Fréttablaðið - 19.05.2009, Page 4

Fréttablaðið - 19.05.2009, Page 4
4 19. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR Diddy.is Diddy.is dy.is Diddy.is iddy.is Diddy.i ddy is s is Diddy.is Did Didd Did Verslunin hættir 1. júní nk. 3 verð í gangi, 1000 kr , 2000 kr og 3000 kr. Allt á að seljast, full búð ennþá af fallegum og góðum vörum. Endilega kíkið við og gerið góð kaup. Bestu kaupin í bænum. Diddy.is Faxafeni 14 (við hliðina á Bónus) • s: 588 8400 Stelpur, látið þetta ekki framhjá ykkur fara! VIÐSKIPTI „Ég vissi að þetta myndi skella á nú síðla í maí, gekk frá reikningunum í möppur og lét klippa á kortið,“ segir Gunnlaugur Sigmundsson, fyrrverandi fram- kvæmdastjóri fjárfestingarfélags- ins Máttar og stjórnarformaður Icelandair Group. „Allir pappírar eru klárir fyrir bankann og hafa verið það síðan um áramót,“ bætir hann við. Samningur Gunnlaugs sem framkvæmdastjóra rann út um áramótin og hefur hann sinnt verkinu í hjáverkum þar sem eftir- maður hefur ekki fundist. Hann var staddur í Bandaríkj- unum í fyrrakvöld þegar hann fékk að vita af því að Íslands- banki myndi nýta undanþágu- heimild Fjármálaeftirlitsins til að taka yfir 42 prósenta hlut fjárfest- ingarfélaganna Máttar og Nausts í Icelandair Group á genginu 4,5 krónur á hlut. Markaðsverðmæti hlutarins nemur 1,9 milljörðum króna. Óvíst er um stöðu Gunn- laugs en boða þarf til hluthafa- fundar til að gera breytingar á stjórn flugrekstrarfélagsins. Bankinn átti fyrir fimm pró- senta hlut, fer nú með 47 prósenta hlut og er umsvifamesti hluthafi flugrekstrarsamstæðunnar á eftir Langflugi. Ýjað var að því í gær að stutt væri í að hlutir Langflugs færu sömu leið. Fram kemur í tilkynningu bank- ans að aðgerðin hafi engin áhrif á daglega starfsemi félagsins og sé stefnt að því að hluturinn verði seldur aftur í opnu og gagnsæju söluferli eins fljótt og auðið er. Bræðurnir Benedikt og Einar Sveinssynir áttu megnið af hlutunum sem Íslandsbanki tók yfir. Þeir eru meirihluta eigendur Nausts en áttu tæpan helming í Mætti á móti Milestone, félagi bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona. Ástæðan fyrir yfir- tökunni var, líkt og Íslandsbanki bendir á, veðkall þar sem ekki hafði verið staðið við skuldbinding- ar gagnvart bankanum í tengslum við kaup félaganna á hlutabréfum í Icelandair á sínum tíma. Trygging- ar á lánunum voru bréfin sjálf. Bræðurnir allir hafa átt hlutina frá umbrotatímum í hluthafahópi Glitnis gamla (nú Íslandsbanka) í kringum páskana 2007. Málalok voru þau að Karl Wernersson og Einar Sveinsson seldu hlutabréf í bankanum fyrir rúma sjötíu millj- arða króna til Baugs og viðskipta- félaga og fengu greitt að hluta í peningum en að hluta með eignar- hlutum í Glitni sem fylgdi með Mætti. Gengi bréfa í Icelandair var þá í kringum 27 krónur á hlut. Það hefur fallið um 83 prósent síðan þá. jonab@markadurinn.is Íslandsbanki stærsti eigandi Icelandair Stærstu eigendur Icelandair Group misstu eign sína þegar lánveitandinn tók þá með veðkalli. Eignahlutirnir voru að hluta til greiðsla vegna sölu á gamla Glitni. Stjórnarformaðurinn vissi hvert stefndi og gerði klárt fyrir lokun. VIÐSKIPTI Fjórtán prósenta sam- dráttur varð milli ára á veltu kredit- korta í apríl, samkvæmt nýjum tölum Seðlabanka Íslands. Svipaður samdráttur varð í veltu debetkorta, eða þrettán prósent. Heildarvelta kreditkorta var 24,0 milljarðar króna, samanborið við 27,9 milljarða á sama tíma í fyrra. Heildar-debetkortavelta í apríl var 28,8 milljarðar króna, en það er svipuð velta og var í mars. Heildar- velta kreditkorta jókst hins vegar um sextán prósent í apríl miðað við fyrra mánuð. Greining Íslandsbanka segir lítið lát virðast á samdrætti í neyslu heimilanna enda hafi kaupmáttur ráðstöfunartekna minnkað mikið um leið og atvinnuhorfur séu bágar og litlar væntingar um bjartara efnahagsástand. Greiningardeildin getur sér þess til að aukin kredit- kortavelta milli mánaða skrifist á páskana, sem voru í apríl. „Í heild dróst kreditkortavelta að raunvirði saman um 27 prósent á milli ára,“ segir í umfjöllun bankans. Vitnað er til þess að enn slái kortanotkun landans í útlöndum út erlenda kortanotkun hér. „Það sem af er ári hefur halli á þessum korta- jöfnuði milli landa numið að jafnaði 1,7 milljörðum króna á mánuði, en í fyrra var hallinn að meðaltali ríf- lega 3,0 milljarðar.“ Sleginn er sá varnagli að erlendir ferðamenn hér kunni að beita kortum sínum minna en Íslendingar geri í útlöndum. - óká MEÐ KORT Á LOFTI Í nýjum greiðslu- kortatölum Seðlabankans koma fram áhrif páskanna, að mati Greiningar Íslandsbanka. FRÉTTABLAÐIÐ/TEITUR Raunvirði kreditkortaveltu dróst saman um 27 prósent milli ára: Samdráttur neyslu sést í kortunum LÖGREGLUMÁL Ragna Árnadóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, segir að það sé áhyggjuefni að biðlisti eftir afplánun hafi þre- faldast á sex árum. Ragna segir að athuga þurfi hvort hægt sé að finna aðrar lausnir en að fjölga fanga- plássum og þá með afplánun utan fangelsis. Spurning sé hvort hægt sé að rýmka samfélagsþjónustu. Þá komi rafrænt eftirlit til greina en til þess þurfi lagabreytingu. Fréttablaðið greindi frá því nýlega að 182 menn væru nú á biðlista eftir að komast í af plánun. „Við erum að athuga hvort hægt sé að leysa vandann með afplánun utan fangelsis. Ef það er ekki hægt er ekki annað í spilunum en að finna leið til að fjölga fangaplássum en sú vinna er ekki á því stigi að hægt sé að segja hvernig það verði gert,“ segir Ragna. - ghs Dómsmálaráðherra: Vill afplánun utan fangelsis RAGNA ÁRNADÓTTIR „Þetta er einfaldlega aðgerð bankans. Allt verður gert til að rekstur félagsins raskist ekki,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra um veðkall Íslandsbanka á hlutafé Máttar og Nausts í Icelandair Group. Steingrímur var látinn vita hvað væri í bígerð. Haft var eftir Steingrími í apríl að yfirtaka á Icelandair Group væri á döfinni. Hann segir orð sín hafa verið rangtúlkuð. „Það var reyndar vitað að ákveðin félög gætu lent í vandræðum,“ segir hann og bætir við að það liggi í höndum bankanna hversu langt verður að bíða þar til hlutirnir í Icelandair Group verði seldir aftur. BANKINN ÁKVEÐUR SÖLU Á HLUTNUM STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON TVÆR VÉLAR ICELANDAIR GROUP Verðmæti eignarhlutar Íslandsbanka í Icelandair Group eftir yfirtöku á eign tveggja félaga í gær nemur 2,1 milljarði króna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR BÚRMA, AP Aung San Suu Kyi, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Búrma (Myan- mar), kom fyrir rétt í fangelsi í Rangún (Yang- on) í gær. Hún á yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi til viðbótar fyrir meint brot á skilmálum ára- langrar stofufangelsisvistar henn- ar með því að hafa hýst Banda- ríkjamann sem synti til húss hennar í leyfisleysi fyrir skömmu. Stuðningsmenn Suu Kyi söfnuð- ust saman við Insein-fangelsið og sögðust munu standa fyrir mót- mælum um allt land uns hún yrði látin laus. Gildandi stofufangelsis- dómur rennur úr gildi 27. maí. Það þykir ekki koma á óvart að her- foringjastjórnin nýti sér nú hið undarlega mál Bandaríkjamanns- ins sem átyllu til að halda Suu Kyi lengur fanginni. - aa Spenna í Búrma: Réttað yfir Suu Kyi á ný AUNG SAN SUU KYI VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 26° 19° 24° 22° 18° 21° 22° 22° 17° 19° 22° 17° 20° 22° 17° 19° 31° 19° Á MORGUN Hæg breytileg átt. 7 10 10 5 7 10 16 10 16 13 17 18 7 66 FIMMTUDAGUR Hægviðri. 9 14 10 1213 16 8 12 12 1011 16 SVIPAÐ ÁFRAM Ekki eru miklar breyt- ingar á veðrinu í dag frá því sem það var í gær. Áberandi hlýjast verður í innsveitum á Suðurlandi og sunnan til á Vesturlandi. Það verður skýjað norð- austan og austan til og jafnvel dálítil súld austast. Á morgun léttir síðan heldur til á Norðaust- urlandi en áfram verð- ur sýnu þungbúnast austast á landinu. 7 8 3 5 6 8 3 3 3 Sigurður Þ. Ragnarsson Veður- fræðingur Stýrir LV tímabundið Stjórn Lífeyrissjóðs verslunarmanna hefur ákveðið að auglýsa stöðu framkvæmdastjóra sjóðsins fljótlega. Guðmundur Þ. Þórhallsson hefur verið staðgengill framkvæmdastjóra, og mun hann sinna störfum fram- kvæmdastjóra tímabundið þar til ráðið hefur verið í stöðuna. KJARAMÁL Uppboð óskilamuna Óskilamunadeild lögreglunnar mun halda sitt árlega uppboð laugar- daginn 23. maí. Það mun fara fram í Askalind 2a í Kópavogi. Nánari upplýsingar verða birtar síðar. LÖGREGLAN AFGANISTAN, AP Bílalest sem bróðir Hamids Karzai, forseta Afganist- ans, ferðaðist með var veitt fyrir- sát í gær. Sprengjum var varpað að henni og kúlnahríð úr hríð- skotabyssum rigndi yfir hana. Einn lífvörður lét lífið en bróður forsetans sakaði ekki. Ahmad Wali Karzai greindi frá því að bílalest hans hefði verið á leið til Kabúl frá Nangarhar-sýslu í Austur-Afganistan þegar ráðist var á hana í fjalllendi um 40 km frá höfuðborginni. Wali Karzai er forseti héraðsráðs Kandahar- héraðs í Suður-Afganistan. Hann kveðst ekki vita hverjir hafi vilj- að ráða sér bana. - aa Átökin í Afganistan: Ráðist á bílalest bróður forseta DÝRALÍF Svartur svanur sást spóka sig í Álftafirði yfir helg- ina. Ekki þykir það þó sjaldséð sjón að sjá svarta svani lengur. „Síðustu tíu ár hafa verið einn til þrír svartir svanir á svæðinu,“ segir Brynjúlfur Brynjólfsson fuglaáhugamaður. Ekki hafa þó verið margar tilkynningar núna um komu svartra svana. „Þetta er sá eini sem hefur sést í ár, hann kom í vor, sást á Lóninu hjá okkur fyrst,“ sagði Brynjúlf- ur. Svanurinn hefur að öllum lík- indum ratað hingað til lands frá Bretlandi, en svartir svanir eru upprunalega frá Ástralíu. - hds Vorboðar á Austurlandi: Svartir svanir sjást ár hvert GENGIÐ 18.05.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 208,3504 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 125,81 126,41 191,77 192,71 169,38 170,32 22,745 22,879 19,323 19,437 15,977 16,071 1,3149 1,3225 190,39 191,53 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.