Fréttablaðið - 12.06.2009, Blaðsíða 19
H
rin
gb
ro
t
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Nýr A la Carte
REYKT ÖND
með blönduðu salati, valhnetum og fíkjublöndu
Við mælum með Pinot Gris, Pully Fumé
eða Pouilly Fuisse með þessum rétti.
4ra rétta tilboðsseðill
Verð aðeins 6.890 kr.
með 4 glösum af sérvöldum vínum aðeins 10.490 kr.
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég bjó til ávaxtasalat með kjúklingi
sem er ótrúlega ferskt og fljótlegt
að gera,“ útskýrir Elín Helga Egils-
dóttir, tölvunarfræðingur og til-
raunakokkur. Hún segir að ávaxta-
salatið sé hollt og einfalt í gerð.
„Þetta er líka sniðugt salat vegna
þess að mangóið bragðast vel með
melónunni og kjúklingnum. Brak-
ið í hnetunum og selleríinu gerir
átvagl ið hamingjusamt og dress-
ingin er punkturinn yfir i-ið.“
Elínu Helgu finnst gaman að
prófa sig áfram í eldhúsinu. Hún
byrjaði að hreyfa sig af kappi rétt
fyrir jól og ákvað að taka matar-
æðið í gegn í leiðinni. „Eftir að ég
byrjaði að hreyfa mig kviknaði mat-
reiðsluáhuginn. Ég er alltaf að leita
að heimasíðum með uppskriftum að
réttum sem eru hollir, fjölbreyttir
og skemmtilegt að borða.“
„Ég umgengst fólk sem er alltaf í
eldhúsinu. Ég hafði samt aldrei haft
tilfinningu fyrir eldamennsku sjálf,
þar til ég fór að prófa og leika mér í
eldhúsinu og þá varð svo gaman að
elda,“ segir Elín Helga sem ákvað
eftir að hún steig inn í sitt eigið til-
raunaeldhús að stofna uppskrifta-
blogg á Netinu. „Með blogginu held
ég utan um uppskriftir sem mér
finnst góðar og reyni líka að koma
sniðugum hugmyndum til fólks.“
martaf@frettabladid.is
Tilraunir í eldhúsinu
Elínu Helgu Egilsdóttur finnst gaman að prófa sig áfram í eldhúsinu og finna upp nýjar uppskriftir. Hún
gefur lesendum Fréttablaðsins eina af sínum fljótlegu og einföldu tilraunauppskriftum.
2 skinnlausar kjúklinga-
bringur, u.þ.b. 230 g
1 bolli skorið mangó, vel
þroskað
1 bolli skorin hunangs-
melóna
1 stilkur smátt skorið
sellerí
Nokkrir kirsuberjatómat-
ar, skornir til helminga
Muldar kasjúhnetur
Kjúklingurinn, ávext-
irnir og grænmetið er
sett í skál og blandað
saman.
Dressing
1/3 bolli jógúrt. Létt
jógúrt eða létt AB-mjólk
1½ tsk. hunang
½ tsk. Dijon sinnep
Safi úr lime
1 tsk. þurrkuð Cilantro-
lauf
Hráefnunum er hrært
saman og hellt yfir
salatið.
Hægt er að setja
salatið á hrökkbrauð,
sem fyllingu í pítu, á
samloku eða borða
það eitt og sér.
ÁVAXTASALAT MEÐ KJÚKLINGI
Hollt og fljótlegt FYRIR 2
Elín Helga Egilsdóttir miðlar
sniðugum hugmyndum að upp-
skriftum á www.ellahelga.blog.is.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
SA
HANNYRÐASÝNING Katrínar Jóhannesdóttur opnar í Safnahúsi
Borgarfjarðar í dag klukkan 16. Sýningin er opin alla virka daga frá 13
til 18 og stendur til 31. júlí. Sýninguna hefur Katrín ákveðið að tileinka
ömmu sinni, Hólmfríði Jóhannesdóttur, sem lést 6. janúar síðastliðinn.
Auglýsingasími
– Mest lesið