Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 14

Náttúrufræðingurinn - 1931, Blaðsíða 14
60 NÁTTÚRUFR. ingar, sem eigi gátu reist höfuðið frá koddanum, er læknar, samkvæmt venjunni töldu, að sýkin myndi leiða til bana á fá- um mánuðum, ]>eir réttu við eftir fáa daga, og höfðu náð sér að mestu eftir fáa mánuði. — Meðfylgjandi mynd er af 10 ára dreng sykursjúkum, sem verið hafði sjúkur 4—5 ára og var orðinn máttvana. Fyrri myndin, til vinstri, er af honum áður er reynt var við hann insúlín, sú til hægri er tekin af honum eftir 4 mánaða insúlínnotkun. Þá vóg hann allt að helmingi meira en áður, leið vel, og var farinn að leika sér með öðrum drengjum. Brátt varð mikil eftirspurn eftir insúlíni, því margt manna í heiminum þjáðist af sykursýki. En sýkin er ]>ó mjög mistíð á meðal ]>jóða heimsins. Hér á landi er hún talin fágæt, í Þýzka- landi mjög algeng, — í Danmörku einni voru þá taldir 1000 sjúklingar sykursjúkir, er hlotið gátu mikla heilsubót af ]>essu meðali, og fyrir marga þeirra var insúlínið til bjargar frá dauða. Banting og félagi hans notuðu ekki uppgötvun sína sem féþúfu. Þó tóku þeir einkaleyfi á meðalinu í mörgum löndum, en framleiðsla þess í þeim löndum var falin opinberum nefnd- um, er sáu um, að áreiðanlegar meðalaverksmiðjur framleiddu ]>að sem bezt að gæðum og sem ódýrast. Með þessu var girt fyrir, að okrað væri á lyfinu, og tryggt, að nægilega. mikið væri framleitt af ]>ví. Víða er insúlínið nú framleitt úr bris- kirtlum svína og nauta, en það má einnig framleiða það úr bris-

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.