fót. í
þessa poka getur safnast mikil
forðanæring, en köngulóin hefir
einnig annað búr, því að mikið af
]>eirri fæðu, sem meltist, verður
að fitu, sem safnast utan um líf-
færin undir liúðina, og sýnast þar
livítir blettir utan á dýrinu, ef
húðin er gagnsæ.
Mjög einkennilegt er ástalíf
köngulónna. Karldýrið er vana-