Fréttablaðið - 12.06.2009, Síða 2
2 12. júní 2009 FÖSTUDAGUR
LÖGREGLUMÁL Gúmmíbáturinn sem
notaður var til þess að sækja 109
kíló af fíkniefnum sem voru um
borð í skútunni Sirtaki við Papey
um miðjan apríl var í eigu Sig-
urðar Hilmars Ólasonar, sem nú
situr í gæsluvarðhaldi, grunað-
ur um aðild að fíkniefnasmygli,
peningaþvætti og samstarf við
erlendan glæpahring. Í því máli
voru sex menn handteknir, fimm
Íslendingar og
Hollendingur.
Þeir sitja allir
í gæsluvarð-
haldi.
Sigurður, sem
er 54 ára, var
handtekinn á
skrifstofu sinni
í fyrirtækinu
R. Sigmunds-
syni á mánudag. Hann er stjórn-
armaður í félaginu og einn af eig-
endum þess. Hann hlaut þriggja
ára dóm fyrir aðild að smygli á
þrjátíu kílóum af hassi til lands-
ins árið 2001.
Ársæll Snorrason, góður vinur
Sigurðar, var einnig handtek-
inn á mánudag vegna málsins
og situr í varðhaldi. Hann hefur
áður hlotið dóm fyrir innflutn-
ing á tugum kílóa af fíkniefnum.
Þá situr þriðji maðurinn, Gunnar
Viðar Árnason, einnig í varðhaldi
vegna þess.
Í Papeyjarsmyglinu svokall-
aða fóru þrír Íslendingar á báti
Sigurðar út í Papey frá Djúpa-
vogi, sóttu fíkniefnin og voru
síðan handteknir í landi. Hinir
þrír voru handteknir um borð í
skútunni á fleygiferð á flótta frá
lögreglu. Málið er umfangsmesta
fíkniefnamál sem upp hefur
komið hérlendis.
Sigurður Ólason er umsvifa-
mikill athafnamaður og er
skráður eigandi að um tuttugu
fyrirtækjum. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins er hann auk
þess einn af eigendum R. Sig-
mundssonar. Hann keypti fyr-
irtækið ásamt tveimur öðrum
af Steins nesi ehf., dótturfélagi
SPRON, í janúar, í gegnum félag-
ið Polar Group, gegn tugmilljóna
láni frá bankanum sjálfum.
Þá á Sigurður einnig ýmis fjár-
festingarfélög og fyrirtæki í veit-
inga- og fasteignarekstri. Eitt
þessara félaga, Hollís ehf., stofn-
aði hann nýlega með Hollendingi
og Ísraela og grunar lögreglu að
hann hafi notað fyrirtækið til að
þvætta ágóða af fíkniefnavið-
skiptum hinna tveggja víða um
Evrópu.
Sigurður er enn fremur skráð-
ur fyrir fatamerkjunum Inmate,
Criminal Record og Bastille, en
fyrirhugað var að framleiða föt
undir þeim merkjum í íslenskum
fangelsum.
stigur@frettabladid.is
Sigurður Ólason átti
Papeyjargúmbátinn
Gúmmíbátur sem notaður var til að sækja 109 kíló af fíkniefnum í Papey í apríl
var í eigu manns sem nú situr í gæsluvarðhaldi grunaður um umfangsmikið
peningaþvætti, tengsl við alþjóðlegan glæpahring og aðild að fíkniefnasmygli.
GÚMMÍBÁTUR SIGURÐAR Báturinn er af gerðinni Valiant DR-620 og er metinn á
nokkrar milljónir króna. Hér er hann við höfnina á Djúpavogi. MYND/ÓLAFUR BJÖRNSSON
SIGURÐUR ÓLASON
BÖRN „Margar smáar upphæðir
gera eina stóra og einhvers stað-
ar verður að spara,“ segir Aðal-
steinn Sigfússon, félagsmála-
stjóri Kópavogsbæjar. Sýningar
Brúðubílsins á gæsluvöllum bæj-
arins, sem hafa verið fastur liður
á sumrin í fjölda ára, hafa verið
felldar niður í sumar.
Aðalsteinn segir Kópavogs-
bæ hafa aukið við félagsþjónustu
milli ára. „Það fer hins vegar í
fjárhagsleg framlög til heimil-
anna. Ég skil vel að sumir verði
fúlir vegna Brúðubílsins.“
Helga Steffensen leikhússtjóri
Brúðubílsins segir sýningar verða
í Reykjavík út júní og júlí. „Allir
eru velkomnir,“ segir Helga. - kg
Niðurskurður hjá bæjarfélagi:
Enginn Brúðu-
bíll í Kópavogi
VIÐSKIPTI Hugsanlegt er að Act-
avis sé annað þeirra tveggja
fyrirtækja sem þýska sam-
heitalyfjafyrir-
tækið Stada er
að skoða kaup á
að öllu leyti eða
að hluta standi
slíkt til boða.
Þetta hefur
Bloomberg-
fréttaveitan
eftir Harm-
ut Tetzlaff,
stjórnarfor-
manni Stada, að loknum aðal-
fundi félagsins en hann sagði
félagið nú skoða kaup á öðrum
samheitalyfjafyrirtækjum sem
í fyrra voru of hátt verðlögð en
hafi í kjölfar kreppunnar fengið
öllu bærilegri verðmiða.
Stada er sjötta umsvifamesta
samheitalyfjafyrirtæki heims.
Bloomberg segir Actavis og
þýska fyrirtækið Ratiophram
koma helst til greina. - jab
Þjóðverjar sagðir skoða Actavis:
Verðið betra nú
en fyrir ári
RÍKISFJÁRMÁL Árni Páll Árnason
félagsmálaráðherra telur „óhjá-
kvæmilegt að gefin verði skýr
fyrirheit um lækkun hæstu launa,
stórhert aðhald í yfirstjórn ríkis-
ins, umtalsverðan sparnað í utan-
ríkisþjónustu og verulega aukinn
aga í öllum rekstrarútgjöldum rík-
isins, til þess að unnt sé að taka
ákvörðun um hver hlutur öryrkja
og aldraðra eigi að vera í þeirri
þjóðarsátt sem fram undan er“.
Hann vill ekki staðfesta að til
standi að skerða bætur til þessara
hópa. „Nei, en fólk kallar auðvitað
eftir því að sjá hver er hin raun-
verulega samstaða um aðhaldsað-
gerðir. Við viljum sjá merki þess
að allir séu að taka á eftir getu,
áður en við leitum eftir framlög-
um frá þeim sem lakast standa, til
að bjarga efnahagslífinu.“
Mjög mikilvægt sé að fá heild-
armyndina, 170 milljarða gatið,
áður en teknar verði endanlegar
ákvarðanir um niðurskurð þessa
árs. Hann hafi ekki enn séð hvern-
ig það skuli gert.
„Við erum ekki komin nógu langt
í vinnunni til að loka árinu 2009.
Við getum ekki tilkynnt um niður-
skurð fyrr en við getum myndað
samfélagslega samstöðu um hann.
En eitt er víst: við brúum ekki 170
milljarða bilið með framlögum frá
öryrkjum og öldruðum.“ - kóþ
Félagsmálaráðherra segir heildarmynd niðurskurðar ríkisstjórnar ekki enn tilbúna:
Ráðherra vill skýr fyrirheit frá hinum
ÁRNI PÁLL ÁRNASON „Við brúum ekki
170 milljarða bilið með framlögum frá
öryrkjum og öldruðum,“ segir ráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Ása, verður þetta þá nokkuð
fyrirmyndarsumar?
„Þetta unga fólk eflist og tvöfaldar
sig og þetta verður því fyrirmyndar-
sumar.“
Sumarhópar á vegum Hins hússins
voru skornir niður í ár og hóparnir eru
færri en áður. Sumarstarfið var þó valið
fyrirmyndarverkefni hjá Evrópuráðinu í ár.
Ása Hauksdóttir er deildarstjóri menning-
armála hjá Hinu húsinu.
LÖGREGLUMÁL Rúmlega þrítugur
karlmaður var fluttur slasaður á
sjúkrahús um miðjan dag í gær
eftir að hafa orðið fyrir vélhjóli á
Hverfisgötu.
Aðdragandi slyssins er ekki að
fullu ljós en svo virðist sem mað-
urinn hafi gengið í veg fyrir hjól-
ið, að sögn varðstjóra lögreglu.
Vegfarandinn er ekki alvarlega
slasaður, en þó hafður undir eft-
irliti yfir nótt að sögn læknis á
Landspítalanum.
Slysið varð um tuttugu mínútur
yfir tvö, og voru nokkrir sjúkra-
bílar sendir á vettvang, auk lög-
reglubíla. Vinnu á vettvangi var
lokið um klukkan þrjú. - sh
Einn fluttur á slysadeild:
Varð fyrir vél-
hjóli og slasaðist
BJÖRGÓLFUR THOR
BJÖRGÓLFSSON
MENNTUN Um fimmtíu nemendur söfnuðust saman
á Austurvelli í gær og létu í ljós óánægju sína með
lánasjóðssamningana sem meirihluti stjórnar LÍN
undirritaði fyrr um daginn. Fulltrúar nemenda í
stjórninni skrifuðu ekki undir samninginn.
Hildur Björnsdóttir, formaður Stúdentaráðs,
segir að nemendur muni taka Katrínu Jakobsdóttur
menntamálaráðherra tali þegar hún kemur af ríkis-
stjórnarfundi í dag en þá mun hún taka málið fyrir.
„Hún ætlar að leggja til að það verði einhver til-
færsla í kerfinu þannig að Lánasjóðurinn fái meiri
peninga og þá verður kannski hægt að breyta þessu
eitthvað,“ segir Hildur.
Hún segir enn fremur að nýi samningurinn hafi
komið flatt upp á nemendur eftir miklar umræður
um nauðsyn þess að hækka námslán nemenda nær
því sem nemur lægstu atvinnuleysisbótum sem eru
150 þúsund á mánuði.
„Svo kom þetta eins og skrattinn úr sauðarleggn-
um,“ segir hún um nýja samninginn sem gerir ekki
ráð fyrir nokkrum breytingum á framfærslu nem-
enda.
- jse
Háskólanemendur mótmæla óbreyttum námslánum á næsta skólaári:
Nemar bíða eftir ráðherranum
KRÖFUSPJÖLD NEMENDA Á LOFTI Um 50 nemendur mót-
mæltu á Austurvelli í gær en í dag munu einhverjir bíða uns
menntamálaráðherra kemur af ríkisstjórnarfundi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
VIÐSKIPTI Áhlaup var gert á Kaup-
þing Singer og Friedlander og um
45 milljarðar króna teknir út 6.
og 7. október. Það skýrir meðal
annars beitingu Breta á hryðju-
verkalögunum. Þetta kemur fram
í nýrri bók Jóns F. Thoroddsen,
fyrrverandi verðbréfamiðlara hjá
Byr. Bókin heitir Íslenska efna-
hagsundrið og kemur út í dag.
Jón segir að ástæðan fyrir því
að hann skrifaði bókina hafi verið
hvatning frá fólki. „Ég skrifaði
litlar greinar í blöðin og fékk við-
brögð. Fólk sem ég þekkti ekki
neitt fór að hafa samband og
senda mér upplýsingar,“ segir
Jón. Hann segir bókina samantekt
á upplýsingum. Í bókinni segir
Jón að íslenska efnahagsundrið
hafi verið mesti gervimarkaður
heimsins. - vsp
Ný bók um efnahagsundrið:
Áhlaup sagt
skýra inngrip
SVEITARSTJÓRNIR „Í samkomulagi
fræðslusviðs og foreldrafélags
Barnaskóla Hjallastefnunnar er
gert ráð fyrir
fjárframlagi for-
eldra til þess að
brúa það kostn-
aðarbil sem þarf
til þess að skóla-
starf í fjórða
bekk Hjallastefn-
unnar við Hjalla-
braut geti farið
fram,“ segir í
bókun Jóns Páls
Hallgrímssonar, bæjarfulltrúa
Vinstri grænna í Hafnarfirði.
Hann segir þar kominn fram vísi
að skólagjöldum sem stríði gegn
grundvallarhugsun um jafnrétti
til náms sem VG geti ekki sam-
þykkt. Jón greiddi einn atkvæði á
móti samkomulagi fræðslusviðs
bæjarins og foreldrafélags Barna-
skóla Hjallastefnunnar. - gar
VG í bæjarráði Hafnarfjarðar:
Andvígir vísi að
skólagjöldum
JÓN PÁLL
HALLGRÍMSSON
SPURNING DAGSINS