Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 21
Kjalameskerfiff Stardalskerfii ???
NA Esja
Krísuvík SV
Stardalskerfið
EINFALDAÐ ÞVERSNIÐ (A) OG LANGSNIÐ (B) AF JARÐLAGASTAFLANUM VIÐ
SUNNANVERDAN FAXAFLÓA, MIÐUÐ VI0 SPRUNGUSTEFNUNA NV-SA.
MYNDANIRNAR FJÓRAR ERU ÞÆR SÖMU OG Á 1. MYND
2. mynd. Einfölduð tilbúin snið af jarðlagastaflanum samsíða og þvert á sprungustefn-
una. Hugsuð lega sniðanna er sýnd á 1. mynd. — Simplified ideal sections at right angle
to (A) and parallel to (B) the fissure orientation, of the crust in Southwestern Iceland.
Location of the sections is shown in fig. I. Rock formations are the same as in Fig. 1.
sprungusveimsins voru virkir og jarð-
skorpan á höfuðborgarsvæðinu var að
myndast, var Reykjanesskaginn ekki
til sem slíkur, eftir því sem best verður
séð. Suðurströndin lá norðar en nú er.
Hún hefur að sjálfsögðu verið eitthvað
breytileg frá einni tíð til annarrar
vegna ýmissa breytiþátta, svo sem:
Uppbyggingar af völdum eldvirkninn-
ar, niðurbrots af völdum sjávar og
jökla, sem langtímum voru á svæðinu,
og síðast en ekki síst vegna breytinga á
jafnvægisástandi í jarðskorpunni af
„ísóstasískum“ toga. Við getum til ein-
földunar áætlað að lengst af hafi
ströndin legið til austurs eða suð-
austurs frá svæðinu milli Hafnarfjarð-
ar og Grafarvogs. Sprungusveimar
þeir sem nú finnast á Reykjanesskag-
anum voru ekki orðnir virkir og fram-
hald rek- og gosbeltisins til suðurs var
neðan sjávarmáls. Afraksturinn af
virkni þeirra sprungusveima, sem þá
voru virkir neðansjávar, sést ekki á
þurrlendi í dag og virðist ekki skipta
verulegu máli fyrir endurröðun at-
burða í þessari þróunarsögu.
III.2. Tertíer-, ár- og miðkvarter
Elsta berg við Faxaflóa er frá tertí-
er. Það finnst ekki sunnar á yfirborði
en á norðurströnd Hvalfjarðar. Úr því
er t.d. Akrafjall. Þetta berg er mynd-
að í sprungusveimum, sem ekki verða
til umfjöllunar hér. Á því hvílir það
berg, sem myndar berggrunninn á
norðanverðu höfuðborgarsvæðinu.
Meginhluti þess bergs, sem nú finnst
á yfirborði, myndaðist í árkvarteru
sprungusveimunum tveimur. Það
67