Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2009, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 19.05.2009, Qupperneq 2
2 19. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR ORKUMÁL Félögin Aker Exploration og Sagex Petroleum sóttu um sér- leyfi til rannsóknar og vinnslu kol- vetnis á Drekasvæðinu. Umsóknirn- ar voru opnaðar í gær í Orkustofnun að viðstaddri Katrínu Júlíusdóttur iðnaðarráðherra. Að minnsta kosti þrjú ár munu þó líða áður en farið verður að bora á eftir olíu. „Ég er mjög bjartsýn og ánægð,“ sagði Katrín. „Þetta eru miklir fag- menn sem hafa mikla þekkingu á þessu sviði sem þarna eru að bjóða í og þeir hafa greinilega mikla trú á því að það séu mjög sterkar líkur á því að þarna sé olíu að finna í nægi- legum mæli til að vinna hana.“ Hún sagði enn fremur að þótt olíuágóði væri enn sem fuglar í skógi en ekki í hendi sæi hún strax fram á vissan hag af áætlununum. „Þetta gefur okkur strax tækifæri því í lögun- um um olíuleitina er ákvæði um að stofna mennta- og rannsóknasjóð sem leyfishafar leggja fjármuni í til að mennta fagfólk á þessu sviði. Þetta fer strax af stað. Síðan þegar rannsóknir hefjist munu skapast hér nokkuð mörg störf, menn hafa verið að tala um fimmtíu og yfir.“ Jafnframt sagði Katrín að farið hefði verið eins langt og unnt var við gerð laganna til að tryggja að sem mest af starfseminni færi fram hér á landi. Spurð hvað inn- sæið segði henni um það hvort olíu væri þarna að finna sagði hún: „Já, ég tel svo vera og ekki dregur það úr trúnni að vita af því að þessi tvö félög trúa því greinilega staðfast- lega.“ Lárus Ólafsson, lögfræðingur Orkustofnunar, sagði að nú yrði strax hafist handa við að meta umsóknirnar. „Endanleg ákvörðun um veitingu leyfa á að liggja fyrir í lok október næstkomandi svo það fer alveg með sumarfríið,“ sagði hann kankvís. Margir hafa gagn- rýnt framgöngu stórfyrirtækja hér á landi í áliðnaði og stjórnvöld fyrir eftirlátsemi við þau. Lárus segir þann möguleika fyrir hendi að selja leyfið frá sér en það yrði að vera gert með samþykki Orkustofnunar. Gunnlaugur Jóns- son, stjórnarmaður í Sagex Petrol- eum og forstjóri Linda Resources, segir hins vegar markmið Sagaex að þróa iðnaðinn eins og hægt er hér á landi. „En vissulega er mikl- vægt að sækja þekkinguna þar sem hún er fyrir,“ segir hann. „Forstjóri Sagex, Terje Hage- vang, gerði þarna rannsóknir fyrir nokkrum áratugum þegar hann vann sína doktorsritgerð og hefur hann allar götur síðan haft mikinn áhuga á svæðinu,“ segir Gunnlaugur. „Þarna hefur verið gerður fjöldi rannsókna sem lofa mjög góðu.“ jse@frettabladid.is Jóhannes, eigið þið nokkuð til hagsýni á safninu hjá ykkur? „Nei, því miður, söfnunin hófst ekki fyrr en 1935.“ Sýni úr 300 þúsund Íslendingum eru til á lífsýnasafni Landspítalans. Jóhannes Björnsson læknir er formaður stjórnar safnsins. Störf koma strax og olía vonandi síðar Rúmlega fimmtíu störf skapast þegar rannsóknir hefjast á Drekasvæðinu. Tvö félög sóttu um sérleyfin og ræðst það í októberlok hvort þeirra hlýtur þau. Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra telur að olíu sé að finna á svæðinu. IÐNAÐARRÁÐHERRA Í PONTU Katrín Júlíusdóttir ávarpar fundinn. Við hlið hennar sitja fulltrúar frá Orkustofnun. Þau eru Lárus Ólafsson, lögfræðingur, Þórarinn Sveinn Arnarson, verkefnastjóri olíuleitar, Kristinn Einarsson, yfirverkefnastjóri auðlindamála og Guðrún Bjarnadóttir, ritari orkumálastjóra. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI UM SAGEX PETROLEUM OG AKER EXPLORATION Geysir Petroleum hf. var íslenskt félag stofnað 2001. Það var síðan sameinað norska félaginu Sagex 2007 sem er nú í fimmtungs eigu Íslendinga. Sagex Petrol- eum hf. er síðan dótturfélags þess. Það er stofnað um hugsanleg umsvif á Dreka- svæðinu. Verkefnið yrði gert í samvinnu við íslenska félagið Lindir Resources sem er óstofnað dótturfélag Lindir Explorations. Sagaex hefur á annan tug rannsókna- og vinnsluleyfa. Olía og gas hefur fundist á þremur þeirra en vinnsla ekki hafist. Aker Exploration er norskt félag stofnað árið 2006. Stjórnarfomaður þess er Kjell Inge Rökke, sem er þekktur skipakóngur. Hann er númer 468 á lista Forbes yfir ríkustu menn heims. Eyjarslóð 5 101 Reykjavík S: 511 2200 www.seglagerdin.is 2.060.000,- kr.AFSLÁTTUR Tilboð kr. 7.890.000,- Fullt verð kr. 9.950.000,- EIGUM TIL 2 BÍLA Á GAMLA GENGINU JOINT Z 460 Z460 STJÓRNMÁL Konur eru í meiri- hluta sjö fastanefnda Alþingis, en karlar eru í meirihluta fimm nefnda. Ef varamenn í utanríkis- málanefnd eru teknir með eru konur í meirihluta í sex nefndum og karlar fimm. Jafnt er skipt í eina nefnd. Hæst hlutfall kvenna er í heil- brigðis- og viðskiptanefnd, sjö af níu í hvorri nefnd. Þá eru sex nefndarmenn af níu í mennta- málanefnd konur. Fimm af níu nefndarmönnum í félags- og tryggingamálanefnd, iðnaðar- nefnd, umhverfisnefnd og aðal- menn í utanríkismálanefnd eru konur. Karlar eru í meirihluta í al lsherjar- nefnd, efnahags- og skattanefnd, fjárlaganefnd, samgöngunefnd og sjávarútvegs- og landbúnaðar- nefnd. Í fjárlaga- nefnd eru tíu nefndarmenn af ellefu karlar. Af níu nefndar- mönnum í sjávarútvegs- og land- búnaðarnefnd eru átta karlar. Sex karlar eru af níu nefndarmönn- um í efnahags- og skattanefnd og í samgöngunefnd. Þá eru fimm karlar og fjórar konur í allsherjar- nefnd. „Fjárlaganefnd og utanríkis- nefnd hafa mestan ‚status‘,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson stjórn- málafræðiprófessor um hverjar séu valdamestu nefndirnar. Hann bendir á að sum mál sé skylt að bera undir utanríkismálanefnd. Þá verði hún áhrifamikil ef gengið verði til aðildar viðræðna við ESB, verði ekki skipuð sérstök Evrópunefnd. Fjárlaganefnd hafi hins vegar áhrif á fjárlög í samstarfi við ráðuneytið, þó að nefndar menn breyti ekki megin stefnu fjárlaga. „En nefndar- menn geta haft vald til að greiða götu fólks,“ segir hann. - ss Kynjaskipting í fastanefndum Alþingis: Konur í meirihluta sjö nefnda GUNNAR HELGI KRISTINSSON HÚSNÆÐISMÁL Um fjörutíu full- kláraðar íbúðir eru tómar í Borg- arnesi, að sögn Páls Brynjarsson- ar, sveitarstjóra Borgarbyggðar. „Það hefur verið byggt allt of mikið á þessum litla markaði,“ segir Ingi Tryggvason, fast- eignasali. Jökull Helgason, for- stöðumaður framkvæmdasviðs, segir að sveitarfélagið hafi ekki farið fram úr sér í skipulagsmál- um eins og gerðist á höfuðborg- arsvæðinu, en of mörg hús hafi verið reist. Ingi hefur snúið sér að lögmannsstörfum meðan fast- eignamarkaður liggur í dvala. - jse Fasteignir í Borgarbyggð: Ný og tóm hús NÝBYGGING Í BORGARNESI Um fimmtíu nýjar íbúðir eru tómar í Borgarnesi. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti íslenskra skipa var 3,8 milljörð- um meira á fyrstu tveimur mán- uðum ársins, en á sama tíma í fyrra; fór úr 12,1 milljarði 2008 í tæpa 16 milljarða í ár. Það er 31,5 prósenta aukning. Hagstofan greinir frá þessu. Mest verðmæti fékkst fyrir botnfisk, eða 12,5 milljarðar. Verðmæti þorskaflans var 7 millj- arðar og karfans 1,5 milljarðar og er það mikil aukning frá í fyrra. Verðmæti ýsu dróst hins vegar saman á milli ára, er nú 2,3 millj- arðar en var 2,7. Verðmæti þess afla sem seldur var beinni sölu til vinnslu innanlands jókst um 65,4 prósent á milli ára og nemur nú 7,3 milljörðum króna. - kóp Þriðjungs aukning: Verðmæti afla meira en í fyrra NEYTENDAMÁL Matvöruverð hefur hækkað um rúman fjórðung á síðastliðnum tólf mánuðum sam- kvæmt verðkönnun Alþýðusam- bands Íslands. Mest hefur verðið hækkað hjá lágvöruverslununum, það er að segja Kaskó, Nettó, Bónus og Krónunni, eða um tuttugu til 31 prósent. Minnst er hækkunin hjá þjónustuverslunun- um Nóatúns, fimmtán prósent, og Hagkaupum, tólf prósent. Verðkönnunin nær til tíu verslanakeðja og nær yfir allar almennar mat- og drykkjarvörur. - jse Matarkarfa ASÍ: Hækkaði um fjórðung á ári HÆKKANIR FRÁ SÍÐASTA ÁRI 10-11 20% 11-11 23% Bónus 25% Hagkaup 12% Kaskó 31% Krónan 20% Nettó 26% Nóatún 15% Samkaupum-Strax 28% Samkaupum-Úrval 21% IÐNAÐUR „Það er enn ekki búið að ganga frá samningnum og í huga fjárfesta er málið ekki klárt. Það getur verið mjög hættulegt á þess- um tímapunkti. Hver dagur og vika skiptir máli um hvort menn geti hafist handa,“ segir Árni Sigfús- son, bæjarstjóri í Reykjanesbæ. Hann var spurður um fregnir af því að Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefði beðið um viðbótarupplýsingar um fjárfestingasamning Century Aluminium og ríkisins, vegna Helguvíkur. Í blaðinu í gær var sagt frá því að þetta gæti þýtt að ESA skilaði ekki áliti sínu fyrr en í ágúst. „Ég held það megi hafa miklar áhyggjur. Ég finn fyrir því víðar að fætur erlendra fjárfesta eru farnir að kólna,“ segir Árni. Hann nefnir sem dæmi sólarkísil- verksmiðju Tomahawk, sem sé komin með umhverfismat, lóð, vil- yrði fyrir orku og erlenda áhuga- sama fjárfesta. Málið strandi á iðnaðarráðuneytinu að ganga frá fjárfestingarsamningi. Hann sé þó vongóður um að málið leysist þar. Katrín Júlíusdóttir iðnaðar- ráðherra segir að mikið kapp sé lagt á að fá erlenda fjárfestingu í landið. „Og þessi ríkisstjórn hefur sagt að hún vilji ýta undir hana sérstaklega,“ segir hún. Hún segir gjaldeyrishöftin erfið, spurð um áhrif þeirra. Hún kveður fjárfestingarsamn- ing vegna Helguvíkur í eðlilegu ferli. Ríkisstjórnin hafi átt von á áliti ESA snemmsumars, en ESA hafi áður beðið um skýringar við fjárfestingarsamninga í gegnum tíðina. „Við vinnum samt að mál- inu eins og við getum samhliða því og þegar álitið liggur fyrir verður ekkert að vanbúnaði að undirrita samninginn,“ segir Katrín. - kóþ Hver dagur skiptir máli í fjármögnunarferli Helguvíkur, segir bæjarstjóri: Tafir sagðar mjög hættulegar ÁRNI SIGFÚSSON KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR Ég held það megi hafa miklar áhyggjur. Ég finn fyrir því víðar að fætur fjárfesta eru farnir að kólna. ÁRNI SIGFÚSSON BÆJARSTJÓRI Í REYKJANESBÆ VEÐUR Mikil veðurblíða var á öllu landinu á sunnudaginn. Í Reykja- vík náði hitinn 18,3 gráðum en hlýjast var á Þingvöllum þar sem hitastigið fór mest upp í nítj- án gráður. Þrátt fyrir það frysti á nokkrum stöðum í þarsíðustu nótt og fór hitinn niður í -2,4 gráður á Þingvöllum. „Sólin hitar svo mikið á dag- inn,“ sagði Árni Sigurðsson veður fræðingur. Ekki þykir þessi hitamismunur óeðlilegur í maí að sögn Árna. „Þegar það er léttskýjað og heiður himinn er engin einangr- un, þannig að lofthitinn er fljótur að fara og fljótur að koma,“ sagði Árni. - hds Mikil dægursveifla í veðri: Hitinn lækkaði um 21,4 gráður VIÐSKIPTI „Verkefnið hefur blómstrað,“ segir Katrín Jakobs- dóttir menntamálaráðherra. Hún opnar norrænu leikjaráðstefnuna Nordic Games í Svíþjóð í dag. Norðurlandaráð setti ráðstefn- una á laggirnar árið 2004, þegar Íslendingar fóru síðast með for- mennsku í ráðinu. Katrín veitir þar jafnframt styrki upp á þrjár milljónir danskra króna (tæpar sjötíu millj- ónir króna) sem renna til sex nýrra tölvuleikjaverkefna. Íslendingar eiga tvo aðra full- trúa á ráðstefnunni: Jónas Björg- vin Antonsson, frá Gogogic, og Nathan Richardsson frá CCP. - jab Nordic Games í Malmö: Katrín opnar leikjaráðstefnu SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.