Náttúrufræðingurinn - 1963, Side 42
182
NÁTTÚRUFRÆÐ1N G U RIN N
hefði þessi rjúpa einnig getað borið jurtir milli landa, og svipað
má ímynda sér, að bæði endur, álftir og gæsir geti flutt fræ og rætur
of'arlega í maga eða á fótum. Þannig flutningur með fuglum gæti
liaft þau áhrif á flóruna, að jurt finnist aðeins á stiiku afskekktum
stöðum, svipað því eins og sá staður hefði verið auður síðasta ís-
aldarskeið og jurtin þá lifað af ísöldina. Þannig er einnig til fjöldi
gróðurvinja á hálendi landsins, einangraðar af söndum, hraunum,
ám og jöklum, þar sem ákveðnar jurtir hafa náð að vaxa við dýja-
veitur eða laugaryl eða á íslausum svæðurn á jöklum. Mætti þá spyrja,
livort þetta væru líka leifar gróðurs frá fyrra hlýviðrisskeiði eða
hvort sá gróður hafi borizt þangað nýlega. Það er erfitt að hugsa
sér flutning laugaplantna inn í volgrur við jökulrót eða yfir sand-
auðnir Tungnaáröræfa, ef fuglar hafa ekki borið þær þangað. Er
þá ekki aðeins stigsmunur á því að bera fræið eða plöntuhluta til
landsins eins og frá einum landshluta til annars?
Finnist ný planta á þeim landshluta, sem vitað er, að hefur verið
hulinn jökli, er þó ekki annarra kosta völ en að álykta, að hún hafi
dreifzt þangað á einhvern framangreindan hátt. Mætti t. d. spyrja,
hvernig sé farið tilkomu dvergtungljurtar, sem nýlega hefur fund-
izt í Þjórsárdal. Á sama hátt getur bláklukka hafa borizt til Aust-
fjarða eða mýrarberjalyng að Mývatni.
Flutningur með loftstraumum.
Um flutning fræja með loftstraumum mætti ýmislegt tína til,
því að fræ allmargra jurta er útbúið sviftækjum, svo sem víðis,
aspar og dúnurtar. Enn ber þess að geta, að mikill hluti þeirra
plantna, sem talinn er hafa lifað hér á ísöld, eru burknar og elft-
ingar, en gróbæru plönturnar eru í sérflokki; þær æxlast með gró-
um, og gró þeirra eru mjög létt og geta hæglega borizt með loft-
straumum milli landa. Iir því vafasamt að draga of miklar ályktanir
af fundarstöðum þeirra, en af hinum svokölluðu miðsvæðisjurtum
teljast að minnsta kosti 16 vera burknar og elftingar. Mosar og skóf-
ir bárust hingað þannig og voru sennilega fyrstu landnemarnir.
Mannleg dhrif.
Þá skal rétt drepið á áhrif mannsins á tilkomu flórunnar. Stein-
dór telur um 100 plöntur íslenzku flórunnar hafa borizt með mönn-
um. Það er eins með þessar jurtir og miðsvæðisjurtirnar, að þær