Fréttablaðið - 25.05.2009, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 25.05.2009, Blaðsíða 13
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 „Stóllinn sem ég sit í tilheyrði for- eldrum mínum. Þau eru frekar nýfallin frá og þetta er stóll sem faðir minn sat mikið í síðustu árin og er mér því mikils virði,“ segir Þórhallur Vilhjálmsson mark- aðsfræðingur en hann á notalegt heimili í Þingholtunum. „Ég er gefinn fyrir antík og gamla muni án þess þó ég sanki miklu að mér. Flest sem ég á er með einhverja sögu á bak við sig. Glenn Barkan, maðurinn minn, er gyðingur og eigum við því líka skemmtilega hluti eins og menorah-kertastjaka sem tek- inn er fram á Hanukkah,“ segir Þórhallur einlægur en auk þess að eignast skemmtilega muni í Bandaríkjunum eignaðist hann þar tíkina Honey. „Hún var keypt fyrir tíu dollara í Los Angeles fyrir tíu árum. Hins vegar kost- aði 300.000 krónur að flytja hana heim til Íslands þegar við fluttum hingað árið 2004,“ segir Þórhallur og hlær. Þórhallur á sér griðastað á heimilinu en leitar þó líka eftir slökun annars staðar. „Sú slökun er reyndar tölu- verð vinna,“ segir hann og held- ur áfram: „Ég syng í Mótettukór Hallgrímskirkju en sú vinna er mér ljúf og skyld. Það sem mér þykir skemmtilegt við að syngja í Mótettukórnum er hvað hann er krefjandi. Aðaláherslan er á tónlistina.“ Mótettukórinn held- ur vortónleika sína annan í hvíta- sunnu, 1. júní, klukkan 17 en sama dag syngur kórinn fyrir Dalai Lama. „Á tónleikunum flytjum við Messu fyrir tvo kóra án undir- leiks eftir Svisslendinginn Frank Martin en þetta er með fegurstu og mest krefjandi kórverkum sem til eru. Tónverkið Hallgrímur lýkur Passíusálmunum eftir Jón Hlöðver Áskelsson verður frum- flutt í nýrri endurgerð og nokkur verk af geisladisknum Ljósið þitt lýsi mér sem kórinn gaf út nýverið og inniheldur sautján íslensk kór- verk, bæði gömul og ný,“ útskýrir Þórhallur áhugasamur og nefnir að í framhaldi af vortónleikun- um leggi kórinn land undir fót. „Þá höldum við í tónleikaferð og syngjum á AIM-hátíðinni á Akur- eyri, í Blönduóskirkju, Stykkis- hólmskirkju og í Reykholtskirkju en tónleikarnir á Blönduósi og Stykkishólmi eru til styrktar org- elsjóðum kirknanna,“ segir Þór- hallur og hlakkar til. hrefna@frettabladid.is Stóllinn hans pabba Þórhallur Vilhjálmsson markaðsfræðingur á notalegt heimili þar sem hann nýtur þess að sitja í stól sem hann erfði eftir foreldra sína. Þar hlustar hann á Gufuna en lætur þó líka í sér heyra þegar hann syngur. Tíkin Honey var á sínum tíma keypt í Bandaríkjunum á tíu dollara en býr nú hjá Þórhalli og Glenn í Þingholtunum. Hér situr Þórhallur í uppáhalds stólnum sínum sem faðir hans eyddi löngum stundum í. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI NÝ STARFSSTÖÐ Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var opnuð 18. maí í Sóltúni 26. Ætlunin er að bæta þjónustu og leiðbeiningar við þá sem eiga í verulegum greiðsluerfiðleikum. www.fjolskylda.is Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is þú getur a taf re tt þ g á Siemens Nú eru allar Siemens þvottavélar á tilboðsverði. Láttu sjá þig og gerðu góð kaup. Sama hvernig viðrar, – ll i i .

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.