Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1939, Síða 29

Náttúrufræðingurinn - 1939, Síða 29
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 187 lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll•lll■l■•■l■llll■ll■lllllllll■■■l■■lllllllllllllllllllll■llllll■ll■ll■lllllllllllllllll■lll■l■>la■llllllllll það, eins og áður var sagt, a. m. k. á Norðurlandi. Um fund hunangsflugubúsins er annars það að segja, að það er mjög sjaldgæft að finna hunang í búi um vetur. Venjulega etur síð- asta afsprengi vinnubýflugnanna það upp að haustinu. Á haust- in fara drottningarnar venjulega frá búunum og velja sér þá einhverja holu, þar sem þær liggja í dái yfir veturinn. í Dan- mörku eru engin dæmi þess, að drottningarnar liggi í dái í bú- unum sjálfum og ennþá síður að þær eti á veturna af því hun- angi, sem í búunum kann að vera frá sumrinu. S. L. Tuxen, Zoologisk Museum, Köbenhavn. Randaflugan á Reykjum í Hjaltadal. Athugasemd. í tilefni af greininni „Randaflugan á Reykjum í Hjaltadal" (Nátt. IX. árg. 1939, bls. 68), hefi ég frá áreiðanlegum heim- ildum fengið þær upplýsingar: 1. Að .enginn Ari Þorvaldsson er til í Hvammi, 2. Að Þórólfur er enginn á Reykjum, 3. Að bóndinn á Reykjum heitir Jóhannes og er ókvæntur og barnlaus, svo 4. Að 10 ára sonur hans er heldur ekki til, og 5. Að a. m. k. síðustu 30 árin hefir randaflugusaga sú, sem lýst er í greininni, ekki átt sér stað á Reykjum í Hjaltadal. Hér hefir því, því miður, verið um 100% uppsuna að ræða, og bið ég lesendur Náttúrufræðingsins mjög velvirðingar á því. Á Akureyri er til maður, sem fæst við iðnað af þessu tagi, og gef- ur að skilja, að hann á ekki innangengt í dálka Náttúrufræð- ingsins framar, ef úlfseyrun sjást í stíl greinanna, sem hann kann að senda, eða í gerfinöfnunum, sem undir þeim standa. Líklega er hér að ræða um sama manninn og þann, sem aug- lýsti jarðir til sölu í Tímanum síðast liðinn vetur, án þess að eiga nokkrar jarðir til að selja, án þess að hafa umboð til þess að selja jarðir annara og án þess að þær, sem auglýstar voru

x

Náttúrufræðingurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.