Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 15

Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 15
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 ARCTIC OPEN er alþjóðlegt golfmót sem hefur fest sig í sessi og verður haldið dagana 25.-27. júní á Akureyri. Mótið hefst á fimmtudag með skráningu keppenda og opnunarhátíð þar sem boðið er upp á hlaðborð með norðlenskum veitingum. Nánar á www.arcticopen.is. Vaxtarræktarmaðurinn Magnús Bess Júlíusson er að skríða í fer- tugt en stendur engu að síður á hátindi ferilsins. Síðan í haust hefur hann landað þremur titl- um auk þess sem hann var valinn íþróttamaður ársins innan IFBB alþjóðasambandsins. „Í haust náði ég langþráðu mark- miði mínu og varð Norðurlanda- meistari í -100 kg flokki í vaxtar- rækt og um páskana kom tólfti Íslandsmeistaratitillinn í opnum flokki í hús. Í næstu viku liggur svo leiðin á Evrópumót öldunga sem fer fram í Rúmeníu og síðan stefni ég á heimsmeistaramót í haust,“ segir Magnús. Hann segir menn gjarnan toppa í vaxtarrækt á milli fertugs og fimmtugs og að öldungaflokkar séu oft ekki síðri en yngri flokk- ar. „Það tekur bara þennan tíma að ná upp svona skrokki. Ég byrj- aði að lyfta fimmtán ára og er í mínu besta formi nú svo þetta hefur ekki tekið nema 25 ár,“ segir hann og hlær. En hvernig er að halda sér við? „Það er lítið mál. Þetta er bara eins og að mæta í vinnuna. Að öllu jöfnu æfi ég í rúman klukkutíma á dag en fyrir mót fjölgar æfing- unum í þrjár. Þá legg ég mikla rækt við mataræðið en það skipt- ir gríðarlega miklu máli. Ég miða við að innbyrða 2.500 kaloríur sex daga vikunnar en leyfi mér einn sprengidag í viku og fer þá upp í nærri 5.000. Ég fer þó ekki í neitt ruslfæði en fæ mér til dæmis allt- af ís. Hina dagana er ég mikill laxmaður enda er hann fullur af hollri fitu og próteinum en svo eru þetta brún hrísgrjón, grænmeti, ávextir og annað í þeim dúr.“ Magnús segist reyna að halda sér í góðu formi allan ársins hring enda líður honum best þannig. „Þá þarf ég heldur ekki að breyta miklu ef mót eru á næsta leiti.“ Hægt er að fylgjast með gengi Magnúsar á slóðinni www. vodvafikn.net. vera@frettabladid.is Tók ekki nema 25 ár að komast í toppform Magnús Bess Júlíusson varð Norðurlandameistari í vaxtarrækt í haust og landaði tólfta Íslandsmeistara- titlinum fyrir skemmstu. Nú er hann á leið á Evrópumót öldunga og hefur aldrei verið í betra formi. Magnús reynir að halda sér í góðu formi allan ársins hring en þannig líður honum best. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON – Lifið heil Lægra verð í Lyfju www.lyfja.is Gildir út júní 2009 15% afsláttur VOLTAREN 11,6 mg/g Gel, 50 g. 15% afsláttur NICOTINELL munnsogstöflur. ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 4 64 75 0 6 /0 9 Auglýsingasími – Mest lesið

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.