Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 6

Náttúrufræðingurinn - 1963, Page 6
148 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 2. mynd. Tortula ruralis. Efri hluti plönt- unnar. al Tortulu ættkvíslinni (Vefjumosar). Hún er frem- ur sjaldan með baukum, en er hávaxin tegund af þessari ættkvísl að vera, og auðþekkt á hinum langa hároddi, sem gengur fram úr blöðunum, sem eru útstæð eða nokkuð bogin niður á við þegar þau eru rök. 13. (?) T. norvegica (Web.) Wg. (T. aciphylla í B.I.) er getið frá Dýrafirði í B.I., en eintök ekki til hér. Síðan hefur Meylan getið hennar héðan og telur hana finnast víða. Ég hef ekki fundið þessa tegund. 14. T. subulata Hedw. (1. mynd B) er algeng tegund, sem þekkist á hinum langa, dálítið bogna Itauk. 15. T. mucronifolia Schwaegr. er í B.I. getið frá Vestmannaeyjum. Hana hef ég fundið bæði í Hval- firði og Eyjafirði. 16. Barbula unguiculata Hedw. er í B.I. getið frá tveim stöðum, Vestmannaeyjum og Saurbæ í Hvalfirði. Hana hef ég fundið á Seltjarnarnesi. 17. B. vinealis Brid. (B. cylindrica í B.I.) hefur fundizt á nokkr- um stöðum, en virðist þó vera frekar sjaldgæf. Hér hefur aðeins fundizt afbrigðið var. cylindrica (Tayl.) Boul. 18. B. recuruirostris (Hedw.) Dix. (Didymodon rubellus í B.I.) er langútbreiddasta tegund þessarar ættkvíslar og líklega algeng um land allt. 19. B. ferruginascens Stirt. (Didymodon rubellus var. brevifolia í B.I.) hef ég fundið á Snæfellsnesi. 20. (?)B. tophacea (Brid.) Mitt. er ekki talin fullgild íslenzk tegund í B.I., en hafði verið getið héðan af Lindsay. Síðan hefur Jones getið hennar frá Grímsey, og verður það að teljast nokkuð (iruggur fundur. 21. B. fallax Hedw. er aðeins getið frá þrem stöðum í B.I., en er ekki sérlega sjaldgæf, virðist vera önnur algengasta tegund ættkvíslarinnar, en er þó alls ekki algeng. 22. B. rigidula (Hedw.) Mitt. hefur ekki verið getið héðan fyrr. Ég fann hana árið 1959 í Reykjavík og fékk liana sama ár úr Fljótshlíð í Rangárvallasýslu (Steinn V. Magnússon).

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.