Fréttablaðið - 25.05.2009, Side 25
MÁNUDAGUR 25. maí 2009 17
Það var fullur salur fólks mætt-
ur á Nasa á laugardagskvöldið til
að hlusta á bandarísk-mexíkósku
söngkonuna Lhasa de Sela. Hún var
að senda frá sér sína þriðju plötu
og fylgir henni eftir með tónleika-
ferðalagi í haust, en tók forskot á
sæluna til að spila á Listahátíð í
Reykjavík. Dagskrá tónleikanna
hófst á upphafslagi nýju plötunn-
ar, Is Anything Wrong, næst kom
Bells af sömu plötu og svo nýja
smáskífulagið Rising. Með söng-
konunni spilaði fjögurra manna
hljómsveit skipuð hörpuleikara,
kontrabassaleikara, trommuleik-
ara og gítarleikara sem einnig
greip í stálgítar og banjó.
Það sem einkennir tónlist Lhasa er
röddin og söngurinn hennar og svo
þessi frekar óvenjulega blanda af
poppi og amerískri og evrópskri
þjóðlagatónlist. Hún syngur líka
á þremur tungumálum, spænsku,
frönsku og ensku, en nýja plat-
an hennar er öll á ensku. Af átján
lögum sem flutt voru á tónleikun-
um á laugardagskvöldið voru ell-
efu af nýju plötunni. Hún hljómar
ekki alveg jafn spennandi og fyrri
plöturnar tvær við fyrstu hlustun,
en vinnur á og maður fékk sterk-
ari tengingu við lögin með því að
sjá og heyra þau flutt á tónleikum.
Það heyrðist að hljómsveitin var að
spila þessi lög í fyrsta sinn opin-
berlega, en smá hik hér og þar kom
ekki að sök, Lhasa gaf sig að fullu
í tónleikana, spjallaði á milli laga
og skilaði fínum og innilegum tón-
leikum. Hljómburðurinn var líka
góður.
Það er alltaf svolítið öðruvísi
stemning á Listahátíðartónleik-
um heldur en öðrum tónleikum.
Það vakti t.d. athygli mína á laug-
ardagskvöldið að þrátt fyrir að
tónlistin væri mjög lágstemmd á
köflum þá var hið alræmda Nasa-
skvaldur ekki að trufla. Tónleika-
gestir höfðu bara hljótt. Eftir
fimmtán lög og mikið uppklapp
kom sveitin aftur á svið. Fyrst
sungu þau fimm saman lagið Small
Song af The Living Road, svo
kom Sam Cooke-lagið A Change
Is Gonna Come í
ágætri útgáfu
og loks lokalag
nýju plötunnar,
Anyone and
Every one.
Trausti Júlíusson
Innileg
stund á Nasa
LHASA DE SELA Á NASA
Listahátíð í Reykjavík
Nasa við Austurvöll
★★★★
Bandarísk-mexíkóska söngkonan
Lhasa de Sela olli aðdáendum sínum
ekki vonbrigðum á Nasa á laugar-
dagskvöldið.