Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 23.06.2009, Blaðsíða 17
ÞRIÐJUDAGUR 23. júní 2009 3 „Það er brjálaður vöxtur hjá okkur. Til marks um það má nefna að fjöldi heimsókna á stöð- ina hefur þrefaldast það sem af er ári miðað við sama tíma í fyrra,“ segir Þröstur Jón Sigurðs- son, eigandi Sporthússins í Kópa- vogi, þar sem aðsókn hefur stór- aukist síðustu mánuði. Þröstur tekur sem dæmi að tiltekin gerð líkamsræktar korta hafi selst í fjórföldu upplagi undan farið sam- anborið við síðasta ár. Aukin aðsókn einskorðast þó ekki við Sporthúsið. Þannig segja talsmenn annarra stöðva heim- sóknum hafa fjölgað til muna frá áramótum. Þeirra á meðal er Íris Huld Guðmundsdóttir, rekstrar stjóri og yfirleiðbeinandi hjá Heilsu akademíunni. „Ég tel ástæðuna vera aukna meðvitund um mikilvægi líkamlegrar og and- legrar heilsu, sem er afar dýrmæt á tímum sem þessum. Utanlands- ferðir og annar munaður hefur dregist saman og það er augljóst að fólk er farið að eyða meiru í sjálft sig.“ Hóptímar hvers kyns njóta mikilla vinsælda og einkaþjálf- arar eru sums staðar fullbókaðir út árið. Eigendur líkamsræktar- stöðva hafa brugðist við aukinni aðsókn með ýmsu móti. Hóptím- um hefur víða verið fjölgað og fleiri einkaþjálfarar ráðnir til starfa. „Okkar aðalþjálfarar hafa meira en nóg að gera. Við réðum tvo nýja einkaþjálfara til okkar í síðustu viku,“ segir Linda Björk Hilmarsdóttir, framkvæmdastjóri Hress heilsuræktar, um þessa þróun. Í Sporthúsinu fóru menn þá leið að bæta við aðstöðuna til að anna eftirspurn. „Við erum að bæta við nýrri hæð hjá okkur um þessar mundir. Þarna verða tveir nýir, stórir eróbikk- salir, þar sem alls kyns spennandi tímar verða í boði,“ segir Þröstur. Stækkunin nemur 400 fermetrum. „Í raun má segja að verið sé að stækka líkamsræktar svæðið í húsinu í heild um 1.000 fermetra, þar sem inniæfingasvæði fyrir golf verður lagt niður. Það stóð því miður ekki undir sér. Í staðinn koma þrír nýir salir, svo saman- lagt verða þeir fimm talsins.“ Þá segjast forsvarsmenn stöðv- anna hafa orðið varir við breytta kauphegðun hjá viðskiptavinum. „Mikil aukning hefur orðið í aðhaldsnámskeiðum fyrir hópa, enda mjög hagkvæm leið til að fá mikið aðhald,“ segir Ágústa John- son, hjá Hreyfingu. Þröstur segir orðið mun algengara að fleiri en einn komi saman í einkaþjálfun. „Fólk greiðir nú líka frekar mán- aðarlega af kortunum í stað þess að staðgreiða þau. Svo er það miklu duglegra að nýta kortin sín en áður.“ roald@frettabladid.is Meiri aðsókn og bætt nýting Aðsókn á líkamsræktarstöðvar hefur aukist til muna síðustu mánuði. Dæmi eru um að heimsóknir á stöðvar hafi allt að þrefaldast miðað við sama tíma í fyrra og víða er fullbókað hjá einkaþjálfurum. Þröstur Jón Sigurðsson hefur bætt við aðstöðu Sporthússins til að anna eftirspurn. Heimsóknum hefur fjölgað í Heilsuakademíuna. Forsvarsmenn hennar telja fólk vera meðvitaðra um mikilvægi andlegrar og líkamlegrar heilsu en áður. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.