Tíminn - 04.10.1969, Side 5
1. þáttur framhaldsmyrtdaflokksins Worse Skipstjóri er á dagskrá sjónvafpsirts á
mánudagskvöldið kl. 20.55. Myndaflokkur þessi er frá Norska sjónvarpinu og
er gerður eftir sögu Alexanders Kiellands.
til þess a3 halda nafni hans á
lofti um langa fraimtíð.
Myndafliokkurinn er í firam
þáttum, og nefnist fyrsti þáttur-
inn ,,Heimkoman“.
HÚSMÆÐRAÞÆTTIRNIR
Á miðvikudag klukkan 20,55
verður kúsmæðraþáttur, og verð-
ur enn fjallað um hauststörf hús-
mæðra, í þetta sinn leiðbeinir
Margrét Kristinsdóttir um slátur-
gerð og kemur það áreiðanlega á
réttum tírna, því að nú stendur
slátursala sem hæst og í dýrtíð-
inni sem nú er, reyna vafalaust
flestar húsmæður að taka slátur
fyrir veturinn. Húsmœðraþáttur-
inn, sem var í síðustu viku, var
að mörgu leyti gagnlegur, en mér
fannst heldur hratt farið yfir,
sérstaklega þegar leið að lokum
þáttarins, svo að þess vegna var
ekki eins mikið gagn að honu.m
sem skyldi. Fyrri hluti þáttarins
fjallaði um frystingu berja og
sultugerð, en var nokkuð seint á
ferðinni, þar sem öll ber voru
frosin og snævi þakin víða um
land. En það verður víst að skrif-
ast á reikning veðurguðanna.
NÝR ÞÁTTUR —
MAÐUR ER NEFNDUR . . . “
Á þriðj udagskvöldið að loknum
fréttum, M. 20,30, hefur nýr ís-
•lenzkur viðtalsþáttur göngu sína.
Hefur hann hlotið nafnjð „Maðtir
er nefndur . ... ” Er til.þess ætl-
azt, að í þessum þátturn sé rætt
við ýmsa athyglisverða menn hér
á landi til sjávar og sveita. Ekki
mun vera um fastan stjórnanda
þáttarins að ræða..
í þessum fyrsta þætti ræðir
Indriði G. Þorsteinsson, rithöfund-
ur, við Helga bónda Haraldsson á
Hrafnkelsstöðum, sem fyrir löngu
er landsfrægur orðinn fyrir ýms-
ar sakir, og þó mest fyrir skrif
sín og deilur við fræðimenn og
aðra um höfund Njálu og íslend-
ingasögur að ýmsu öðru leyti.
Hefur Helgi lent í mörgum deil-
um um ævina, og hefur vafalaust
frá mörgu skemmtilegu að segja.
DÍSA HEITIR HÚN
Nýi framhaldsþátturinn .,,1
dream of Jeannie“ hefst á laug-
ardagskvöldið kl. 20,25, og hefur
fengið nafnið Dísa á íslenzku.
Eins og áður hefur komið fram,
fjallar myndaflokkur þessi um
bandarískan þotuflugmann, sem
lenda verður á eyðiey. Þar nit.tir
hann fyrir töfradís, sem kemur
upp úr flösku eins og í Þúsund
og einni nótt. Þau tvö eru síðan
aðalpersónurhar í ýmsum ævin-
týrum, sem gerast á ýmsum tím-
um sögunnar. Barbara Eden leik
ur Dísu og Larry Hagman flug-
manninn. Er þessi framhalds-
myndaþáttur með vinsælari dag-
skrám. sem bandariska siónvaros
fyrirtækið NCB hefur til sýnis i
vetur í Bandaríkjunnm.
GUSTUR Á MIÐVIKUDAGINN
Rétt er að geta þess að lokum,
að myndafiokkurinn „Gustur“
hefst kl. 18 á miðvikudaginn.
Aðalhlutverkið í þessum mynda-
flokki leikur hesturinn „Gustur",
sem er fyrir stóði villtra hesta, og
vill engan mann þýðast nemá
ungan dreng, sem eitt sinn bjarg-
aði Mfi hans. Fjalla þættir þessir
um ævintýri hertsins og drengs-
ins. — A.K.M.