Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 14

Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 14
14 23. júní 2009 ÞRIÐJUDAGUR JÓN MAGNÚSSON (16. JANÚAR 1859 – 23. JÚNÍ 1926) LÉST Á ÞESSUM DEGI. „Framkvæmd hans og aðgerð- um í því máli er þannig háttað, að það orkar ekki tvímælis, að þó að hann hefði ekki neinu öðru til leiðar komið, þá ætti hann sæti meðal hinna allra fremstu og þörfustu stjórnmálamanna þessa lands.“ Jón Magnússon var forsætisráð- herra í fyrstu samsteypustjórninni árið 1917. Ofangreint sagði hann um Hannes Hafstein. Á morgun verður opnuð sérstæð listaverkasýning í Hafnarborg þar sem þjóðþekktir safnarar gefa innsýn í sín persónulegu listaverkasöfn. Þau Gunnar Dungal og Þórdís Alda Sigurðardóttir, Bragi Guðlaugsson, Sverrir Kristinsson og Ingunn Wernersdóttir eiga öll listaverka- söfn sem myndu hvert og eitt bera uppi heila sýningu en öll gefa þau sýningargestum kost á smá „bragðsýni“ af söfnunum. Sýningin ber yfirskriftina Safn(arar) og tilefn- ið er að 100 ár eru liðin frá fæðingardegi Sverris Magnús- sonar. Ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Sigurjónsdóttur, lagði Sverrir grunninn að Hafnarborg þegar þau gáfu Hafnarfjarðarkaupstað hús Hafnarborgar og veglegt lista- verkasafn sitt. Á sýningunni verða einnig sýnd verk úr því safni. „Það er ekki algengt að fólk veiti aðgang að safneignum sínum og það gladdi mig því mikið hve vel þau tóku í að sýna brot af listaverkaeign sinni,“ segir Ólöf og útskýrir hvernig söfnin eru ólík. „Sverrir Kristinsson á fjölbreytt safn og mörg verk eftir frumkvöðlana en mér finnst falleg náttúrusýn áberandi í hans safneign. Hann á líka nokkuð af verkum eftir frægu módernistana. Bragi á sömuleiðis gott frumkvöðlasafn, Júlíönu Sveinsdóttur og glæsilegt safn verka eftir Þorvald Skúlason og Karl Kvaran. Þórdís Alda og Gunnar Dungal eiga mjög fjölbreytt og stórt safn en það er áberandi hvað þau hafa safnað sterkum verk- um frá síðustu árum og má segja að þau eigi margar af perlum samtímans. Ingunn á svo yngsta safnið en hennar elstu verk eru frá því um 1970 eftir Hörð Ágústsson. Ann- ars eru verkin eftir samtímalistamenn og verk sem fólk myndi almennt ekki ætla að væru í einkaeigu, svo sem innsetningar, vídeólistaverk og slíkt.“ En eiga Íslendingar marga listaverkasafnara? „Já, ég held að við eigum fleiri en við vitum um. Fólk er ekki mikið að flíka þessari áráttu og maður veit ekki alltaf hverjir eru að safna. Það er gaman að geta minnst Sverr- is Magnússonar á þennan hátt og kynnast einstaklingum sem standa í sömu sporum og hann stóð nú í dag.“ Þess má geta að á morgun verða pallborðsumræður klukkutíma áður en sýningin verður opnuð, eða klukkan 16, þar sem safnararnir sem sýna í Hafnarborg ræða um söfnun sína. juliam@frettabladid.is SVERRIR MAGNÚSSON: HEFÐI ORÐIÐ 100 ÁRA Þekktir safnarar EINSTÖK SÝNING I HAFNARBORG Ingunn Wernersdóttir, Gunnar Dung- al og fleiri listaverkasafnarar sýna brot af stórfenglegum listaverka- söfnum sínum á sýningu sem verður opnuð í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON timamot@frettabladid.is Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir og afi, Halldór Kristinn Vilhelmsson söngvari og trésmiður, Furulundi 10 Garðabæ, lést aðfaranótt 17. júní. Útför hans verður frá Vídalínskirkju í Garðabæ fimmtudaginn 25. júní kl. 13.00. Áslaug Björg Ólafsdóttir Sigurður Halldórsson Stefanía Adolfsdóttir Hildigunnur Halldórsdóttir Marta Guðrún Halldórsdóttir Örn Magnússon og barnabörn. Hjartkær móðir mín, Lýdía Bergmann Þórhallsdóttir Ásvallagötu 42, Reykjavík, lést þann 18. júní á Landakotsspítala. Magnús Bergmann Ásgeirsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Björn Björnsson fyrrverandi póstmeistari í Reykjavík, til heimilis að Sléttuvegi 19, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi þriðjudaginn 16. júní. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju mið- vikudaginn 24. júní kl. 13.00. Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélagið. Jóna Finnbogadóttir Þórhalla Björnsdóttir Björn Björnsson Sigurður Björnsson Guðrún Káradóttir Jón Ingi Björnsson Aðalheiður Matthíasdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Þórey Guðmundsdóttir Hrísateig 17, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 20. júní. Útför auglýst síðar. Steinunn Skúladóttir Jón Gunnar Kristinsson Guðmundur Skúlason Guðrún Jónsdóttir Gunnar Davíð Gunnarsson Kristinn Svanur Jónsson Kolbrún Ósk Jónsdóttir Bjarki Már Sverrisson Þórey Jónsdóttir Svavar Ingþórsson og langömmubörn. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Reynir Bergmann Pálsson byggingameistari, Hábæ 36, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut sunnudaginn 21. júní. Jarðarför auglýst síðar. Valborg Sigurbergsdóttir Páll Bergmann Reynisson Guðrún Eiðsdóttir Grétar Reynisson Lilja Ruth Michelsen Sóley Reynisdóttir Sigurður Jóhannesson barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæra dóttir, móðir, amma og systir, Margrét Gísladóttir verður jarðsungin frá Garðakirkju miðvikudaginn 24. júní kl. 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Hjúkrunarþjónustuna Karitas. Jónína J. Ward Jón Hilmar Hálfdanarson Júlíus Atli Hálfdanarson Kara Rún Margrét Júlíusdóttir Tera Rún Jórunn Júlíusdóttir Jón Gíslason Júlíana Gísladóttir Ólafur Gíslason Þuríður Gísladóttir Móðir okkar, tengdamóðir og amma, Áslaug Þorsteinsdóttir Dvalarheimilinu Hlíð, áður Helgamagrastræti 12, Akureyri, lést á Sjúkrahúsi Akureyrar 16. júní. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 24. júní kl. 10.30. Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim sem vildu minn- ast hennar er bent á Minningarsjóð Kvenfélagsins Hlífar á Akureyri. Ingigerður Traustadóttir Hákon Guðmundsson Jófríður Traustadóttir Þórður Th. Gunnarsson Alda Traustadóttir Ármann Búason Árni Þór Traustason Fjóla Guðmundsdóttir og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ragna Klara Björnsdóttir Blikahólum 2, Reykjavík, andaðist á Vífilsstöðum þann 19. júní síðastliðinn. Jarðarförin auglýst síðar. Kristjana Sæunn Ólafsdóttir Kristján Jónsson Guðbjörn Karl Ólafsson Guðný Ólöf Þorvaldsdóttir Þorbjörg Ólafsdóttir Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Sigurþór Ísleiksson Hábergi 7, Reykjavík, verður jarðsunginn frá kirkju Óháða safnaðarins fimmtudaginn 25. júní kl. 15.00. Ásdís Sigurþórsdóttir Svanfríður Sigurþórsdóttir Grétar Indriðason Þóra Sigurþórsdóttir Bjarki Bjarnason Fanný Sigurþórsdóttir Ívar Bergmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, bróðir og fósturfaðir, Guðmundur Jónsson Mávahlíð 7, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli laugardaginn 20. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Jón Guðmundsson Guðrún Sigurbjörnsdóttir Viðar Guðmundsson Guðmundur H. Jónsson Sigurbjörg Jónsdóttir Þórir Skúlason Júlíus Skúlason Ástkær föðurbróðir okkar, Oddur Magnús Ólafsson lést á hjúkrunarheimilinu Eir mánudaginn 15. júní. Útför hans fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudag- inn 24. júní kl. 13.00. Atli Þór Þorvaldsson Júlíana P. Þorvaldssdóttir Guðbrandur Þór Þorvaldsson Siggerður Þorvaldsdóttir og fjölskyldur.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.