Náttúrufræðingurinn - 1939, Side 3
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 161
iliillliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii>uiii»iiiin
Reikistjarnan Marz.
Útvarpserindi.
Lesendur NáttúrufræSingsins munu flestir hafa heyrt síðastl.
vetur, að útvarpað hafi verið í Bandaríkjum Norður-Ameríku
leikriti eftir H. G. Wells. í útvarpinu var öllum staðarnöfnum
breytt og sett í stað þeirra nöfn bæja í Bandaríkjunum. Efnið
er það, að íbúar reikistjörnunnar Marz herja á íbúa jarðarinn-
ar í fullkomnum flugdrekum og er tækni þeirra öll margfalt
meiri en tækni okkar mannanna er nú. Enda þótt tekið væri
fram áður og meðan á leiknum stóð, að atburðir þeir, sem lýst
var, væru aðeins leikur, en ekki atburðir, sem raunverulega
væru að gerast, tóku margir þetta sem almennar fréttir og greip
óhugur marga og aðra skelfing, svo að fjöldi fólks lagði á flótta
frá borgum þeim, sem um var rætt í leikritinu.
Saga þessi mun vera ljósasti vottur þess, hve sterk trú al-
mennings er á því, að skynsemi gæddar verur byggi reikistjörn-
una Marz.
Ef grafizt er fyrir rætur þessarar trúar, kemur í ljós að trú-
in er sprottin af rannsóknum stjörnufræðinga fyrr á öldum.
Spekingar fornaldarinnar litu almennt svo á, að jörðin væri
miðja alheimsins, en um hana lykjust sjö himnar eða gagnsæj-
ar hvelfingar og var sól og tungl og reikistjörnurnar fimm fest
hvert á sína hvelfinguna. Utan um allt saman koma svo festing
himinsins með öllum fastastjörnunum. Hverri af innri hvelf-
ingunum var snúið af anda eða guðdómi og var oft stjarnan
sjálf ímynd þessa guðdóms. Nöfn þau, sem við nú höfum á reiki-
stjörnunum, eru, sem kunnugt er, úr rómversku goðafræðinni og
var Marz herguðinn. í kerfi þessu hefur jörðin algjöra sérstöðu
og er allt annars eðlis en reikistjörnurnar. Úr þessum sessi er
henni steypt af Kopernikusi um miðja 16. öld. Samkvæmt kenn-
ingu hans er jörðin ein reikistjarnanna. En kenning hans átti
langt í land með að ná almenningshylli. Sá maður, sem mestan
átti þátt í sigri kenningarinnar, var Tycho Brahe, þótt óbein-
línis væri. Tycho Brahe aðhylltist sem sé ekki sjálfur kenningu
Kopernikusar, en hann gerði margfalt nákvæmari athuganir
á gangi stjarnanna en áður hafði tíðkazt og þá sérstaklega á
reikistjörnunni Marz. Þessar nákvæmu athuganir á Marz urðu
11