Fréttablaðið - 23.06.2009, Síða 4
4 23. júní 2009 ÞRIÐJUDAGUR
STJÓRNSÝSLA „Ráðuneytið óskar eftir sam-
vinnu um málið við okkur og hana veitum við
glöð,“ segir Ellisif Tinna Víðisdóttir, forstjóri
Varnarmálastofnunar, um þá ákvörðun utan-
ríkisráðuneytisins að leggja stofnunina af í
núverandi mynd.
Utanríkisráðuneytið segir að skera eigi
niður af 1.200 milljóna króna árlegum
útgjöldum til Varnarmálastofnunar án þess að
það bitni á varnar- og öryggisskuldbindingum
þjóðarinnar. Ekki fengust svör frá ráðuneyt-
inu í gær um það hver áhrif breytinganna
kynnu að verða.
„Í mínum huga er bara tvennt sem kemur
til greina. Það er að hámarka faglega getu og
lágmarka kostnað,“ segir Ellisif Tinna. „Ef
það að leggja stofnunina niður í núverandi
mynd getur á einhvern hátt lækkað kostnað
um leið og við getum staðið vörð um faglega
getu og varnarskuldbindingar þá er það bara
af hinu góða.“
Rætt hefur verið um að sameina Varnar-
málastofnun öðrum stofnunum eða búta hana
niður. Forstjórinn bendir á að enn liggi ekkert
fyrir um hver útkoman verði. Fyrsti fundur
verði í dag um málið með fulltrúum utanríkis-
ráðuneytisins. „Ég sem forstjóri stofnunar-
innar legg áherslu á að fagmennirnir fái að
taka þátt í þessari vinnu. Ég veit að utanríkis-
ráðherrann er að leggja sig fram um að gera
þetta vel og faglega og við styðjum hann að
sjálfsögðu í því,“ segir Ellisif Tinna.
Að sögn forstjórans þarf að svara því hvort
ætlunin sé að vera í Nató eða ekki. „Ef svarið
pólitískt er það að við ætlum að vera í Nató
þá fylgja því ákveðnar leikreglur að vera í
þeim klúbbi. Menn geta ekki verið í klúbbi
ef þeir fylgja ekki leikreglunum. Það eru
engin sérkjör fyrir Ísland. Menn verða líka
að spyrja sig: Vilja menn setja saman innri og
ytri öryggismál og færa allt það vald á eina
hendi?“ segir hún.
Þá bendir Ellisif Tinna á að Íslendingar eigi
ekki sjálfir ratsjárkerfið sem Varnarmála-
stofnun rekur heldur sé kerfið fjármagnað af
mannvirkjasjóði Nató sem lagt hafi fimmtíu
til sextíu milljarða króna í kerfið. „Ef við
ætlum ekki að nota ratsjárstöðvarnar í
varnartilgangi þá gætu þær einfaldlega verið
teknar og settar upp annars staðar því það
er eftirspurn eftir þeim hjá Nató. Til dæmis
er Albanía, sem er nýgengin í bandalagið, að
bíða eftir svona ratsjám,“ segir hún.
Ellisif Tinna kveðst telja að ef Varnarmála-
stofnun sameinist annarri stofnun eigi for-
stjórar beggja stofnana að víkja. Þeir geti
svo sótt um nýja starfið ef þeir vilji. „Þetta
snýst ekki um stólinn minn eða mína per-
sónu eða hagsmuni einhvers annars forstjóra
eða einhvers ráðuneytis. Þetta snýst um fag-
lega hagsmuni og þetta snýst um hagsmuni
Íslands. Í mínum huga er allt annað úti.“
gar@frettabladid.is
Verð á mann í tvíbýli:
119.900kr.
Borgarferð
12.–19. ágúst 2009
Fararstjóri:
Óttar Guðmundsson læknir
Innifalið: Flug með sköttum og öðrum
greiðslum, hótelgisting í 7 nætur ásamt
morgunverði og íslensk fararstjórn.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Kraká
Fleiri dagsetningar og nánari upplýsingar
á expressferdir.is eða í síma 5 900 100
Ein best varðveitta
miðaldaborg Evrópu.
Borg sem iðar af lífi
og sérlega hagstætt
verðlag.
Öryggismálin á einn stað
Forstjóri Varnarmálastofnunar segir að breytingar á stofnuninni þurfi að gera á faglegum forsendum.
Svara þurfi þeirri spurningu hvort færa eigi valdið sem felist í innri og ytri öryggismálum á einn stað.
FORSTJÓRINN OG RÁÐHERRANN Varnarmálastofnun var sett á laggirnar í núverandi mynd í utanríkisráðherratíð
Ingibjargar Sólrúnar Gíslasdóttur, sem hér tekur í hönd Ellisifjar Tinnu Víðisdóttur, forstjóra stofnunarinnar.
MYND/VÍKURFRÉTTIR
Flugstoðir ohf. reka eftirlit og þjónustu fyrir
almenna flugumferð um íslenska flugstjórnarsvæð-
ið. Tekjur af því námu 2,5 milljörðum króna í fyrra.
„Varnarmálastofnun rekur í dag fjórar ratsjár á
Íslandi, rekstur þeirra hefur áhrif á það þjónustustig
sem Flugstoðir veita,“ segir Hjördís Guðmunds-
dóttir, upplýsingafulltrúi Flugstoða, spurð hvort
breytingar hjá Varnarmálastofnun hafi áhrif á
rekstur Flugstoða.
Rekstur Varnarmálastofnunar
hefur áhrif á starf Flugstoða
VEÐURSPÁ
Alicante
Bassel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
28°
22°
23°
20°
20°
23°
13°
21°
21°
23°
21°
31°
28°
33°
22°
23°
23°
19°
12
Á MORGUN
Norðlægar áttir,
3-8 m/s.
FIMMTUDAGUR
Hæg austlæg átt,
3-8 m/s.
9
6
12
11
14
14
11
10
10
5
4
3
4
4
3
2
6
3
10
4
6
13
10 11
10
11
12
13 13
10
11
HÆGVIÐRI Í dag
og næstu daga
verður hægur
vindur og frekar
vætusamt á land-
inu. Besta veðrið
verður á austan-
verðu landinu í
dag en á morgun
snýst dæmið við,
þá verða norðlægar
áttir og horfur á
mestri úrkomu
suðaustan og aust-
anlands.
LÖGREGLUMÁL Ökufanturinn sem ók á fólksbíl og dyr
slökkvistöðvarinnar í Skógarhlíð og reyndi að aka
niður lögreglumenn er grunaður um að hafa verið
undir áhrifum fíkniefna og áfengis við aksturinn.
Maðurinn hefur áður hlotið dóm fyrir fíkniefnaakstur.
Gerð verður krafa um gæsluvarðhald yfir mannin-
um. Hann er grunaður um brot á lögum er varða við
almannahættu, manndráp og líkamsmeiðingar og brot
gegn valdstjórninni.
Maðurinn ók í gegnum nokkrar hurðir á slökkvi-
stöðinni í Skógarhlíð og olli þar stórtjóni. Þaðan hélt
hann að lögreglustöðinni við Hverfisgötu en þar var
för hans stöðvuð. Hann hafði þá stórskemmt lög-
reglubíl sem hann ók á. Þá hafði hann gert tilraun
til að keyra inn í fjarskiptamiðstöð lögreglunnar við
Skógarhlíð. Á stíminu um bæinn ók hann á fólksbíl,
sem í voru tvær konur og ein stúlka.
Sjúkrabíll var notaður til þess að reyna að stöðva
för hans með því að aka utan í hlið bílsins sem hann
var á. Það tókst ekki.
Ekki er ljóst hvað manninum, sem er á fertugsaldri,
gekk til en hann olli miklu tjóni og skapaði stórhættu
með vítaverðum akstri. - jss
Gæsluvarðhalds krafist yfir ökuníðingi sem olli stórtjóni í fyrrakvöld:
Grunaður um akstur undir áhrifum
VIÐSKIPTI Kröfuhafar fjárfesting-
arbankans Askar Capital hafa
tekið hann yfir. Stærsti hlut-
hafinn eftir
yfirtökuna er
gamli Glitnir
með 53,3 pró-
senta hlut. Saga
Capital á átján
prósent og tíu
aðrir hluthafar
afganginn.
Sænska fjár-
málaþjónustu-
félagið Moderna Finance, sem
var að stórum hluta í eigu Karls
og Steingríms Wernerssona, átti
tæpt 81 prósent í bankanum og
aðrir hluthafar afganginn. Allir
eignahlutir gömlu hluthafanna
hafa verið færðir niður í núll, að
því er segir í tilkynningu.
Eigið fé Askar að loknum þess-
um breytingum er um átta millj-
arðar króna og eiginfjárhlutfallið
komið í um 19 prósent. - jab
Kröfuhafar taka Askar Capital:
Wernersbræður
missa hlut sinn
KARL WERNERSSON
FUGLALÍF Enginn ungi er sjáan-
legur í arnarhreiðrinu í Breiða-
firði sem vefmyndavél hefur sýnt
frá undanfarnar vikur. Útungun
hefði átt að eiga sér stað nú í
byrjun júní en enn hefur ekki
bólað á ungum. Að mati íbúa á
Gróustöðum í Reykhólahreppi
og Kristins Hauks Skarphéðins-
sonar, sérfræðings hjá Náttúru-
fræðistofnun Íslands, sem fylgst
hafa með örnunum, hefur varpið
líklega mistekist.
Fuglarnir sitja enn á hreiðrinu
og liggja því að öllum líkindum á
fúleggi. Hreiðrið hefur verið vin-
sælt meðal netverja sem eflaust
eru svekktir yfir ungaleysinu. -hds
Arnarhreiður við Breiðafjörð:
Enginn ungi
sjáanlegur
AFGANISTAN, AP Sex manns létu
lífið og þrjátíu slösuðust er
maður sprengdi sig í borginni
Khost í austurhluta Afganistan
í gær.
Maðurinn hafði kveikt í
sprengju á mótorhjóli sínu
framan við höfuðstöðvar raf-
magnsfyrirtækis í miðbæ borg-
arinnar og stuttu seinna sprengdi
hann sjálfan sig.
Önnur sjálfsmorðsárás var
gerð á sama tíma í Kandahar-hér-
aði í suðurhluta Afganistan. Þrír
hermenn létu lífið og sjö særðust
er bíl fullum af sprengiefni var
ekið út á miðja brú og sprengdur
þegar verið var að leita að
sprengiefnum við brúna. - hds
Sjálfsmorðsárásir í Afganistan:
Tvær árásir
granda níu
ÖKUFANTURINN Var stöðvaður við lögreglustöðina.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
GENGIÐ 22.06.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
218,4528
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,79 129,41
211,97 213,01
178,35 179,35
23,955 24,095
19,869 19,987
16,126 16,22
1,3412 1,349
198,27 199,45
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR