Fréttablaðið - 19.05.2009, Síða 6
6 19. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Þór Saari, þingmaður
Borgarahreyfingar, rifjaði upp
atburði vetursins, mótmælin
og viðbrögð ríkisstjórnar
Geirs Haarde við hruninu.
Hin pólitíska
yfirstétt hefði
verið búin að
glata öllum
tengslum við
raunveruleik-
ann.
„Við mót-
mæltum og
við unnum,“
sagði Þór.
Svikastjórnin
hefði hrökkl-
ast frá.
Hann sagði stefnuræðu
forsætisráðherra hafa verið
stefnulausa og gaf ekki mikið
fyrir úrræði stjórnarinnar í
þágu heimila. Leiðrétta þyrfti
vísitölu aftur til byrjunar
árs 2008, sem lækkaði
höfuðstól húsnæðislána um
tuttugu prósent. Síðan ætti
að afnema verðtryggingu,
sækja eigendur fyrirtækja til
saka og frysta eigur þeirra.
Þá mætti afþakka aðstoð
AGS; ekki væri hægt að skera
niður um 170 milljarða á
þremur árum. - kóþ
„Þessi stjórnarmyndun var
vissulega ekki án fórna og
málamiðlana, [...] til dæmis
þegar kemur að þeirri niður-
stöðu stjórnarsamstarfsins
að setja
Evrópumálið
í hendur
Alþingis,
sagði
Steingrímur
J. Sigfússon,
formaður
Vinstri
grænna.
„En við
skulum
varast það
Íslendingar að eyða öllum
okkar kröftum og tíma í
þetta mál,“ sagði hann.
Endurreisn bankakerfisins
ætti að mestu að vera
lokið innan 45 daga, sagði
Steingrímur. Í vikunni kæmu
fulltrúar Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins í heimsókn og
samkomulag AGS og ríkisins
yrði endurskoðað. Einnig
upplýsti hann um samninga-
gerð við norrænar ríkis-
stjórnir og seðlabanka um
gjaldeyrislán, að hún væri á
lokastigi og lánaskilmálar því
sem næst frágengnir. - kóþ
Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson gagnrýndi stjórnar-
flokkana harðlega fyrir að
tala fjálglega um samvinnu
og lýðæðisleg vinnubrögð.
Framsóknar-
flokkurinn
hefði vonast
til þess, sagði
hann, að
hægt væri að
ræða lausnir
við efnahags-
vandanum
óháð því
hvaðan úr
flokki lausn-
irnar kæmu.
Þegar fram-
sóknarmenn hefðu síðan
komið með sínar tillögur,
eins og stjórnin hefði í raun
beðið þá um, hefði hún
ekki einu sinni kynnt sér
þær heldur lagt allt kapp á
að grafa undan tillögunum.
Gagnrýndi hann stjórnina
fyrir að miða allar tillögur
sínar að því að fresta
vandanum, til dæmis með
því að gera ráðstafanir ein-
ungis þegar fjölskyldur og
fyrirtæki væru komin í þrot
í stað þess að koma með
fyrirbyggjandi aðgerðir. - jse
Bjarni Benediktsson
gagnrýndi stjórnarflokkana
í ræðu sinn í gær fyrir
fyrningarleiðina, samskipt-
in við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn, en
þar sagði
hann skorta
gegnsæi,
aðgerða-
leysi í efna-
hagsmálum
og síðan
því hvernig
standa ætti
að aðildar-
umsókn til
Evrópusam-
bandsins.
Sagði hann fyrningarleið
ekki verða til þess að
réttlætið yrði meira né
fiskistofnarnir betri auk
þess sem það hefði þegar
valdið útgerðarfyrirtækjum
skaða með því að koma
á óvissu. Um aðildar-
umsóknina spurði hann
hvers vegna talað væri um
að unnið yrði að málinu
með samráði allra fyrst
þegar væri búið að ákveða
hvernig að málum skyldi
staðið og hvenær þeirri
vinnu yrði lokið. - jse
STEFNURÆÐA FORSÆTISRÁÐHERRA
STJÓRNMÁL Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra lagði áherslu á
Evrópusambandið í stefnuræðu
sinni í gærkvöld. „Við köllum
eftir breiðri samstöðu um aðildar-
umsókn Íslands að Evrópu-
sambandinu,“ sagði hún. „Sæki
Íslendingar um aðild að Evrópu-
sambandinu og hefji formlegar
aðildarviðræður skapast traust-
ari forsendur fyrir stöðugra gengi
íslensku krónunnar og lækkun
vaxtastigs.“
Fram kom í ræðu Jóhönnu að
Seðlabankanum hefði verið falið
að leggja mat á breytta umgjörð
peningastefnunnar, auk þess sem
bankinn myndi á næstunni gefa
út ítarlega skýrslu um fyrirkomu-
lag peningamála með hliðsjón af
hugsanlegri aðild að Efnahags- og
myntbandalagi Evrópu. Jóhanna
lagði áherslu á að aðild að Evrópu-
sambandinu væri ekki, ein og sér,
töfralausn og í þingsályktunar-
tillögu utanríkisráðherra yrðu
gerðir fyrirvarar um grundvallar-
hagsmuni Íslands.
Íslenskir sjómenn, sagði
Jóhanna, hafa mikla þekkingu og
sjávarútvegsfyrirtæki geta keppt
á frjálsum markaði hvar sem er í
heiminum. „Mín framtíðarsýn er
að Ísland verði leiðandi í mótun
og stjórn sjávarútvegsstefnu
Evrópusambandsins og leiðandi
í sjávarútvegi í Evrópu. Ég hef
fulla trú á að það takist.“
Jóhanna minnti á risavaxin
verkefni sem biðu Alþingis og
sagði að alþingismenn hlytu að
nálgast þau af auðmýkt, með því
að leggja alla krafta í að þjóna
fólkinu í landinu og vinna saman
að endurreisn samfélagsins. Við
slíkt verkefni ætti gamaldags
skotgrafarhernaður, sem hefði
of lengi einkennt íslensk stjórn-
mál, ekki við. „Það er kallað eftir
þjóðar samstöðu og það er kallað
eftir nýjum vinnubrögðum.“
Til að ná halla ríkissjóðs niður
um 170 milljarða á næstu þremur
árum þyrftu allir að taka á sig
byrðar. „Allir munu því miður
finna fyrir hinum mikla sam-
drætti, á það vil ég ekki draga
dul.“ En árangur aðhalds hjá rík-
inu myndi skila sér í hraðari upp-
byggingu atvinnulífsins, minna
atvinnuleysi, lægri vöxtum og
meiri stöðugleika.
svanborg@frettabladid.is
Ísland verði leiðandi
í sjávarútvegi Evrópu
Ísland getur orðið leiðandi í sjávarútvegsstefnu ESB og evrópskum sjávarútvegi,
sagði Jóhanna Sigurðardóttir í stefnuræðu sinni í gær. Hún kallaði eftir sam-
stöðu, auðmýkt og nýjum vinnubrögðum við endurreisn samfélagsins.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR Sagði engan geta tekið endanlega afstöðu til ESB-aðildar fyrr en að samningaviðræðum loknum. Ein
og sér væri ESB-aðild ekki töfralausn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STEFNURÆÐA JÓHÖNNU
Hversu oft eftirtalin orð komu fyrir í
stefnuræðu Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra á mánudagskvöld.
Evrópusambandið 22
Þjóðin 21
Ísland 14
Alþingi 9
Landbúnaður 8
Atvinnuleysi 6
Sjávarútvegur 6
Seðlabanki 5
Lán 5
Lýðræði 4
Skuldir 1
Jafnrétti 0
Stóriðja 0
Virkjun 0
Handrið • Glerveggir • Milliveggir
Svalalokanir
ANDRIÐ • GLERVEGGIR • FELLIVEGGIR
www.glerogbrautir.is www.cover.is
Mikið úrval af krókum
handklæðaslám
og fl .
Opið 13-18
Sími: 894 1411 / 861-7540
Norðurhella 10 Hafnarfjörður
Skrýtið
samráð
SIGMUNDUR
DAVÍÐ GUNN-
LAUGSSON
Formaður
Framsóknar-
flokks
BJARNI BENE-
DIKTSSON
Formaður
Sjálfstæðis-
flokks
Samvinna og
lýðræði hvað?
Eyðum ekki
öllu í ESB
STEINGRÍM-
UR JÓHANN
SIGFÚSSON
Formaður
Vinstri grænna
Stefnuræðan
var stefnulaus
ÞÓR SAARI
Þingmaður
Borgarahreyf-
ingar
KJÖRKASSINN
Horfðir þú á Eurovision?
Já 89%
Nei 11%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Hlustaðir þú á stefnuræðu
forsætisráðherra?
Segðu skoðun þína á vísir.is