Fréttablaðið - 19.05.2009, Side 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
ÞRIÐJUDAGUR
19. maí 2009 — 118. tölublað — 9. árgangur
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
BLÁTT ÁFRAM samtökin standa fyrir ráðstefnunni
Forvarnir eru besta leiðin í Háskólanum í Reykjavík 19.
og 20. maí. Þar verða skoðaðar leiðir sem samfélagið
getur farið í til að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi gegn
börnum. Sjá www.blattafram.is.
Ásdís Halldórsdóttir b jfiml ik
Ekki stoppað frá unga aldri
Ásdís Halldórsdóttir byrjaði að kenna leikfimi ung að árum og hefur kennt og þjálfað úti um allan hei
Í dag kennir hún Body Jam og fleira frá morgni til kvölds ásamt því að sk kk
Ásdís er nánast alltaf á hreyfingu. Hún kennir fjölbreytta líkamsræktartíma og fer auk þess í afró og út að skokka.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífarfjölbreytt úrval
VEÐRIÐ Í DAG
Sagnaarfur sameinar
Comenius – samstarfsverkefni
evrópskra skóla um sagnaarf
þjóðanna, lýkur með útgáfu á
bók og safndiski.
TÍMAMÓT 14
ÁSDÍS HALLDÓRSDÓTTIR
Æfir afródans og
skokkar á sumrin
• heilsa
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ríkisstjórn jafnaðar?
„Umræða um öfgafeminisma er
þó ekki rökrétt því að jafnrétti
getur aldrei verið of mikið,“
skrifar Sverrir Jakobsson.
Í DAG 12
ÓLAFUR HAUKUR
Aldrei nóg
af Gauragangi
Tveir Ormar væntanlegir
FÓLK 26
ÆVAR ÖRN JÓSEPSSON
Glerlyklastjörnur
til landsins
Metsöluhöfundar meðal gesta
FÓLK 26
Ævintýri Rybaks
Norski sjarmörinn sem
vann Eurovision.
FÓLK 20
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
www. tengi.isSTJÓRNMÁL Veturinn hefur verið einstakur í þjóðar-
sögunni, sagði Jóhanna Sigurðardóttir í stefnu-
ræðu sinni gær. „Vetur sem … skilur eftir sig sár og
úrlausnarefni sem eru viðameiri en nokkur stjórn-
völd hafa áður staðið frammi fyrir.“
Jóhönnu varð tíðrætt um Evrópusambandið. Hún
sagði aðild ekki töfralausn eina og sér, en benti
einnig á að umræðan um aðild og sjávarútveg mætti
ekki aðeins snúast um vörn. Íslensk sjávarútvegs-
fyrirtæki hafi burði til að keppa á frjálsum markaði
hvar sem er í heiminum.
Jóhanna var bjartsýn undir lok ræðu sinnar, sem
hún lauk með því að segja: „Við búum við þá gæfu
að eiga sterka og vel gerða þjóð og ég er sannfærð
um að við munum sýna alþjóðasamfélaginu hvað í
okkur býr með því að vinna okkur fyrst allra þjóða
út úr þeim efnahagsþrengingum sem við göngum nú
í gegnum.“ - ss / sjá síðu 6
Önnur stefnuræða Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra:
Verkefnin aldrei viðameiri
HLÝJAST SUÐVESTAN TIL Í dag
verða NA 8-13 m/s norðvestan til
og við suðausturströndina annars
hægari. Bjartviðri sunnan og vestan
til annars hálfskýjað eða skýjað. Hiti
5-18 stig hlýjast til landsins syðra.
VEÐUR 4
7
10
7
16
16
17
18
LÖGREGLUMÁL Þrjú tonn af þýfi í
póstsendingum á leið til Póllands
og Litháen voru gerð upptæk af
lögreglunni í fyrra samkvæmt
upplýsingum lögreglunnar.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, segir þjófa af erlend-
um uppruna standa undir 80 til 85
prósentum af verðmæti þýfis úr
verslunum. Vægar refsingar hér
ýta undir starfsemi skipulagðra
glæpagengja segir lögreglan.
Verðmæti þess sem tapast með
þjófnuðum úr búðum á hverju ári er
á bilinu sjö til níu milljarðar, segir
Andrés. Hann segir upp hæðina
hafa hækkað mikið á þeim tveimur
til þremur árum síðan þessi skipu-
lagða glæpa starfsemi hófst, en
jafnframt hafi hlutur starfsfólks í
þjófnaði úr verslunum minnkað.
Þjófar af erlendum uppruna eru
í allt öðrum klassa en íslenska lög-
reglan hefur vanist. Þeir eru vel
skipulagðir og stela meira magni og
dýrari hlutum segir Aðalsteinn Örn
Aðalsteinsson rannsóknarlögreglu-
maður í grein í Lögreglumanninum.
„Ávinningur inn er gríðarlegur en
áhættan í lágmarki,“ segir hann.
Brotamenn horfi til Íslands „með
dollaramerki í augum þar sem
refsingar við þjófnuðum eru í lág-
marki“.
„Hér eru skipulögð glæpagengi
sem ganga kerfisbundið til verks.
Það er eins og þau séu að afgreiða
pantanir. Dæmi eru um að vöru-
sendingar hafi farið í gegnum póst-
inn á sömu heimilisföng í tilteknum
löndum, sendar af gengi sem hefur
verið flett ofan af hér heima,“ segir
Andrés.
Þýfinu er komið úr landi og það
selt á götumörkuðum í Póllandi og
Litháen. Aðalsteinn segir að stund-
um sé hægt að kaupa þar sígarettur
með íslenskum viðvörunum, verk-
færi merkt íslenskum verktökum,
ilmvötn, snyrtivörur og jafnvel
fatnað merktan íslenskum fram-
leiðendum. Lögreglan hafi aðeins
náð broti af öllu þýfinu.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri
segir lögregluna sífellt benda á
hvað megi betur fara. „Það er eitt
og annað í löggjöfinni sem gerir
okkur erfiðara fyrir en ella,“ segir
hann. - ghs
Þrjú tonn af þýfi gerð
upptæk í tollinum
Lögreglan lagði í fyrra hald á þrjú tonn af þýfi á leið til Litháens og Póllands.
Þýfi úr búðum talið sjö til níu milljarðar á ári. 85 prósentum stolið af erlendum
gengjum. Brotamenn frá Austur-Evrópu horfi til landsins með gróðavon í huga.
LANDBÚNAÐUR Saga kornræktar á
Skagaströnd hófst í síðustu viku,
segir Magnús B. Jónsson, sveitar-
stjóri þar. „Hér er frumkvöðull,
Hallbjörn Björnsson að nafni,
sem hefur sáð fyrir því á jörðinni
hjá sér og vildi sjá hvort ekki
væri hægt að rækta korn hérna
hjá okkur þótt við séum þetta
norðar lega,“ segir Magnús. „Það
er gaman að segja frá því að ef
vel tekst til erum við komin með
korn til að brugga kántríbjórinn
fyrir þarnæstu hátíð. Það fer
vissulega vel á því að Hallbjörn
komi með kornið í kántríbjór-
inn,“ segir Magnús glettinn. - jse
Skagaströnd:
Hallbjörn sáir
fyrir kántríbjór
HALLBJÖRN Á AKRINUM Saga
kornræktar er hafin á Skagaströnd.
Í SÓL OG SUMARYL Þessir strákar skelltu sér í bað í Elliðaánum í gær enda veður gott. Útlit er fyrir áframhaldandi veðurblíðu í
Reykjavík og nágrenni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Ótrúlegur sigur FH
FH vann ótrúlegan
sigur á Breiðabliki í
gær með marki
á lokamínútu
leiksins.
ÍÞRÓTTIR 22
SJÁVARÚTVEGUR „Mín framtíðar-
sýn er að Ísland verði leiðandi
í mótun og stjórn sjávarútvegs-
stefnu Evrópusambandsins,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir á
Alþingi í gær.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna, segir
þessa framtíðarsýn vera tálsýn.
Íslendingar muni ekki stjórna
í ESB. Jóhanna ræddi líka um
sóknarfæri í Evrópu, en Friðrik
kallar eftir dæmum um þau.
Sóknarfæri, svo sem í fjárfest-
ingum fyrirtækja, aukist ekkert
við inngöngu.
Þá hélt Jóhanna því fram að
reglur ESB um hlutfallslegan
stöðugleika myndu tryggja
kvóta Íslendinga í staðbundnum
stofnum. Friðrik segir þetta
ofmælt. „Þetta er reglugerð og
henni má breyta.“ - kóþ / sjá síðu 6
Framkvæmdastjóri LÍÚ:
Framtíðarsýn
Jóhönnu tálsýn