Fréttablaðið - 19.05.2009, Page 8

Fréttablaðið - 19.05.2009, Page 8
8 19. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR Auglýsingasími – Mest lesið SRÍ LANKA, AP Srí Lanka-stjórn lýsti því yfir í gær að hún hefði lokið við að ráða niðurlögum tamíla- tígranna, uppreisnarhreyfingar aðskilnaðarsinnaðra tamíla á eynni. Smiðshöggið á það verk hefði stjórnarherinn unnið með því að drepa Velupillai Prabhakaran, stofnanda og leið- toga tamílatígra, sem fór fyrir vopnaðri baráttu fyrir sjálfstæðu ríki tamíla í nærri þrjá áratugi. Ríkissjónvarp Srí Lanka rauf útsendingu til að tilkynna um andlát Prabhakarans, og upplýs- ingaráðuneyti ríkisstjórnarinnar sendi smáskilaboð í alla farsíma landsmanna með tilkynningu um dauða hans og næstráðenda, Soosai og Pottu Amman. Tilkynningin hratt af stað mikl- um fjöldafögnuði vítt og breitt um landið. Almenningur streymdi út á götur höfuðborgarinnar Colombo og brast í söng og dans. Srí Lanka-stjórn hefur litið á dauða Prabhakarans sem for- sendu fyrir því að binda enda á skæruhernað aðskilnaðarsinna, þar sem hann hefði getað nýtt sér alþjóðlegan smyglvef sinn og sam- bönd við tamíla búsetta erlendis til að vopna skæruliða á ný. En fall hans í bardaga gæti orðið til þess að gera úr honum píslarvott og hetju í augum annarra aðskiln- aðarsinnaðra tamíla. Á meðan Velupillai Prabhak- aran var hetja í augum sumra voru samtök hans brennimerkt sem hryðjuverkasamtök bæði af yfirvöldum í Bandaríkjunum og Evrópusambandinu. Tamílatígrar voru sakaðir um að bera ábyrgð á hundruðum sjálfsvígssprengju- árása, þar á meðal morðtilræð- inu við Rajiv Gandhi, fyrrver- andi forsætisráðherra Indlands, árið 1991. Tamílatígrar víluðu heldur ekki fyrir sér að þvinga börn til þátttöku í hinni vopnuðu baráttu. Yfirhershöfðingi stjórnarhers- ins, Sareth Fonseka, sagði í sjón- varpinu að herinn hefði á mánu- dagsmorgun upprætt síðustu leifar bardagasveita tamílatígra á umsáturssvæðinu á norðaustur- strönd landsins. Unnið væri að því að bera kennsl á lík Prabhak- arans með óyggjandi hætti. Ráðamenn Evrópusambandsins sögðu í gær að þeir myndu styðja alþjóðlega rannsókn á ásökunum um að stjórnarher Srí Lanka hefði gerst sekur um stríðsglæpi í loka- sókninni, þar sem allt of lítið til- lit hefði verið tekið til óbreyttra borgara sem lokuðust inni á milli víglína. Að minnsta kosti 70.000 manns létu lífið í borgarastríðinu síðan það hófst fyrir 26 árum. audunn@frettabladid.is Tamílatígrar sagðir sigraðir Forsvarsmenn hers og ríkisstjórnar Srí Lanka lýstu því yfir í gær að stríði við skæruliða aðskilnaðarsinn- aðra tamíla væri lokið. Leiðtogi þeirra lægi í valnum. Fjöldafögnuður braust út við tíðindin. FÓLK „Mér var sagt að ég mætti hafa legsteininn hvar sem ég vildi,“ segir Ingibjörg Auður Ingv- arsdóttir. Hún varpaði öndinni létt- ar í síðustu viku þegar hún fékk upphringingu frá Kirkjugörðum Reykjavíkur og henni tjáð að hún fengi að hafa legsteininn við höfða- lag eiginmanns síns. Ingibjörg sagði frá því í Frétta- blaðinu fyrr í mánuðinum hversu vonsvikin hún var þegar hún komst að því að legsteinn lát- ins eiginmanns hennar, og síðar hennar sjálfrar, þyrfti að vera til fóta vegna þess hvernig Gufunes- kirkjugarður er skipulagður. Þar eru legsteinar til fóta við aðra hverja gröf. Ingibjörg segist loks hafa fengið símtal frá starfsmanni Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæmis. Henni var sagt að ekki yrðu framar hannaðir kirkjugarðar með þessu skipulagi og að henni væri frjálst að setja legsteininn við höfðalagið – og þar með við göngu- stíginn – ef henni sýndist svo. Og það ætlar hún að gera. „Ég spurði hann hvort hann gerði sér grein fyrir því að það væri nú ekki beint kristilegt að krossa allt- af öfugan kross yfir manneskju. Það væri nú til þess að koma henni til vítis. Hann sagðist skilja það,“ segir Ingibjörg. Enn fremur hafi hún fengið þau skilaboð að héðan í frá yrðu allir látnir vita af því hvernig málum væri háttað og þeim gefið val um það hvorum megin legsteinninn myndi standa. - sh Ingibjörgu Auði Ingvarsdóttur var létt þegar hún fékk símtal frá Kirkjugörðunum: Legsteininn má setja við höfðalagið GUFUNESKIRKJUGARÐUR Leiðin snúa mót hvert öðru, en þeir látnu snúa í raun allir eins. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN © GRAPHIC NEWS Lýst yfir endalokum borgarastríðs Stjórnarher Srí Lanka hefur drepið Velupillai Prabhakaran, leiðtoga tamílatígra (LTTE), vopnaðrar uppreisnarhreyfingar aðskilnaðarsinnaðra tamíla á Srí Lanka. Herinn segist hafa upprætt skæruliðasveitir Tamílatígra eftir umsátur um síðasta vígi þeirra á norðausturströnd eyjarinnar. 8 km Kilinochchi Puthukkudiyirippu Prabhakaran og tveir aðstoðarmenn drepnir í fyrirsát er þeir reyndu að flýja í sjúkrabíl Mullaittivu INDLAND Kilinochchi Svæði undir stjórn LTTE í apríl 2008 SRÍ LANKA Colombo 80 km Yfir 70.000 manns hafa látið lífið í hinu 26 ára langa stríði. ■ 1956: Þjóðernisminnihluti tamíla missir réttindi er tunga sinhala er gerð að ríkismáli ■ 1976: Hreyfing herskárra aðskilnaðar- sinna, LTTE, stofnuð að frumkvæði Vel- upillai Prabhakaran til að berjast fyrir sjálfstæðu ríki tam- íla á NA-Srí Lanka. ■ 1983: Vopnuð átök hefjast fyrir alvöru. ■ 1987: Indverjar senda friðargæslulið til svæða tamíla en það snýr aftur heim þremur árum síðar. ■ 1993: Liðsmaður LTTE myrðir forseta Srí Lanka, Ranasinghe Premadasa, í sjálfsvígstil- ræði í Colombo. ■ 2002: Stjórnin í Colombo og skæruliðar undirrita vopnahléssamning sem Norð- menn eiga milligöngu um. ■ 2005: Mahinda Rajapaksa kjörinn forseti ■ 2006: LTTE hefur árásir á ný. ■ 2008: Ríkisstjórnin ógildir vopnahlés- samning. ■ Jan. 2009: Herinn tekur höfuðvígi skæruliða í Kilinochchi og Mullaittivu. ■ Maí 2009: LTTE viðurkennir ósigur eftir að herinn upprætir síðasta vígi hreyfingarinnar. Ljósmynd: Getty Images IND- LANDS- HAF Prófessor Ceon Ramon heldur fyrirlestur í heilbrigðisverkfræði við Háskólann í Reykjavík í dag, þriðjudaginn 19. maí, kl. 16:00. Í fyrirlestrinum verður farið yfir sögu mælinga á segul- sviði mannsins, lífsegulmagns, tækni við mælingar og læknis- fræðilega notkun. Erindið verður flutt á ensku. Staðsetning: Stofa 101 í Ofanleiti 2, 103 Reykjavík. Ceon Ramon er prófessor í heilbrigðisverkfræði við Háskólann i Reykjavík og jafnframt í rafmagnsverkfræði við University of Washington. Hann vinnur nú að þróun nýrrar tækni sem felst í raförvun heilans með það að markmiði að meðhöndla flogaveiki og slag. SEGULSVIÐ MANNSINS OG LÆKNISFRÆÐILEG NOTKUN W W W .H R. IS TÆKNI- OG VERKFRÆÐIDEILD HR Fyrirlestur dr. Ceon Ramon í dag kl. 16:00 Í heilbrigðisverkfræði er aðferðum verkfræðinnar beitt á eða í mannslíkamanum til að leysa mismunandi vandamál tilkomin vegna veikinda eða slysa, eða einfaldlega til að bæta lífsgæði og öryggi okkar allra. Oft er það svo, að heilbrigðisverkfræðingar vinna í teymum ólíkra sérfræðinga við þróun aðferða, búnaðar eða notkun þeirra á vettvangi fyrirtæka eða heilbrigðisþjónustunnar. Fylgja Norðmenn ef Íslendingar ganga í ESB? Af hverju höfnuðu Norðmenn ESB-aðild tvívegis? Umræðufundur á Háskólatorgi Háskóla Íslands um ESB-aðild og reynslu Norðmanna af umsóknar- ferlinu. Framsögu hefur norski sérfræðingurinn Dag Seierstad. Seierstad og Jostein Lindland, framkvæmdastjóri, svara fyrirspurnum. Frjálsar umræður eftir því sem tími leyfir. Staður: Háskóli Íslands við Suðurgötu. Háskólatorg (Salur HT 101) Tími: Þriðjudagur 19. maí kl. 12.00-13.15 Af hverju höfnuðu Norðmenn ESB-aðild tvívegis? Hvað geta Íslendingar lært af reynslu Norðmanna? Hvaða undanþágur fengu Norðmenn frá meginreglum ESB? Hver voru samningsmarkmið Norðmanna? Fer fylgi í Noregi við ESB-aðild vaxandi eða minnkandi? ÞJÓÐKIRKJAN Biskupi hefur ekki enn borist skaða- og miskabóta- krafa frá séra Gunnari Björns- syni, sem hann boðaði fyrir hálfum öðrum mánuði. Þetta segir Ragnhild- ur Benedikts- dóttir, skrif- stofustjóri hjá Biskupsstofu. Biskup setti séra Gunnar í tímabundið leyfi frá störfum hans við Sel- fosskirkju síðasta haust þegar hann sætti ákæru vegna kyn- ferðisbrots gegn sóknarbörnum sínum. Hann var síðan sýknaður af ákærunni og hugðist sækja skaða- og miskabætur vegna leyf- isins. - sh Séra Gunnar gegn biskupi: Hefur ekki enn lagt fram kröfu SÉRA GUNNAR BJÖRNSSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.