Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 36

Náttúrufræðingurinn - 1985, Síða 36
3. mynd. íslandskort, er sýnir þá fundarstaði basaltísks íslandíts (stjörnur) og íslandíts (svartir punktar) sem vitað er um með vissu. Á kortinu eru einnig sýndar jarðmyndanir frá yngri pleistósentíma-nútíma (skyggt), — og er þar greint á ntilli þóleiíska beltisins (dökk-skyggt) og alkalísku beltanna (ljós-skyggt); jarðmyndanir frá plíó-pleistósen (skástrikaðar) og ntyndanir frá tertíer (óskyggt). — Map of Iceland showing known localities of basaltic icelandite (stars) and icelandite (black dots); formations of yottng Pleistocene and Recent age (shaded), Plio-Pleistocene formations (obliqtte lines) and Tertiary formations (white). öllurn þeint megineldstöðvum sem kannaðar hafa verið af alvöru, þá verður að teljast líklegt að þessar berg- tegundir eigi eftir að finnast í flestum þóleiískum megineldstöðvum. Af þeim sem eru vel þekktar, virðast ís- úru bergtegundirnar algengastar í Phngmúlaeldstöðinni í Skriðdal (Carm- ichael 1964), í Hafnarfjallseldstöðinni í Borgarfirði (Hjalti Franzson 1978), í Reykjadalseldstöðinni í Miðdölum og í Hallarmúlaeldstöðinni í Borgarfirði (Haukur Jóhannesson 1975), í Kerl- ingafjöllum (Karl Grönvold 1972) og í Kjalarnes- og Stardalseldstöðvununr í Kjósarsýslu (Ingvar B. Friðleifsson 1973). Erfitt er að geta sér til um hversu mikið er af ísúru bergi á ís- landi. Sé tekið mið af þeim upplýsing- um sem fyrir hendi eru, þá gæti basalt- ískt íslandít og íslandít verið um eða innan við 5% alls gosbergs landsins. Uppruni ísúra bergsins hefur aðal- lega verið skýrður á tvennan hátt. Annars vegar getur basaltískt íslandít og íslandít hafa myndast við hlutkrist- öllun á þóleiíti (sbr. Sveinn P. Jakobs- son 1984) í kvikuhólfum megineld- 82

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.