Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 7

Náttúrufræðingurinn - 1939, Page 7
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 165 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiituiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiii ari eftir því, sem leið á öldina. Mikil vinna var lögð í kort þessi, og voru þau öll teiknuð eftir því, sem Marz sást í kíki, því að ljósmyndagerðin var ekki orðin sérstaklega fullkomin. Við verðum að hafa það hugfast, að hlutir þeir, sem sjást á Marz, eru það daufir, að þeir eru alveg á takmörkum þess sýni- lega, jafnvel þótt notaðir séu beztu sjónaukar. Auga það, sem sér, hefur í slíkum tilfellum mikið að segja, gerð kíkisins og síðast en ekki sízt er hreinleiki loftsins og kyrrð þýðingarmikið atriði. Er því ekki að furða, að kort þau, sem gerð voru, hafi verið allfrábrugðin hvert öðru. Sammerkt með þeim var þó það, að suðurhvel reikistjörnunnar var nokkuð dekkra að sjá en norð- urhvel, og litu menn svo á, að þetta dökka væru höf. Við heim- ítalski stjörnufræðingurinn Schiaparelli gerði þessar teikningar af Marz ár- ið 1888. Á myndinni sjást hinir frægu skurðir mjög vel. Sumir eru tvöfaldir nærri jafnhliða, en aðrir skerast. Þar sem þverskurðir tengja saman tvo aðal- skurði koma fram eins og þykkni. Lengsti tvöfaldi skurðurinn, sem sést á myndunum, heitir Euphroates, og er á 6. þús. kílómetra á lengd. (Hutchinson: Splendor of the Heavens.) skautin voru hvítar skellur, sem menn eðlilega héldu að væri ís eða snjór. Milliliturinn, sem var dekkri en heimskautablett- irnir, en ljósari en höfin, átti að svara til meginlanda, en þau eru sérstaklega áberandi á norðurhveli Marz, og eru rauðgul að lit. Veruleg breyting varð á Marzkortunum árið 1877, þegar Schiaparelli sáá reikistjörnunni hluti, sem enginn hafði

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.