Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 23
ÞRIÐJUDAGUR 23. júní 2009
Þriðja úthlutun úr Pro-
logus, leikritunarsjóði við
Þjóðleikhúsið, fór fram í
síðustu viku. Alls bár-
ust 53 umsóknir frá 44
aðilum um styrk til að
þróa leikhandrit og
vinna að leiksmiðju-
verkefnum. Ákveð-
ið var að veita tvo
styrki til þróun-
ar leikhand-
rita og tvo
styrki vegna
leiksmiðju-
verkefna. Að auki hlaut eitt
leiksmiðjuverkefni fram-
haldsstyrk.
Styrkhafar að þessu
sinnu eru Jón Atli Jón-
asson fyrir verkefn-
ið Útlendingabók og
Hjálmar Hjálmars-
son fyrir verkefn-
ið Útlaga. Þrjú leiksmiðjuverkefni
fengu styrk:
Verði þér að góðu! sem Ég og
vinir mínir/Álfrún Helga Örn-
ólfsdóttir standa fyrir í framhaldi
af vinnu sinni við Húmanimal,
Shake me/Hristu mig sem Íslenska
hreyfiþróunarsamsteypan/Ásgerð-
ur Guðrún Gunnarsdóttir vinna að
og Af ástum manns og hrærivélar
sem Ilmur Stefánsdóttir, Kristján
Ingimarsson, Valur Freyr Einars-
son og Ólafía Hrönn Jónsdóttir eru
með í undirbúningi.
- pbb
Í kvöld hefst í þriðja sinn tónleika-
hald að sumri í Þingvallakirkju.
Þessi látlausa sveitakirkja hefur
um árhundruð þjónað sinni litlu
sókn í Bláskógaheiðinni en byggð
er þar strjál á fornum býlum en
þess meiri í sumarhúsum umhverf-
is vatnið og á tjaldstæðum.
Það er organisti kirkjunnar
og básúnuleikarinn Guðmundur
Vilhjálmsson sem opnar hátíð-
ina ásamt Silfursveinum sínum,
þeim Guðmundi Hafsteinssyni og
Jóhanni Stefánssyni trompetleik-
urum og Einari Jónssyni básúnu-
leikara.
Þeir munu leiða áheyrendur
um töfraheima tónlistarinn-
ar með málmblásturshljóð-
færum sínum og leika verk
frá endurreisnartímanum
til heiðríkju Mozarts. Í tóna-
veislunni munu heyrast verk
eftir Thomas Tallis, Gabrieli,
Händel, Bach og fleiri
snillinga. Tónleikarn-
ir hefjast kl. 20.00.
Tónleikarnir eru
ókeypis en gestum er gefinn kost-
ur á að greiða í styrktarsjóð fyrir
tónleikaröðina. Bent er á að Hótel
Valhöll er opin og þar má
kaupa sér kvöldverð vægu
verði, til dæmis hina rómuðu
bleikju úr vatninu, en áætl-
að er að tónleikarnir standi í
tæpa klukkustund.
Andakt á Þingvöllum
TÓNLIST Einar Jóhannesson
er listrænn stjórnandi
tónleikaraðar á
þriðjudagskvöldum í
Þingvallakirkju.
Nú hefst önnur sería heimildar-
mynda í Nýlistasafninu. Sýndar
verða fjórar myndir frá ýmsum
löndum sem allar hafa það sam-
eiginlegt að fjalla um ímynd og
persónusköpun. Við fylgjumst með
því hvað gerist er barn sér speg-
ilmynd sína í fyrsta sinn, fang-
elsisheimsókn ungrar dóttur til
móður sinnar og sögu manns sem
snýr aftur á heimaslóðir verandi
síðasta manneskjan úr þorpinu.
Myndirnar velta upp spurningum
um það hversu nálægt viðfangs-
efni sínu kvikmyndagerðarmaður-
inn geti gengið og hversu nálægt
raunveruleikanum og reynslu-
heimi persóna hann geti komist.
Í kvöld kl. 20 verða sýndar tvær
myndir.
Fyrsta myndin sem sýnd verð-
ur heitir Svyato, sem þýðir ham-
ingjusamur, tær, kátur. Svyato er
líka gælunafn yngsta sonar rúss-
neska heimildarmyndagerðar-
mannsins Viktors Kossakovsky.
Hér fylgjumst við með því hvað
gerist þegar Svyato horfir í fyrsta
skipti í spegill 2ja ára gamall og
skilur smám saman muninn á
sér og spegilmynd sinni. Myndin
hefur unnið margföld verðlaun á
virtustu heimildarmyndahátíðum
heims, og Kossakovsky er einn af
virtustu og mikilvægustu heim-
ildarkvikmyndagerðarmönnum
í heiminum í dag. Myndin er frá
2005 og er 33 mínútur.
Jafnframt verður sýnd mynd-
in Alone eftir Audrius Stonys þar
sem ung stúlka heimsækir móður
sína í fangelsi en myndin sýnir
ómældan einmanaleika mann-
eskjunnar. Stonys er þekktur
fyrir ljóðrænar heimildarmynd-
ir, hann er eitt af helstu nöfnunum
úr post-sovét skólanum og vinnur
með tökumanni Tarkovskys. Hann
hefur einnig unnið til fjölda verð-
launa fyrir verk sín. Myndin er 16
mínútur og er frá 2001.
Umsjón með röðinni hefur
myndlistar- og heimildarmynda-
gerðarkonan Yrsa Roca Fannberg.
Nýlistasafnið er á Laugavegi 26
(gengið inn Grettisgötumegin) og
er frítt inn. Frekari upplýsingar
um myndirnar sem verða sýndar
í júní er að finna á vefsíðu safns-
ins, www.nylo.is - pbb
Heimildamyndir í Nýló
KVIKMYNDIR Kyrrmynd úr sögu um
barn.
Enn veitt úr Prologus
LEIKLIST
Ólafía Hrönn vinnur
að verki um ást
og hrærivélar með
fleirum.
NÝ SALATLÍNA FRÁ
SÓMA SEM BYGGÐ ER
Á LANGRI REYNSLU
AF SAMLOKUGERÐ
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
Öll helstu merkin í tjöldum: TNF, High Peak, Mountain Equipment og Fjallräven.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
46
57
3
06
/0
9
Tjaldaúrvalið er í Tjaldalandi
SUÐURLAN
DSBRAUT
SUÐURLAN
DSBRAUT
GNOÐAR
VOGUR
GLÆSIBÆ
R
T
B
R
1
T
B
R
2 ÁL
F
H
E
IM
A
R
Tjaldaland
High Peak Ancona 4
Rúmgott 4 manna fjölskyldutjald.
Vatnsvörn 3000 mm. Yfirlímdir saumar.
Dúkur í fortjaldi. 2 inngangar. Hæð 190 cm.
Verð 44.990 kr.
Einnig fáanlegt 5 manna, verð 52.990 kr.
High Peak Como 4
Tvískipt innratjald með fortjaldi á milli.
Stöðugt í vindi. Vatnsvörn 2000 mm.
Yfirlímdir saumar. Hæð 190 cm.
Verð 29.990 kr.
Einnig fáanlegt 5 manna, verð 39.990 kr.
High Peak Nevada
Sígilt 3 manna kúlutjald með fortjaldi.
Vatnsvörn 2000 mm. Yfirlímdir saumar.
Hæð 120 cm.
Verð 16.990 kr.
Einnig gott úrval af göngutjöldum,
verð frá 15.990 kr.