Fréttablaðið - 25.05.2009, Blaðsíða 30
22 25. maí 2009 MÁNUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
HVAÐ SEGIR MAMMA?
LÁRÉTT
2. læra, 6. óreiða, 8. lón, 9. tímabils,
11. skóli, 12. standa sig, 14. hlutdeild,
16. í röð, 17. sigti, 18. kæla, 20.
skammstöfun, 21. yndi.
LÓÐRÉTT
1. morð, 3. skammstöfun, 4. austur-
afríkuríki, 5. herma, 7. ráðning, 10.
kvabb, 13. skjön, 15. lækka, 16. tugur,
19. tvíhljóði.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. lesa, 6. rú, 8. hóp, 9. árs,
11. ma, 12. pluma, 14. aðild, 16. tu,
17. sía, 18. ísa, 20. al, 21. unun.
LÓÐRÉTT: 1. dráp, 3. eh, 4. sómalía,
5. apa, 7. úrlausn, 10. suð, 13. mis,
15. dala, 16. tíu, 19. au.
„Þetta
er stelpa
sem fer
hljótt og
er ekki að
berja sér
á brjóst.
Hún er
töffari í
sér og er
ferlega
dugleg. Hún er líka búin að
vera í boltanum frá því að hún
var tíu ára og er í píanónámi
Tónlistarskóla Hafnarfjarðar,
en þetta gerir hún sjálf, allt án
pressu frá okkur foreldrunum.“
Björg Jóhannesdóttir, móðir Maríu Lindar
Sigurðardóttur, sem var dúx Kvenna-
skólans og með tíu í einkunn á öllum
lokaprófum þessa árs.
Sex af fremstu tökustjórum Holly-
wood eru væntanlegir til landsins
í dag og hyggjast skoða náttúru
Íslands í fylgd íslenskra fram-
leiðslufyrirtækja. Tökustjórar (e.
location managers) eru hálfgerð
augu Hollywood en þeirra hlut-
verk er að finna heppilegustu töku-
staðina fyrir stórmyndir frá kvik-
myndaborginni.
Hvorki nöfnin né andlitin á þess-
um aðilum sem hafa boðað komu
sína hingað eru heimsþekkt. Þetta
eru engu að síður mennirnir sem
ráða ansi miklu um hvar kvik-
myndir eru teknar og vinna mikil-
væg störf bak við tjöldin. Má
þar meðal annars nefna Kokayi
Ampah sem hefur verið Clint East-
wood innanhandar að undanförnu
og rakst meðal annars á svartar
strendur Sandvíkur fyrir Flags
of Our Fathers. William Bowling
kemur einnig til landsins en hann
sá um að finna tökustaði fyrir kvik-
myndir á borð við Saving Private
Ryan, The Horse Whisperer og The
Fisher King. Þá má einnig nefna
Michael J. Burmeister en hann á
heiðurinn af tökustöðunum í Term-
inator Salv ation, Transform ers
og National Treasure. Sem sagt
þungavigtarmenn í því starfi sem
gæti reynst Íslandi happadrjúgt á
komandi árum.
Einar Tómasson hjá Film in Ice-
land segir þetta vera eitt umfangs-
mesta markaðssetningarverkefni
sem fyrirtækið hafi ráðist í. „Ég
veit ekki til þess að þetta hafi
verið gert áður,“ útskýrir Einar og
telur að þarna liggi mikil sóknar-
færi fyrir íslensku fyrirtækin sem
starfi innan þessa geira. Á meðan
á dvöl hinna erlendu gesta stend-
ur munu þeir ferðast um nágrenni
höfuðborgarsvæðisins og svo
halda til Hornafjarðar, en svæð-
ið þar um kring hefur verið ansi
vinsælt meðal kvikmyndagerðar-
manna utan úr heimi. Einar kveðst
ákaflega spenntur yfir því hvern-
ig þessi samkunda gangi. „Menn
verða að hafa það í huga að þessir
náungar eru alltaf að störfum, eru
alltaf að leita að heppilegum töku-
stöðum.“ freyrgigja@frettabladid.is
EINAR TÓMASSON: ÞUNGAVIGTARFÓLK FRÁ AMERÍKU VÆNTANLEGT
Augu Hollywood til Íslands
SPENNTUR Einar Tómasson segir þessa ferð vera eitt umfangsmesta markaðssetn-
ingarverkefni sem Film in Iceland hafi ráðist í. Sex tökustjórar frá Hollywood eru
væntanlegir til landsins á mánudaginn og munu þeir ferðast um landið og sjá allt
það besta sem náttúra Íslands hefur upp á að bjóða. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Þetta er fyrsta aðalhlutverkið mitt í
íslenskri bíómynd og þótt víðar væri leitað,“
segir Stefán Karl Stefánsson, stórleikari í
Los Angeles. Hann leikur aðalhlutverkið í
nýjustu kvikmynd Ólafs Jóhannessonar, Lax-
dæla Lárusar Skjaldarsonar, sem fer í tökur í
sumar. Stefán leikur þar áðurnefndan Lárus,
borgarbarn með allt niðrum sig. Hann ákveð-
ur að breyta um umhverfi, flytjast vestur og
taka að sér uppbyggingu Sláturhússins í Búð-
ardal. „Mér líst bara ljómandi vel á þetta, ég
verð á landinu í sumar við að kynna plötuna
mína þannig að þetta hentaði mér bara mjög
vel,“ segir Stefán. Annars ganga upptökur
á plötunni vel, meira að segja fyrrverandi
trommuleikari Doobie Brothers og Neil Dia-
mond hefur lamið húðirnar í sumum lögun-
um en hún kemur út 23. júní.
En aftur að myndinni. Stefán hreifst af
handritinu sem hann fékk í hendurnar og
lýsir myndinni sem klassískri, íslenskri
mynd. Tökuliðið verður í Búðardal í tuttugu
daga en meðal annarra leikara Laxdælu má
nefna Eggert Þorleifsson og Ágústu Evu
Erlendsdóttur.
Annars varð leikarinn fyrir miklu áfalli
nýverið því golfsettinu hans var stolið úr
bílskúrnum hans. Stefán er annálaður kylf-
ingur með golfbakteríu á hæsta stigi og því
var þjófnaðurinn honum mikill harmur.
„Nágranni minn er fyrrverandi FBI-fulltrúi
og hann fór strax að rannsaka málið, honum
fannst fyndið að einhver skyldi stela golf-
settinu mínu með laganna vörð í götunni,“
segir Stefán sem hefur því ekkert getað
stundað golfið það sem af er sumri. „Ég fór
meira að segja upp á golfvöll og spurði hvort
það væri einhver möguleiki á að ég hefði
gleymt golfsettinu, það var bara hlegið að
mér.“ - fgg
Stefán Karl kemur heim í Búðardal
Í ÍSLENSKT BÍÓ Stefán Karl leikur verkfræðinginn
Lárus Skjaldarson sem breytir um umhverfi og flytur
í Búðardal.
Skoskar húsmæður í smábænum Hamilton á Skot-
landi urðu heldur betur hvumsa þegar þær mættu
með börnin sín og
ætluðu að leyfa
þeim að sjá hetj-
una þeirra úr
sjónvarpi; Sport-
acus, eða Íþrótta-
álfinn. Samkvæmt
skipulagðri dagskrá mikillar
matarhátíðar átti Sportacus að mæta á
svæðið og sýna listir sínar. Mæðurn-
ar létu ekki rigningu á sig fá enda
krakkarnir alveg óðir af spenningi
yfir því að sjá íslensku ofurhetjuna.
„Við urðum alveg rosalega reiðar
þegar við sáum að þetta var ekki
Magnus Scheving heldur einhver
ástralskur táningur í ljótum búningi með yfirvarar-
skegg sem var alltaf að detta,“ segir Mairi Breen í
samtali við staðarblaðið, The Hamilton Advertiser.
Breen bætir því reyndar við að krakkarnir hafi ekki
getað greint muninn en mæðurnar hafi orðið virki-
lega sárar fyrir þeirra hönd, að þarna væri vis vít-
andi verið að
reyna að blekkja
þau með augýs-
ingum. Helst þótti
henni súrt í broti
að þurfa að standa
í grenjandi rigningu
og hávaðaroki til að horfa á ein-
hverja eftirlíkingu. En þótt krakk-
arnir hafi tekið Ástralanum vel voru
mæðurnar ekki sama sinnis því í
ljós kom að þær höfðu einnig verið
spenntar fyrir að sjá hinn spengilega
Scheving hoppa um sviðið í smá-
bænum. „Það er skárra að horfa á
hann en Barney úr Flinstones,“ segir
Breen. Talsmaður hátíðarinnar vísaði öllum ásökun-
um um svik á bug, sagði ástralska unglinginn vera
löglegan Sportacus samkvæmt vörumerkjaskráningu
Latabæjar. - fgg
Húsmæður í skoskum smábæ
brjálaðar út í Magnús Scheving
VAR EKKI Á SKOTLANDI Magnús
Scheving sendi ástralskan staðgengil til
smábæjarins Hamilton en það vakti ekki
mikla lukku hjá skoskum húsmæðrum
sem hafði hlakkað til að sjá íslenska
Íþróttaálfinn.
Edda Björgvins
og Helga Braga
Verð á mann í tvíbýli:
84.900kr.
26.–28. júní 2009
Innifalið: Flug með sköttum og
öðrum greiðslum, akstur til og frá
flugvelli erlendis, gisting á 4* Hotel
Square og sjálfsstyrkingarnámskeið.
Njóttu lífsins í Køben með
frábærum konum. Sjálfs-
styrking, hlátur og tóm gleði!
Nánari upplýsingar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Konur hlæja
saman í Køben
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
w
w
w
.t
h
is
.i
s
/k
ro
s
s
g
a
tu
r
250
ÓKEYPIS
KROSSGÁTUR
NÝ GÁTA
Í HVERRI VIKU
Hún vakti mikla athygli,
fréttin um rauðleita
drykkinn hennar
Jóhönnu
Guðrúnar,
sem einhverjir
héldu fram að
væri rauðvín.
Jóhanna vísaði því á
bug enda bindindismanneskja fram
í fingurgóma. Hið sama verður ekki
sagt um landa Jóhönnu Guðrúnar því
samkvæmt heimasíðu Vínbúðanna
jókst áfengissala um 35 prósent um
Eurovision-helgina miklu. Mestu
munaði þar um bjór og því ljóst að
margir hafa setið með einn kaldan
og fagnað silfrinu í Moskvu.
Reyndar virðist vera
komið babb í bátinn
með annað sætið
því samkvæmt
nýlegum fréttum
var allt í rugli hjá
norska ríkis-
sjónvarpinu
með símakosninguna. Þau atkvæði
sem voru talin upp frá Noregi voru
ekki frá áhorfendum heldur ein-
göngu dómnefndum. Eins og margir
eflaust muna þá gáfu Norðmenn
Íslendingum tólf stig en þau tryggðu
einmitt Óskari Páli Sveinssyni
annað sætið á lokasprettinum. Nú er
því bara að krossa fingur og vona að
álit norsku þjóðarinnar endurspegli
álit dómnefndarinnar.
Og Björgólfur Thor og eiginkona
hans, Kristín Ólafsdóttir, voru meðal
stjarnanna í veislu hjá Paul Allen,
öðrum af stofnendum Microsoft, í
Cannes. Sumir myndu vilja meina
að þarna væri augljóst merki um að
heimskreppan hefði ekki grafið um
sig hjá hjónakornunum. Hins vegar
má mörgum vera ljóst að nærvera
Björgólfs og Kristínar
toppar ekki dvöl þeirra
frá árinu 2007 þegar
Brad Pitt, Angelina Jolie
og George Clooney
mættu í partí til þeirra
sem haldið var um
borð í skútunni The
Parsifal.
FRÉTTIR AF FÓLKI