Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 27

Náttúrufræðingurinn - 1936, Side 27
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 21 Uiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiaiiiiiiiiinin sannfærast um þetta. Þegar eitthvert líffæri af einhverjum ástæð- um er ekki lengur notað, byrjar það að verða úrelt. Það verður þá fyrst miklu minna en á meðan það var upp á sitt bezta í sögu tegundarinnar, síðan, þegar margar kynslóðir eru liðnar, fer það að verða mjög breytilegt að stærð og loks minnkar það mjög og verður aðeins vísir, hjá því sem áður var, og hverfur að lokum með öllu. Hin úreltu líffæri lifa góðu lífi meðal hinna starfandi líffæra í líkama mannsins. Þau njóta sömu hlunninda hjá líkam- anum eins og gamall embættismaður í mannlegu þjóðfélagi, þeg- ar hann lifir á eftirlaunum, í virðingar- og viðurkenningarskyni fyrir starf, sem hann leysti svo vel af hendi fyrr á tímum, þegar mikið valt á orku hans. Annars dettur manni ósjálfrátt í hug sá svipur, sem er með þessum úreltu líffærum í dýraríkinu og hjá manninum og ýmsu því í menningarsögu þjóðanna, sem einu sinni hefir haft sína þýðingu, en er að verða úrelt. í mörgum tungu- málum eru margir stafir í ýmsum orðum, sem alls ekki heyrast í framburði, þeir eru úrelt líffæri í málinu. Á sama hátt verður að skoða ýmsa siði, ýms lög og margt annað sem úrelt líffæri á lííkama menningarinnar. Stundum gleymist það, en því skýtur svo ef til vill upp aftur eftir langan svefn, alveg eins og úreltu líffærin á líkama plantnanna, mannsins og dýranna. Á. F. 1. mynd er tekin úr: Johannes Meisenheimer: Entwicklungsgeschichte des Menschen o. s. frv. Samml. Gösch. 378, Berlin 1917. Allar hinar myndirnar eru eftir: Hjalmar Öhrvall: Rudimentára Organ hos Mánniskan. Studentför. Verd. S'máskr. 141, Stockholm, 1911.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.