Náttúrufræðingurinn - 1931, Side 7
NÁTTÚRUFR.
53
hæst á fjallinu. Upp af honum er brött (ca. 35°) hjarnfönn
með stórum sprungum; niður frá henni gengur svo sjálfur
jökullinn með h. u. b. 12° halla, en hann rekur sig brátt á
austurenda öldu einnar, sem sumir kalla Litlu-Iieklu, og bæði
verða undan að láta; jökullinn breytir stefnu til hánorðurs, en
grefur sig um leið inn undir Litlu-Heklu, og veltir henni yf-
ir sig, og eftir það sér ekkert í hann fyrir lausagrjóti, rauðu
gjalli og rauðum leir. Undir þessu fargi skríður hann áfram,
og kemst ofan í 520 m. hæð y. s. Vestasti jökullinn endar
við vesturenda Litlu-Heklu, h. u. b. 880 m. y. s. Neðri endi
hans er, eins og hinna beggja, alveg hulin rauðum leir og
hraungjalli. Liggur það í stórum haugum ofan á honum, og
er þar mjög illt yfirferðar. Endi jökulsins er snarbrattur og
heldur óárennilegur til uppgöngu, því að lausagrjót hrynur
iðulega ofan af honum. Rauðu leir- og gjallhaugarnir hylja
jökulinn alveg, upp í rúml. 1000 m. hæð y. s. Þar fyrir of-
an er hann nokkum veginn ber, og hallinn h. u. b. 22°, en
upp af honum er brattari hjarnfönn með sprungum, sem sjást
með berum augum utan yfir Rangá. Neðan úr byggð á Rang-
árvöllum, ber enda skriðjökuls þessa við himinn, rétt ofan við
Litlu-Heklu (Rauðölduhnúkur skyggir á á myndinni) og með
sínum rauða lit, stingur hann mjög í stúf við mosagrátt hraun
og svarta öldu fyrir neðan og hvítar fannir fyrir ofan. Margir
vilja alls ekki viðurkenna nafnið Litla-Hekla, og segja, að
hún sé nafnlaus. Þeim finnst, sem er, þetta vera allt of veg-
legt nafn á þessa ósjálegu öldu. Á uppdr. herfr. er hún nafn-
laus, og þar er reyndar gert of lítið úr henni, ]>ví að hún er
,sýnd eins og smásylla utan í fjallshlíðinni, en að réttu lagi
nær hún alveg á milli skriðjöklanna, og milli hennar og aðal-
fjallsins er dálítil lægð.*
Veðrátta á Heklu er yfirleitt köld og hráslagaleg, eins og
eðlilegt er á svo háu og einstæðu fjalli. í sumar liðu svo ekki
nema sex dagar samtals, frá 18. júlí til 18. ágúst, að Hekla
sæist þokulaus einhvern tíma dagsins, og á sama tíma að
eins þrír, að þokulaust væri á henni allan daginn. Tvisvar eða
oftar snjóaði á hana. Yfirleitt er þokan meiri áveðurs á fjall-
inu. Sjö sinnum mældi eg hitann efst á fjallinu, oftast á tím-
anum milli hádegis og nóns. Hitinn mældist vera: 3,5°, -4-
* Daði Halldórsson nefnir Litlu-Heldu í lýsingu sinni af Hekiugos-
inu 1693. —