Fréttablaðið - 19.05.2009, Side 21

Fréttablaðið - 19.05.2009, Side 21
ÞRIÐJUDAGUR 19. maí 2009 17 Hver er í hvaða stríði? Hvaða stríð kemur mér við? Það eru mjög fáar þjóðir sem geta blygðunarlaust sungið glaðbeittar um hið indæla stríð. Tyggjó, nælonsokkaherleg- heit, unaðsstund í fangi lokkandi liðsforingja og allt í gúddí fíling af því við græddum svo mikið á stríð- inu. Þetta er sú stríðsmynd sem oft- ast hefur ratað upp á íslensk leik- svið. Nú kveður aftur á móti við annan tón. Nú erum við orðin ábyrg og farin að átta okkur á því að til þess að skilja stríð verðum við að gera okkur grein fyrir því og helst með því að skella okkur í stríðsleik, finna fyrir því á eigin skinni. Lista- hátíð er hafin og sólin skín í sam- keppni við stjörnur sem þar koma fram. Á laugardagskvöldið var hægt að komast í flóttamannabúðir fyrir framan og inni í gamla Landsbóka- safnshúsinu við Hverfisgötu. Í einfaldri röð öskruðu ungmenni með harðneskjulegan svip og héldu því svipbrigði út alla hina löngu gjörningasýningu. Sólin skein og mannskapurinn raðaði sér kurteisis- lega í einfalda röð langt upp eftir tröppum Þjóðleikhússins sem er jú sem kunnugt er næsta hús við Þjóð- menningarhúsið. Hver og einn fékk passa og þurfti að klína fingraförum í hann. Utan dyra voru ýmis samtök með kynningarbása þannig að leik- ur og alvara blandaðist þar strax. Sumir útdeildu mannréttindayfir- lýsingu Sameinuðu þjóðanna, aðrir gáfu svipmyndir af störfum kristni- boða. Gestir fengu tækifæri til þess að kynna sér hvað hin ýmsu samtök gera til þess að lina þjáningar þess fólks sem vegna stríðsátaka neyð- ist til þess að flýja heimkynni sín. Og enn aðrir sögðu frá konum og stríði og hver staða þeirra er. Konur í stríði áttu svo eftir að bera hitann og þungann í þeirri gjörningarunu sem við tók þegar inn kom. Það stríð sem tekið er til umfjöll- unar er löngu liðið. Eða hvað? Er nokkuð stríð löngu liðið? Meðan enn ólgar stríð og sá viðbjóður sem því fylgir getum við notað Persaflóa- stríðin, Víetnam-stríðið, þrjátíu ára stríðið, bara hvaða stríð sem er til þess að mótmæla fyrirbærinu. Hitt er svo annað mál, hvernig skírskotunin fer fram. Íraksstríðið og hvernig við vorum gerð að glæpa- mönnum með einu pennastriki af misvitrum pólitíkusum hefði kannski verið nær lagi til þess að áhorfendur gætu betur tengt sig við atburðina, en þá kemur náttúrlega vandamálið, æ hvers konar músík er í Írak? Hér var margt að sjá og margt að gleypa, verst að listrænir stjórnend- ur báru ekki gæfu til þess að skera leikþáttinn í miðjunni á efri hæð- inni niður, í helst ekki neitt. Þá hefði verið meira samhengi og hægt að þróa aðra litla myndpósta betur og gefa gestum tækifæri á að horfa, sjá og skynja: Unga stúlkan sem situr og syngur yfir lifandi barni: Segðu það börnum, segðu það góðum börn- um, tyggur hún í sífellu og einhvers staðar handan hornsins laumast þau um systkinin Hans og Gréta. Þau eru kannski fórnarlömb nauðgana eins og stúlkurnar í verkinu, stúlk- urnar í heiminum. Alla vega voru þau mjög flóttaleg og eins hafði einhver tekið sig til og barið Mjall- hvíti allharkalega utan undir, lík- lega bara sjálfur Walt Disney, hver veit? Uppi undir rjáfri fá mjög svo þreyttir leikhúsgestir á þriðja tíma vettvangskönnunarinnar tækifæri til þess að sjá geysigóðan maga- dans og fyrsta bros kvöldsins líður yfir varir einnar dísarinnar. Lítið brjóstalaust stúlkutetur nuddar líkama sinn með áburði og vel- klæddu hjónin látast hafa mikinn áhuga fyrir illa lesnum rímum sem hrökkva af vörum flösukarls þó að eiginmaðurinn ráði ekki við aðdrátt- arafl hinnar beru stúlku. Maðurinn fær störu, konan glerfúl geiflar sig og geiflar til þess að ná athygli síns ektamanns, en litli barnskroppur- inn með rauðan dúsk í klofinu átti athygli hans alla. Gestum er deilt í hópa og hver hópur, rauður, grænn eða blár fylg- ir svo sínum leiðtoga sem lóðsar mannskapinn á mismunandi pósta þar sem stimplað er í þessa passa eftir að einhvers konar fáránleiki hefur farið fram. Eins og til dæmis asnalegar mælingar á handleggja- lengd, eða einhvers konar yfir- heyrslur um eitthvað, bara eitt- hvað. Í upphafi les ungur nýútskrifað- ur leikari upp í anddyri Þjóðmenn- ingarhússins einhverja steypu um þjóðmenningu og hver eða hvað hún nú er. Upphafið var nokkuð gott og benti til þess að hér væri kannski einhver smáhúmor undirliggjandi en það varð nú því miður ekki. Þó svo að margt hafi verið ákaflega vel gert og flestir listamannanna skil- að sínu verki með prýði þá vant- aði húmor í heildina. Kannski má segja að áhrifin sem aðstandendur sýningarinnar hafa beðið eftir þyldi ekki húmor. Til þess að þjást í flóttamanna- búðum verður sá sem ætlar að lifa sig inn í það að þjást í gegnum allt of langa og losaralega sýningu á mörgum hæðum þar sem samheng- inu var ekki beinlínis fyrir að fara. Hóparnir fóru ekki á sömu pósta samtímis og því má segja að sýn- ingin hafi raðast misvel upp fyrir áhorfendur. Innan um allt þetta fólk var svo draumurinn um Walt Disney og töfrasmiðju hans tekinn af lífi og aumingja Rauðhetta garmur- inn þeyttist milli herbergja líklega nýbúin að éta úlfinn því blóðið löðr- aði niður munnvik hennar, nema ef vera skyldi að hún hefði sporðrennt ömmunni. Hans og Gréta voru eins og mállausir jóðlarar fölgrá að reyna að bjarga fólki milli þess sem hávær kraftmikil Balkanhljómsveit þeyttist um eins og til að minna á að við værum einmitt í því stríðinu. Allir þessir gjörningar, öll þessi myndbrot enduðu svo í langdregnu nauðgunaratriði eftir yfirheyrslur ungra kvenna í stærsta sal húss- ins. Þar söng Romy Þorbjarnarson sorgaróð. Fallegur söngur en því miður gafst gestum ekki tækifæri til þess að þakka henni né öðrum listamönnum, sem vissulega áttu þakkir skildar, því enn var öskr- að og mönnum skipað á fætur og enn voru hóparnir lóðsaðir og það alla leið út á hlað þar sem íslensk kvennasöngsveit söng út í loftið. Það má nú samt eiginlega segja að þetta hafi verið ágætur endir og nokkuð snilldarlega til fundið, því niður- staðan getur verið að það er sama hversu mikið af bæklingum eða alvöru hælisleitendum eða hrotta- legum upplýsingum sem sturtað er yfir okkur. Við heyrum fyrst og fremst vella á heiðum hveri. Elísabet Brekkan Hvar hafa Orabaunirnar lit sínum glatað? LEIKLIST Margrét Vilhjálmsdóttir leikkona er höfundur og stjórnandi leiksýningar í Þjóðmenningarhúsi og hefur mátt hafa margar hendur til að koma henni saman. LEIKLIST Ora Orbis Terræ Leikstjóri og listrænn stjórnandi: Margrét Vilhjálmsdóttir. Hrund Gunnsteinsdóttir höfundur leikþáttar inni í heildargjörningi Aðrir listrænir stjórnendur: Karl Ágúst Þórbergssson, Eva Rún, Friðgeir Einarsson Tónlist og hljóðmyndir: Gunnar Tynes Leikmynd og búningar: Þórunn Elísa- bet Sveinsdóttir Einsöngur: Romý Þorbjarnarson Hljómsveitin Varsjárbandalagið. Fjölmargir leikarar, dansarar úr Kram- húsi söngkonur úr Vox Feminae og fjöldinn allur af öðru listafólki tók þátt í sýningunni. ★★ Löng og sundurlaus sýning en full af góðum hugmyndum Hluthafafundur Exista hf. 26. maí 2009 EXISTA hf. ı Ármúla 3 ı 108 Reykjavík ı Sími 550 8600 Hluthafafundur Exista hf. verður haldinn þriðjudaginn 26. maí 2009 í höfuðstöðvum félagsins að Ármúla 3, 5. hæð, Reykjavík, og hefst fundurinn kl. 10:00. Dagskrá: 1. Tillögur til breytinga á samþykktum Exista hf.: a. Breyting á 1. mgr. 11. gr. að aðalfund skuli halda fyrir lok ágúst ár hvert. b. Breyting á 1. mgr. 12. gr. að til hluthafafundar skuli boða á sannanlegan hátt. c. Breyting á 2. mgr. 19. gr. að eigi síðar en viku fyrir aðalfund skal stjórn félagsins leggja fram ársreikning, ársskýrslu stjórnar og endurskoðunarskýrslu og gera aðgengilega fyrir hluthafa. 2. Önnur mál. Tillögur frá hluthöfum sem bera á upp á hluthafafundi skulu vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en sjö dögum fyrir fundinn. Dagskrá og endanlegar tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis viku fyrir hluthafafund. Fundargögn verða afhent á fundardaginn frá kl. 09:30 á fundarstað að Ármúla 3. Reykjavík 19. maí 2009 Stjórn Exista hf. FÆRÐUBRJÓSTSVIÐAEÐA SÚRT BAKFLÆÐI?... ...Nú færðu Losec mups* án lyfseðils í næsta apóteki! Nýtt! annt um líf og líðan Notkunarsvið: Losec Mups sýruþolnar töfl ur innihalda efnið omeprazol sem hemur magasýruframleiðslu. Losec Mups er notað við tilfallandi brjóstsviða og súru bakfl æði. Ekki má nota lyfi ð ef þú ert með ofnæmi fyrir omeprazoli eða einhverju öðru innihaldsefnanna eða samhliða lyfjum sem innihalda atazanavir. Gæta skal varúðar ef þú færð einhver af eftirtöldum einkennum: Verulegt þyngdartap, endurtekin uppköst, kyngingarerfi ðleika, blóðuppköst eða blóð í hægðum. Þá skal hafa samband við lækni. Látið lyfjafræðing vita um önnur lyf sem eru notuð eða hafa nýlega verið notuð. Meðganga og brjóstagjöf: Losec Mups má nota á meðgöngu. Konur með barn á brjósti eiga að leita ráða hjá lækni áður en notkun hefst. Skömmtun: Ein Losec Mups 20 mg tafl a ekki oftar en einu sinni á sólarhring. Ef einkennin hafa ekki horfi ð eftir 14 daga stöðuga notkun skal hafa samband við lækni. Gleypa á töfl urnar heilar með ½ glasi af vökva. Hvorki má tyggja þær né mylja. Töfl urnar má leysa upp í vatni eða einhverjum súrum vökva (t.d. ávaxtasafa) og taka þannig inn. Það skiptir ekki máli hvort Losec Mups er tekið inn með eða án matar. Algengustu aukaverkanir eru: Höfuðverkur, niðurgangur, ógleði/ uppköst, kviðverkir, hægðatregða og aukinn vindgangur. Lesið vandlega allan fylgiseðilinn sem fylgir lyfi nu. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Mars 2009. *Omeprazol

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.