Fréttablaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 20
„Sumarnámskeiðin hefjast í dag og standa yfir í viku,“ segir Guð- rún María Jónsdóttir, læknanemi og dansari. „Við í Háskóladans- inum erum að fara inn í okkar þriðja starfsár en þetta er í annað sinn sem við erum með svona stór sumarnámskeið en þau voru fyrst haldin í fyrra,“ segir hún en nokkrir íslenskir dansarar stofn- uðu samtökin fyrir háskólanema. Danskennararnir á sumarnám- skeiðinu koma frá Noregi og kenna átta gerðir af dönsum. „Gaman er að fá svona góða dansara til okkar en sem dæmi má nefna að eitt dansparið er núverandi heims- meistarar í Boogie Woogie sem er swingdans skyldur Lindy Hop. Þetta eru alls konar dansar sem kenndir eru,“ segir Guðrún María áhugasöm. Um 200 virkir dansarar eru félagar í Háskóladansinum en vonir standa til að félagið haldi áfram að vaxa og dafna. „Við erum með byrjendanámskeið á hverju hausti og framhaldsnám- skeið bæði á haustin og vorin þannig fólk getur haldið áfram að læra. En við byrjum á byrjun- inni þannig að ef þú þekkir mun- inn á hægri og vinstri þá geturðu verið með,“ segir Guðrún María og brosir. Danstímarnir hafa verið í íþróttahúsi Háskóla Íslands en einnig hefur verið dansað í List- dansskólanum við Engjateig og í Laugardalshöll. „Þetta eru orðn- ir svo margir tímar hjá okkur að íþróttahúsið dugar ekki lengur. Sumarnámskeiðið er opið öllum en Háskóladansinn er annars einkum ætlaður háskólanemum,“ útskýrir Guðrún María. Allt námskeiðið kostar 12.000 krónur en pardansar eru á 10.000 krónur. Einstaklingsdansar eru síðan á 7.000 krónur og stök dans- grein á 5.000 krónur. „Þetta er kjörið tækifæri til að byrja í Háskóladansinum og þar sem 17. júní er frídagur þá kennum við allan daginn. Á veturna erum við með fasta tíma sem og stutt helg- arnámskeið og danskvöld tvisvar í viku, bæði swing og salsa. Dans- kvöldin halda áfram í sumar en þau eru ókeypis,“ segir Guðrún María og bætir við að verðið á sumarnámskeiðunum sé mjög hóf- legt. „Önnin í Háskóladansinum, þar sem þú hefur aðgang að öllum dönsunum, kostar 5.000 krónur og við danskennararnir vinnum allt í sjálfboðavinnu. Öll fjárút- lát fara í að byggja upp samtök- in og greiða húsaleigu, flugmiða erlendra leiðbeinenda og annað slíkt,“ segir hún. Í lok maí var lokahóf og ball í Iðnó þar sem sýndir voru dans- ar en að sögn Guðrúnar Maríu er alltaf mikið fjör hjá Háskóladans- inum. „Engin sérstök sýning verð- ur að loknu sumarnámskeiði en við sýndum í Kringlunni í gær og sýnum aftur í dag klukkan 15.30 en þá verða heimsmeistararnir í Boogie Woogie með okkur. Ann- ars má finna allar nánari upplýs- ingar á www.haskoladansinn.is og þar er líka hægt að skrá sig,“ segir hún og hvetur fólk til að taka þátt. „Fólk getur bara komið á námskeiðin inn af götunni, ekki er nauðsynlegt að hafa verið í Háskóladansinum áður.“ hrefna@frettabladid.is Háskóladans fyrir alla Sumarnámskeið í dansi á vegum Háskóladansins verður haldið dagana 12. til 18. júní og er opið öllum sem áhuga hafa. Þar munu reyndir og færir danskennarar frá Noregi kenna fjölbreytt dansspor. Guðrún María er hér í sveiflu með dansfélaga sínum Hrafnkeli Pálssyni en þau ætla að skella sér á sumarnámskeið Háskóladans- ins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM LORD WILLIAM WALLACE , þingmaður lávarðadeildar breska þingsins, heldur fyrirlestur í stofu 101 í Odda undir yfirskriftinni „Eur- ope from the Atlantic to the Black Sea: How does Iceland fit in?“ Fyrir- lesturinn hefst klukkan 12 og stendur til klukkan 13.30. www.hi.is/ams Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja MEÐ TUDOR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.