Náttúrufræðingurinn - 1963, Qupperneq 14
156
NÁT TÚRU F RÆ Ð1 N G U RIN N
því að taka borkjarna úr mjúkunr botnlögum, en þá má fá allt
að 20 m langa úti á reginhafi. Loks má kanna með tilbúnum jarð-
skjálftabylgjum, segulmælingum, þyngdarmælingum og með fleira
móti.
I nágrenni íslands verður enn senr komið er að styðjast mest
við dýptarkort, þar eð rannsóknir ná að öðru leyti skammt.
Rækilegastar eru rannsóknir Bandaríkjamanna bæði við austur-
og vesturströnd Norður-Ameríku, svo og á stórunr svæðum á At-
lantshafi og Kyrrahafi. Við þessar rannsóknir hefur margt athyglis-
vert komið í Ijós á síðustu árum, sem ekki aðeins hefur gikli á
rannsóknarsvæðunum sjálfum heldur og víðar.
Elztu setlög á sjávarbotninum virðast vera frá Krítartíma. Virðist
svo senr brotið sé í blað með Krítinni, núverandi höf verði ekki
rakin lengra aftur. Það er því fyrst og fremst saga þriðju og fjórðu
jarðaldar (Tertier- og Kvarter-tínrans), sem skráð er i botnlögin. Á
þeim tíma hefur jarðskorpan verið mjög ókyrr, fjallgarðar myndazt
bæði á landi og sjávarbotni og stór svæði hækkað eða lækkað. Og
loks er svo myndun landgrunna og ýmis mótun þeirra brot úr sögu
þessa tíma.
Hér verða fyrst raktir nokkrir almennir drættir með það í huga
m. a., hvaða ljósi þeir kunni að varpa á sögu íslandssvæðisins.
1. Eldfjallakeilur og kóraleyjar.
Á Kyrrahafi er mesti urmull af eldfjallakeilum, sem myndazt
hafa við gos á sjávarbotni. Sumar hafa aldrei náð upp til yfirborðs
sjávar, aðrar mynda eyjar, sem sjór hefur ekki náð að eyða, en
einn flokkurinn eru keilur, sem á löngu liðnum tíma stóðu fyrst
upp úr sjó, en eyddust þá ofan sjávar þannig, að eftir stóð flat-
typptur keilustubbur. Nú eru þessir flötu toppar víða á mjög
miklu dýpi. Þannig eru á svæði sunnan Aleuteyja, sem er um 1000
km í þvermál, um 10 slíkir keilustubbar og er meðaldýpi toppanna
um 900 m, og vestur af Sandvíkureyjum er annað svæði, um 5000
km langt og allt að 2000 km breitt, þar sem meðaldýpi toppanna
er um 1450 m. í nokkrum tilfellum hefur með hjálp dýraleifa
tekizt að linna hvenær topparnir voru við sjávarmál. Var það í
sumum tilfellum á Krítartíma, í öðrum á Míósentíma, þ. e. miðj-
um Tertiertíma.