Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.05.2009, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 19.05.2009, Qupperneq 16
Matti segir allt of marga sem vilja bæta heilsuna flækja mjög einföld atriði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Nýkomnar margar gerðir af opnum dömuskóm. Stærðir 36 - 42 Verð: 10.900.- Næstu fyrirlestrar og námskeið 19. maí Læsi á eigin líðan Bjargey Aðalsteinsdóttir íþróttafræðingur 23. maí Hláturjóga með jákvæðu styrkjandi ívafi Ásta Valdimarsdóttir hláturjógakennari 26. maí Erum við andleg og líkamleg eiturefna- úrgangs-ruslaskrímsli Edda Björgvins leikkona 28. maí Hvað er málið með aukakílóin? Matti Ósvald heilsufræðingur 02. júní Ævintýralíf Benedikta Jónsdóttir heilsuráðgjafi www.madurlifandi.is Tækið sem enginn verður var við. be by ReSound™ er nýjasta tæknibyltingin í heyrnartækjum, hönnun þeirra byggir á algerlega nýrri hugsun. Þau eru hulin í eyrunum og eru svo létt og þægileg að notandinn gleymir því að hann er með þau og aðrir taka heldur ekki eftir þeim. be by ReSound™ er algerlega nýtt úrræði fyrir þá sem þurfa að nota heyrnartæki Algerlega ný hönnun heyrnar- tækja. be by ReSound eru vart greinanleg í eyrunum Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur - heyrn.isHeyrnarþjónustan Tímapantanir 534 9600 YLSTRÖNDIN NAUTHÓLSVÍK er höfð opin frá klukkan 11 til 19 alla daga í sumar til 14. ágúst. Aðgangur að ströndinni, setlaugum, búningsklefum og salernum er ókeypis en greiða þarf 200 krónur fyrir að geyma föt í fatageymslu Ylstrandarinnar. Tóbakslausi dagurinn er haldinn hérlendis 31. maí. Myndamerk- ingar eru sérstakt þema dagsins í ár. Tóbakslausi dagurinn hefur verið haldinn hérlendis frá árinu 1979 í samvinnu við Alþjóðlegu heil- brigðis málastofnunina (WHO). Hvert ár er hann helgaður sér- stöku þema og í ár eru það mynda- merkingar á sígarettupökkum. Að sögn Báru Sigurjónsdóttir hjá Lýð- heilsustöð eru þær taldar ýta undir að fólk hætti reykingum og þannig stuðla að bættum lífsgæðum, auk þess að draga úr dauðsföllum af völdum reykinga. „Þessar myndir eru náttúru- lega mjög lýsandi fyrir þau skað- legu áhrif sem reykingar hafa og fæla marga frá. Svo er þemað í ár afar viðeigandi þar sem Alþingi samþykkti fyrr á árinu lagafrum- varp um myndamerkingar á sígar- ettupökkum sem taka gildi á næsta ári.“ Bára segir kannanir sem gerðar hafa verið á vegum Alþjóðlegu heil- brigðismálastofnunarinnar sýna að slíkar myndir hvetji reykinga- fólk til að hætta. Því verði forvitni- legt að sjá hvaða áhrif þær muni hafa hérlendis. Almennt segir hún kannanir sýna að reykingar séu á undanhaldi á Íslandi og útilokar ekki að reykingabannið sem tók gildi í júní 2007 hafi haft óbein áhrif þrátt fyrir að vera hugs- að sem vinnuverndarlög. „Það væri í takt við það sem hefur gerst erlendis, þar sem dró úr reykingum nokkrum mánuðum eftir að reykingabann var sett á.“ Sjá www.lydheilsustod.is og svo www.who.int/tobacco/en/. - rve Myndamerkingar það sem koma skal Rannsóknir sýna að dregið hefur úr hjartaáföllum þar sem reykingabann hefur verið sett á. NORDICPHOTOS/GETTY „Hugarfarið skiptir auðvitað sköp- um,“ segir heilsuráðgjafinn Matti Ósvald, sem heldur fyrirlesturinn Hvað er málið með aukakílóin? í Manni lifandi í Borgartúni 24 fimmtudaginn 28. maí. Þar fer Matti yfir mikilvægi rétts hugar- fars til að ná árangri í heilsueflingu og ljóstrar upp nokkrum vel völd- um ráðum. „,Við búum til mynd af okkur í huganum eins og við viljum verða. Það þarf að skipta okkur meira máli áður en við förum að gera nokkuð annað,“ nefnir Matti. Hann lærði heildræn heilsufræði við Inter- national School of Bodywork í San Diego, Kaliforníu og hefur á síðustu fimmtán árum rætt um heilsufars- tengd málefni við fjölda Íslendinga. Hann bætir við að til að ná árangri verðum við að læra að setja okkur raunhæf markmið og aðferðir til að uppfylla þessi markmið. Matti bendir jafnframt á að flestir sem ætli sér að bæta heilsuna klikki oft á ótrúlega ein- földum atriðum. „Það er ekki nóg að huga bara að því hvað við setjum ofan í okkur, heldur megum við ekki gleyma að hreyfa okkur. Oft snýst líka betri heilsa um að bæta og einfalda lífsstíl okkar,“ útskýrir hann og nefnir sem dæmi þann algenga misskilning að matvörur sem sagðar eru vera fitulausar eða fitusnauðar eigi að leysa heilsufars- leg vandamál. „Í slíkum tilvikum er einfald- lega nóg að spyrja sig hvort þess- ar tilteknu vörur hafi virkað og við séum að grennast.“ Hann ítrekar að málið snúist um almenna skyn- semi og bendir á hversu hæpið er að halda því til dæmis fram að fitu- snauður ostur eigi að grenna okkur. Staðreyndin sé sú að fituskertur ostur innihaldi yfirleitt meira af bindiefnum en sá fituríki. Fyrirlesturinn er frá klukkan 17.30 til 19.30 í Manni lifandi og er hægt að skrá sig á hann á vef- síðunni www.madurlifandi.is. vala@frettabladid.is Rétt hugarfar skiptir máli Heilsuráðgjafinn Matti Ósvald fjallar um nokkur einföld ráð til að bæta heilsuna í fyrirlestrinum Hvað er málið með aukakílóin? í Manni lifandi. Hann segir rétt hugarfar nauðsynlegt til að ná góðum árangri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.