Náttúrufræðingurinn - 1931, Síða 6
52
NÁTTÚRUFR.
er allt horfið undir þykkri hjarnfönn. I suðvesturhlíð Heklu
hverfur sprungan alveg undir grjóti, möl og sandi, sem hér
hefir rignt niður í gosunum. En í svonefndum Höskuldar-
bjalia, á móts við hestaréttina, sem allir Heklu-farar kannast
við, verður hennar aftur vart. Höskuldarbjalli er skeifulaga
hryggur utan um stóran gíg, sem varð til árið 1766. Hæð hans
er 857 m. y. s. og 117 m. yfir gígbotninn. Suðaustur úr gígnum
liggja breiðar hrauntraðir, og einnig hefir hraun runnið yfir
gígbarminn til norðurs, þar sem nú er hestaréttin, en það
hverfur brátt undir hraunið frá 1845, svo að ekki verður vit-
að um stærð þess. Utan á vesturhlíð Höskuldarbjalla vottar
fyrir litlum „sníkjugíg". Nafnið ,,Höskuldarbjalli“ stendur
ekki í uppdr. herfr., og Þorvaldur Thoroddsen notar það ekki
heldur, né neinn þeirra, sem um Heklu hefir skrifað, en aft-
ur á móti kalla þeir Höskuldarbjalla, Hestöldu, og fleiri nafn-
lausar hæðir þar í grennd einu nafni Stóraskógsfjall. En það
nafn kannast kunnugustu sveitarmenn ekki við, og nota hin.
Þá hefir aðalsprungan verið rakin eftir endilöngu fjall-
inu, en um áframhald hennar til útsuðurs eða landnorðurs
skal eg ekki segja að svo búnu.
Á Heklu eru ýmsar aðrar smærri sprungur samhliða að-
alsprungunni, og eru þær sjálfsagt í sambandi við hana neð-
anjarðar. Einna mest af þeim er gjá ein ,neðarlega í fjalls-
hlíðinni, í austur frá Ilöskuldarbjalla. Skarð er í eystra gjár-
barminum, og þaðan hafa sennilega runnið hraun árið 1766
eða ’67. Uppi á austurbrún fjallsins er rauð gjá, nærri því full
af snjó. Úr henni hefir ollið dálítill hraunstraumur, sem nær
þó ekki nema ofan í miðjar hlíðar. Sennilega hefir gjáin og
hraunið orðið til í síðasta Heklugosi, 1845, því að hraunið er
lítt sandorpið. Suðaustan í hæsta tindi Heklu er dálítil hvylft,
sem hraun virðist hafa runnið úr.
Á uppdr. herfr. er meiri snjór sýndur á Heklu en venju-
lega er þar um miðjan ágústmánuð. Fannirnar virðast liggja
mjög líkt, ár eftir ár, t. d. á gömlum og nýjum ljósmyndum,
en þær eru mjög ónákvæmlega settar á uppdr. herfr. Eðli-
lega er miklu meiri snjór í norðvesturhlíð fjallsins en suð-
vesturhlíð, og hryggurinn verður víðasthvar auður á meðal-
sumrum. Norðvestan í Heklu eru þrír skriðjöklar. Tvo hina
eystri fann dr. Helgi Péturs, og er þeim vel lýst í Nýjal. Aust-
asti jökullinn er einna minnstur, og miðjökullinn lang-stærst-
ur. Hann er beint niður undan norðvesturbrún stóra gígsins