Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 27

Náttúrufræðingurinn - 1985, Blaðsíða 27
AFSTAOA SPRUNGUSVEIMANNA QG GRAGRYTISINS VIO SUNNANVEROAN FAXAFLÓA 3. mynd. Einfölduð mynd af sprungusveimunum á Suðvesturlandi og afstöðu þeirra til grágrýtisins (smástrikuð svæði). Útdauðu sprungusveimarnir, Kjalarnes- og Stardals- sveimarnir hverfa inn undir grágrýtið, en sprungur virku sveimanna skera sig inn í það. — Simplified map of the fissure swarms of Southwestern Iceland showing their relation to the gray basalts (hatched areas). The fissures of the extinct Early Quaternary fissure swarms disappear below the gray basalts, while the fissures of the active fissure swarms extend into it. á mó undan hrauninu í Elliðavogi, þeirri fyrstu á íslensku efni, rann þetta hraun fyrir um það bil 5300 árum (Hospers 1953 og Jóhannes Áskelsson 1953). Samskonar aldursákvörðun á birkikolum undan hrauninu í Elliðaár- dal, gerð síðar (Jón Jónsson 1971), gefur heldur lægri aldur, eða um 4600 ár, sem er líklega nær hinu rétta. Hraun þetta er óbrotið í sundinu við Skyggni, þar sem það liggur 4-5 m þykkt ofan á 2 m af lausum jarðlögum (Gestur Gíslason og Páll Imsland 1971). Austurbrún Selássins norðan sundsins er misgengisstallur á sama misgengja- og sprungusveim og Hjallamisgengið. Fleiri misgengi á þessum sprungusveim liggja norður um svæðið austan Elliðavatns og skera þar grágrýtið beggja vegna Leita- hraunsins, án þess að nokkurra brota verði vart í hrauninu (sbr. Jón Jónsson 1965). Það verður því að teljast nær fullvíst, að ekki hafi orðið hreyfing á þessum misgengjasveim norðan EIl- iðavatns síðustu 4600 árin, þó ljóst sé, að 6-7 km sunnar hafi orðið allt að 7 m misgengi á brotum á sama sprungu- sveim einhvern tíma á síðustu 7200 árum. Leitahraun er hins vegar brotið austur við Vatnaöldur (Jón Jónsson 1982, munnl. upplýsingar), þar sem Brennisteinsfjallasprungusveimurinn sker það. Verið getur að brotavirkni á 73

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.