Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1939, Síða 14

Náttúrufræðingurinn - 1939, Síða 14
172 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 11111111111111111111111111II111IIIIIIIIIII111111111111111111111111111111111111111111111111111111111 ■ 1111111111111 ■ 1111111111111111111111111111111II1111111111111 svartbak og- skeglum, slangur af stóra- og litla-hvítmáf, nokk- urir skúmar og fýlungar og einnig sá ég þar nokkura litlu-svart- baka og silfurmáfa, fullorðna og unga fugla. Þessir máfar hui’fu héðan aftur, þegar síldin þvarr. 7. sept. komu ein stormmáfshjón hingað á leiruna með alveg nýfleyga unga. Þau mötuðu þá og voru sífellt að verja þá fyrir hröfnum og stærri máfunum, sem þeim þóttu vera of nær- göngulir við ungana. Þessi fjölskylda dvaldi alllengi hér á leir- unum. 16. okt. komu fyrstu snjótittlingarnir hingað niður á láglendið. Þann 16.—17. nóvember var hér norðaustan slydduveður, þá sá ég þ. 17. hóp af gráþröstum, eitthvað um 25—26 fugla og munu þeir hafa verið að koma, þegar ég sá þá. Fram að áramótum var svo alltaf strjálingur af gráþröstum hér, en ekki urðu þeir fleiri en 50—60 og ekki höfðust þeir annars staðar við en í Gróðrarstöðinni og í trjágarðinum við kirkjuna. Þann 25. sept. hitti ég að máli stýrimann á Grænlandsfarinu ,,Gustaf Holm“, hr. Bang Christensen. Skipið var þá statt hér á Akureyri, en hafði verið fast í ís allmarga daga úti fyrir Scoresbysundi. Hann sagði mér, að á meðan skipið var fast í ísnum, frá 30. ágúst til 18. september, hafi alltaf verið að sjást til fálka, sem komu fljúgandi úr norðurátt, og taldi hann, að á þessu tímabili mundu hafa flogið þar fram hjá um 200—300 fálkar, allir hvítir. Flestir svifu þeir nokkura hringi yfir skip- inu um leið og þeir fóru fram hjá. Vindstaðan á þessu tímabili var oftast af norðvestri. Christensen áleit að fálkarnir hefðu verið á leið til Suður-Grænlands, frá Norðvestur-Grænlandi. Komudagar farfugla árið 1937. Máríuerlur, heyrði fyrst til þeirra þann 24. apríl. Þúfutittlingar, heyrði til fyrsta þúfutittlingsins þann 14. apríl. Skógarþrestir, 3. apríl komu nokkurir fuglar, en svo bættist lítið við þá, þangað til þann 11. apríl, en þá fjölgaði þeim dálítið þann daginn. Fór svo fram þangað til seinna hluta dags þann 16. apríl, að þeim fór að fjölga, og daginn á eftir komu skógarþrestir í stórum hópum. Síðan virtist mér þeim

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.