Fréttablaðið - 19.05.2009, Side 24
20 19. maí 2009 ÞRIÐJUDAGUR
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Þriðjudagur 19. maí 2009
➜ Jaðarsport
20.00 BANFF fjallamyndahátið verður
haldin í sal Ferðafélags Íslands að
mörkinni 6 dagana 19. og 20. maí.
Sýndar verða stuttmyndir
um afrek og ævintýri
fólks sem
stundar ýmis
jaðarsport t.d.
fjallamennsku, klifur,
snjóbretti og fjallaskíði.
Nánari upplýsingar á
www.isalp.is.
➜ Tónlist
20.00 Guðrún Árnadóttir fiðluleikari
verður með hugleiðingar um tónlist,
nám og fjölbreytileikann í erindi sem
hún kallar „Er tónlist í pokanum“.
Fyrirlesturinn fer fram að Laugavegi
51. Enginn aðgangseyrir og allir vel-
komnir.
➜ Matur
20.00 Sigríður Gunnarsdóttir og Silja
Sallé kynna bók sína „Sælkeragöngur
um París - 60 uppskriftir að hamingj-
unni á Parísarvísu“ hjá Alliance Fran-
çaise við Tryggvagöta 8.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is
Nýjasta smáskífulag Hafdísar
Huldar nefnist Kónguló og fjall-
ar um franska kóngulóarmanninn
Alain Robert sem er þekktur fyrir
að klífa hæstu byggingar heims-
ins berhentur. Lagið, sem Hafdís
samdi með hjálp vinar síns Tom
Howe, kemur út 1. júní á Íslandi
en 21. júní í Bretlandi og víðar
um heiminn. Það verður að finna
á annarri sólóplötu Hafdísar sem
er væntanleg síðar á árinu.
Hafdís ætlar í stóra tónleika-
ferð um Bretland til að fylgja
smáskífunni eftir. Tónleikarnir
verða fimmtán talsins; þeir fyrstu
26. maí í Manchester en þeir síð-
ustu í London 24. júní. Hægt er að
hlusta á Kónguló á endurbættri
heimasíðu Hafdísar, hafdishuld.
com.
Lag um Spiderman
Kvikmyndin Angels and Demons,
framhald hinnar vinsælu Da Vinci
Code, var aðsóknarmesta mynd-
in vestanhafs eftir frumsýning-
arhelgi sína. Myndin þénaði 48
milljónir dollara og skaut vísinda-
tryllinum Star Trek, sem hafði
vermt efsta sætið, ref fyrir rass.
Tekjurnar voru engu að síður
miklu minni en Da Vinci Code
státaði af eftir sína frumsýningar-
helgi, eða rúmum 77 milljónum
dollara. Angels and Demons er
byggð á samnefndri skáldsögu
Dans Brown og skartar Tom
Hanks í aðalhlutverki. Myndin
hefur ekki verið eins umdeild og
forveri hennar og hefur það vafa-
lítið haft áhrif á aðsóknartölurnar.
Englar og
djöflar efstir
HAFDÍS HULD Nýjasta smáskífulag Haf-
dísar Huldar nefnist Kónguló og fjallar
um Frakkann Alain Robert.
Rokksveitin Vonbrigði hefur gefið
út sína þriðju plötu, Tapír. Fimm
ár eru liðin síðan platan Eðli ann-
arra kom út en á henni voru lög
með gömlu efni frá árunum 1981
til 1985. „Þetta er þannig séð
fyrsta platan í langan tíma með
nýju efni,“ segir Jóhann Vilhjálms-
son. Hallur Ingólfsson, fyrrver-
andi trommari í Ham, stjórnaði
upptökum á plötunni og stóðu þær
yfir í þrjú ár með hléum.
Vonbrigði hefur alla tíð haldið
sama fjögurra manna kjarnanum,
eða síðan hún sló í gegn með laginu
Ó Reykjavík sem hljómaði í mynd-
inni Rokk í Reykjavík. Þrátt fyrir
að hafa ekkert starfað á tíunda ára-
tugnum og allt þangað til síðasta
plata kom út, virðist það ekki hafa
skipt neinu máli. „Við erum alltaf
sömu fjórir upprunalegu meðlim-
irnir, það er dálítið sérstakt,“ segir
Jóhann. „Þetta er okkar hobbí, það
er enginn af okkur í golfi,“ bætir
hann við og hlær.
Nafn plötunnar, Tapír, er tilvís-
un í samnefnt dýr sem hefur verið
hljómsveitinni hugleikið í gegnum
tíðina. „Okkur finnst þetta fallegt
dýr og þetta er líka skemmtilegt
orð,“ segir hann og tekur fram að
myndin af dýrinu á umslagi plöt-
unnar komi úr smiðju Gabríelu
Friðriksdóttur.
Fram undan hjá Vonbrigðum eru
útgáfutónleikar á næstunni auk
þess sem hugurinn leitar út fyrir
landsteinana. Árið 2005 fór sveit-
in í tónleikaferð til Þýskalands og
Póllands sem gekk vel og vonast
hún til að endurtaka leikinn sem
allra fyrst. - fb
Nýtt frá Vonbrigðum
Norðmaðurinn Alexander
Rybak söng sig inn í hjörtu
Evrópubúa með sigurlagi
sínu Fairytale í Eurovision-
keppninni. Þrjú ár eru
liðin síðan hann sló í gegn í
heimalandi sínu.
Alexander Rybak er 23 ára Norð-
maður, sem er reyndar fæddur í
Hvíta-Rússlandi. Þegar hann var
fjögurra ára fluttist hann með fjöl-
skyldu sinni til Noregs, þar sem
hann hefur búið allar götur síðan.
Rybak byrjaði að spila á hljóð-
færi þegar hann var fimm ára,
sem kemur ekki á óvart því móðir
hans er klassískur píanisti og faðir
hans er þekktur fiðluleikari. „Ég
hef alltaf haft gaman af tónlist. Ég
byrjaði að spila á hljóðfæri fimm
ára og núna spila ég á fiðlu og er
líka ágætur á píanói. Mig lang-
aði alltaf að skemmta fólki og ég
lít á það sem köllun mína,“ sagði
Rybak.
Áður en hann tók þátt í Euro-
vision reyndi hann fyrir sér í
norsku Idol-keppninni og í hæfi-
leikaþættinum Kjempesjansen.
Hann komst í gegnum fyrsta niður-
skurðinn í Idol en datt út áður en
sjónvarpið byrjaði að sýna frá
keppninni. Þá ákvað Rybak að
prófa Kjempesjansen og datt líka
út þar í fyrstu tilraun eftir að hafa
reynt að heilla dómnefndina með
því að spila á fiðlu og píanó ásamt
því að syngja í einu og sama lag-
inu. „Ég vildi sýna dómnefndinni
alla mína hæfileika en þeim fannst
þetta of ruglingslegt. Næst þegar
ég tók þátt (árið 2006) einbeitti ég
mér að fiðluleiknum og söngnum
og það borgaði sig,“ sagði hann.
„Ég átti ekki von á því að vinna
Kjempesjansen en það opnaði dyr
fyrir mér sem tónlistarmanni.“ Í
framhaldinu fékk hann hlutverk
í leikritinu Fiðlaranum á þakinu
og starfaði með Morten Harket
úr hljómsveitinni A-Ha. Síðan var
röðin komin að Eurovision og allir
vita hvernig það ævintýri endaði.
Fairytale samdi Rybak þegar hann
var staddur í Álasundi og heill-
aðist upp úr skónum af náttúru-
fegurðinni. „Náttúran var undur-
fögur og ég var með texta um
fyrrverandi kærustu í huga. Þetta
small allt saman.“
Rybak hefur það nú á afreka-
skránni að hafa sett nýtt met í
53 ára sögu Eurovision með því
að næla sér í 387 stig, sem er 169
stigum meira en Jóhanna Guðrún
náði í öðru sætinu. Fyrra stigamet-
ið áttu finnsku skrímslin í Lordi
með 292 stig.
freyr@frettabladid.is
Ævintýri í fallegri náttúru
ALEXANDER RYBAK Norðmaðurinn söng sig inn í hjörtu Evrópubúa með lagi sínu Fairytale í úrslitum Eurovision. NORDICPHOTOS/GETTY
VONBRIGÐI Hljómsveitin Vonbrigði
hefur gefið út sína þriðju plötu, sem
nefnist Tapír.
- bara lúxus
Sími: 553 2075
ANGELS & DEMONS kl. 4, 7 og 10.30 14
STAR TREK kl. 8 og 10 10
MÚMÍNÁLFARNIR(650kr.) kl. 4 - Íslenskt tal L
STATE OF PLAY kl. 10 12
17 AGAIN kl. 4, 6 og 8 L
ÞRIÐJUDAGUR
ER TILBOÐSDAGUR
500 KR
Á A L L A R
M Y N D I R
“Spennandi, fyndin
og hraðskreið út í
gegn! Miklu betri en
Da Vinci Code.”
T.V. - kvikmyndir.is
- M.M.J., kvikmyndir.com500 kr.
500 kr.
500 kr.
500 kr.
500 kr.
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
14
14
12
14
L
L
ANGELS & DEMONS kl. 6 - 9
BOAT THAT ROCKED kl. 10
X-MEN WOLVERINE kl. 6 - 8
14
12
14
ANGELS & DEMONS D kl. 3 - 5 - 6 - 8 - 9 - 10.50
ANGELS & DEMONS LÚXUS D kl. 5 - 8 -10.50
BOAT THAT ROCKED kl. 5.20 - 8 - 10.40
X-MEN WOLVERINE kl. 3 - 5.40 - 8 - 10.20
MÚMÍNÁLFARNIR kl. 3
MALL COP kl. 3
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
5%
14
12
14
L
ANGELS & DEMONS kl. 6 - 9
BOAT THAT ROCKED kl. 6 - 9
X-MEN WOLVERINE kl. 6.30 - 9
DRAUMALANDIÐ kl. 6 - 8 - 10
SÍMI 530 1919
14
14
12
12
16
ANGELS & DEMONS kl. 5.30 - 8.30
X-MEN WOLVERINE kl. 5.40 - 8 - 10.20
STATE OF PLAY kl.5.20 - 8
I LOVE YOU MAN kl. 5.40 - 10.35
CRANK 2: HIGH VOLTAGE kl. 8 - 10.10
SÍMI 551 9000
Ó.H.T., Rás 2
"SPENNANDI, FYNDIN
OG HRAÐSKREIÐ ÚT Í
GEGN! MIKLU BETRI EN
DA VINCI CODE."
- T.V., KVIKMYNDIR.IS
“ENGLAR OG DJÖFLAR
VERÐUR EINN STÆRSTI
SMELLURINN Í SUMAR“
- S.V., MBL
*
* 500 kr tilboðið gildir ekki í lúxus sal og ekki í Borgarbíó
ÁLFABAKKA
KEFLAVÍK
AKUREYRI
SELFOSS
KRINGLUNNI
HANNAH MONTANA kl. 5:50 - 8 - 10:20 L
STAR TREK XI kl. 6 - 8D - 10:40D 10
STAR TREK XI kl. 8 - 10:40 VIP
NEW IN TOWN kl. 8:30 - 10:40 L
NEW IN TOWN kl. 5:50 VIP
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 6D L
OBSERVE AND REPORT kl. 8 - 10:20 16
17 AGAIN kl. 6 L
I LOVE YOU MAN kl. 8 12
THE UNBORN kl. 10:40 16
MONSTERS VS ALIENS m/ísl.tali kl. 5:50 L
STAR TREK XI kl. 8D - 10:30D 10
HANNAH MONTANA kl. 5:50 - 8:20 - 10:30 L
ALFREÐ ELÍASSON OG LOFTLEIÐAMYND kl. 5:30D L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 5:50 L
LET THE RIGHT ONE IN kl. 8 - 10:20 síðasta sýn! 16
STAR TREK XI kl. 8 - 10:30 10
DRAUMALANDIÐ kl. 8 L
KNOWING kl. 10:10 12
HANNA MONTANA kl. 8 L
NEW IN TOWN kl. 10 L
STAR TREK XI kl. 8 - 10:20 10
kvikmyndir.com
Morgunblaðið
Myndin sem allir aðdáendur Hannah
Montana mega ekki missa af
Fór beint á toppin í USA
- Philadelphia Inquirer - - New York Times
ANGELS AND DEMONS kl. 8 - 10:40 14
HANNAH MONTANA kl. 8 - 10:10 L
Empire
Tommi - kvikmyndir.is
Frá Höfundi Lost og Fringe, J.J.Abrams, kemur
STÓRMYND sem gagnrýnendur halda vart vatni yfir!
100/100
The Hollywood Reporter
100/100
Variety
100/100
“In the pop high it delivers, this is the greatest
prequel ever made.” Boston Globe
ÞRIÐJUDAGSBÍÓ
- Í DAG -
KR. 500
GILDIR EKKI Í VIP, Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG Á MYNDIR Í 3D
RÁS 2