Fréttablaðið - 23.06.2009, Side 6
6 23. júní 2009 ÞRIÐJUDAGUR
EFNAHAGSMÁL Tvö af þremur
álfyrirtækjum hérlendis kaupa
krónur erlendis. Slík viðskipti geta
haldið aftur af styrkingu krón-
unnar þar sem erlendur gjaldeyr-
ir flæðir ekki til landsins. Athuga
ber að fyrirtækin brjóta ekki lög
með viðskiptunum þar sem þau
hafa undanþágu frá gjaldeyris-
reglum Seðlabankans.
Viðskiptin gætu átt sér stað með
þeim hætti að álfyrirtækin kaupi
gjaldeyri á markaði í Evrópu þar
sem gengi krónunnar er hagstæð-
ara. Fyrirtækin fá með þessum
hætti fleiri krónur fyrir hvern
dollara í útflutningstekjur saman-
borið við ef fyrirtækin hefðu skipt
gjaldeyrinum hérlendis. Fyrirtæk-
in flytja svo krónur til Íslands sem
þau geta notað til að greiða inn-
lendan kostnað. Viðskiptin gera
það að verkum að erlendur gjald-
eyrir kemur ekki til landsins og
hefur þar með ekki áhrif á opin-
bert gengi Seðlabanka Íslands.
„Við höfum varið litlum hluta
tekna okkar í viðskipti með krónur
erlendis, eins og við höfum feng-
ið staðfest hjá Seðlabanka Íslands
að félaginu er heimilt,“ segir Ólaf-
ur Teitur Guðnason framkvæmda-
stjóri samskiptasviðs Alcan í
Straumsvík. Ólafur segir jafn-
framt að félagið hafi notað þær
krónur sem keyptar hafa verið
erlendis til að greiða minnihluta
af innlendum kostnaði félagsins.
Ólafur segist ekki vita til þess að
þessi viðskipti hafi átt sér stað
á árum áður en hann sé ekki í
aðstöðu til að fullyrða um það.
„Við hjá Alcoa Fjarðaráli höfum
varið lágu hlutfalli okkar tekna
til kaupa á íslenskum krónum
erlendis,“ segir Erna Indriðadótt-
ir framkvæmdastjóri hjá Fjarðar-
áli. Hún bætir við að Alcoa hafi
ekki breytt sínum viðskiptaháttum
eftir bankahrunið og að viðskipt-
in séu í samræmi við fjárfestinga-
samning fyrirtækisins og reglur
Seðlabankans.
„Mörg fyrirtækjanna hafa und-
anþágur frá höftunum í samræmi
við 14. gr. reglnanna. Hins vegar
eru undanþágur ekki ætlaðar til
að fyrirtækin hagnist vegna regln-
anna,“ segir Svein Harald Öygard
Seðlabankastjóri. Í svari Seðla-
bankastjóra við fyrirspurn Frétta-
blaðsins kemur fram að bankinn
hafi boðað stærstu útflytjendur
landsins á fund þar sem mark-
miðið sé að fara yfir starfshætti
og ræða fyrirliggjandi gögn um
gjaldeyrisflæði. „Þetta ferli er
ekki vegna gruns um brot hjá fyr-
irtækjunum,“ segir Svein.
Ágúst Hafberg framkvæmda-
stjóri upplýsingasviðs Norðuráls
segir að öll viðskipti fyrirtækisins
með íslenskar krónur hafi alla tíð
farið fram á Íslandi og eingöngu í
gegnum íslenska viðskiptabanka í
samræmi við lög og reglur.
Athuga ber að álfyrirtækin
hafa marga samninga í erlend-
um gjaldeyri og því ljóst að fyrir-
tækin koma með umtalsvert magn
gjaldeyris til landsins þrátt fyrir
að vera þátttakendur á markaði
erlendis með krónur.
bta@frettabladid.is
LÖGREGLUMÁL „Þetta er alveg
skelfilegt. Ef ég gæti bara fengið
innvolsið úr annarri hvorri tölv-
unni til baka yrði ég mjög ham-
ingjusamur og myndi borga gull
og græna skóga,“ segir Þorleifur
Friðriksson sagnfræðingur. Brot-
ist var inn á heimili Þorleifs og
fjölskyldu í Kópavoginum á föstu-
daginn og stolið þaðan meðal ann-
ars tveimur fartölvum, flakkara og
minniskubbi sem innihéldu loka-
handrit að öðru bindi sögu Dags-
brúnar, sem Þorleifur hefur nýlok-
ið við að skrifa, en fyrsta bindið
kom út fyrir tveimur árum. „Það
er hrikalegt að missa ævistarfið
sitt á þennan hátt. Þetta er grund-
vallarrit í íslenskri verkalýðs-
sögu,“ segir Þorleifur.
Auk þess að hafa á brott með
sér tölvurnar og fylgihluti tóku
þjófarnir skartgripi í eigu eigin-
konu Þorleifs, doktorshringinn
hans og gullbakka frá átjándu
öld. „Gullbakkinn er gamall ætt-
argripur sem átti að fara á Þjóð-
minjasafnið. En þetta eru einungis
hlutir og því léttvægir. Í tölvunum
voru hins vegar mörg ár af vinnu,
og til viðbótar frumsamin tónlist
eftir son minn, sem er tónlistar-
maður.“
Þorleifur segist hafa lært af
tíðum frásögnum af innbrotum
í fjölmiðlum. „Ég hafði vistað
öll skrifin á fjórum stöðum, þar
á meðal á Macintosh-tölvu sem
hrundi rétt fyrir helgi. Það er
greinilega erfitt að verja sig fyrir
svona uppákomum í þessu þjóðfé-
lagi,“ segir Þorleifur.
Þeir sem gætu gefið vísbending-
ar um hvar handritið að bók Þor-
leifs er að finna eru beðnir um að
hafa samband við lögreglu. - kg
Margra ára vinna sagnfræðings unnin fyrir gýg eftir innbrot:
Hrikalegt að missa ævistarfið
Njóttu góðrar máltíðar
með vinum og vanda-
mönnum með SS grill-
kjöti.
Ljúffengur krydd-
lögurinn dregur fram
það besta í kjötinu og
vel grillað kjöt laðar
fram brosið á fólkinu
þínu.
Grillkjötið frá SS –
fyrir sérstakar
stundir.
Grill,
gleði og
samvera
www.ss.is
INNBROT Brotist var inn á heimili Þor-
leifs Friðrikssonar í Kópavogi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Þekkir þú einhvern sem hefur
verið brotið á af hálfu kirkj-
unnar?
Já 14,0%
Nei 86,0%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ertu sátt/ur við 12,5 króna
bensínverðshækkun?
Segðu þína skoðun á visir.is
Sex fíkniefnamál á Bíladögum
Sex fíkniefnamál komu upp á Akur-
eyri á Bíladögum um helgina. Lagt var
hald á fjörutíu grömm af amfetamíni,
fimm grömm af kókaíni og fimmtán
grömm af kannabisefnum. Ellefu öku-
menn voru teknir vegna aksturs undir
áhrifum fíkniefna síðustu vikuna.
LÖGREGLUFRÉTTIR
LÖGREGLUMÁL Karlmaður á þrítugs-
aldri liggur stórslasaður á Landspít-
alanum eftir líkamsárás eða slags-
mál í Smáíbúðahverfinu. Maðurinn
gekkst undir aðgerð í gær. Hann var
ekki talinn í lífshættu, en er meðal
annars mikið laskaður í andliti.
Árásin í Smáíbúðahverfinu átti
sér stað um kvöldmatarleytið á
sunnudag. Fimm menn voru hand-
teknir. Þeir eru allir búsettir í Smá-
íbúðahverfinu. Fjórum var sleppt
eftir yfirheyrslur í gær, en gerð
krafa um gæsluvarðhald yfir þeim
fimmta.
Sá sem slasaðist nú er á þrítugs-
aldri. Hann var einn þeirra sem
sátu í gæsluvarðhaldi eftir að ungur
maður fannst mikið meiddur eftir
meinta líkamsárás á Grettisgötu í
júní. Sá sem fyrir henni varð slas-
aðist mjög mikið og hefur enn ekki
reynst unnt að yfirheyra hann. Einn
maður situr enn í gæsluvarðhaldi
vegna þeirrar líkamsárásar. Hann
leigir herbergið á Grettisgötunni
þar sem slasaði maðurinn fannst
uppi í rúmi. Í herberginu fannst
meðal annars blóðugt júdó- eða
karatebelti í vaskinum. Í ruslatunnu
fundust blóðug rúmföt og blóðugir
inniskór undir laki.
Óvíst er að bein tengsl séu milli
þessara tveggja árásarmála, sem
Litháar áttu hlut að í báðum tilvik-
um.
GRETTISGATA 43 Þar átti fyrri líkams-
árásin sér stað.
Karlmaður, sem ráðist var á, var áður í gæsluvarðhaldi vegna líkamsárásar:
Stórslasaður eftir líkamsárás
DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið
ákærður fyrir líkamsárás og
frelsissviptingu
Hann veittist að öðrum manni
við Lóuhóla í Reykjavík, þreif
í peysu hans og dró hann með
sér að bifreið. Þar rukkaði hann
manninn um meinta skuld og
barði hann í höfuð og líkama.
Fórnarlambið rak höfuðið utan í
bifreiðina og féll á jörðina. Þessu
næst neyddi árásarmaðurinn
hinn inn í aftursæti bifreiðar-
innar og ók með hann til Hafnar-
fjarðar, en lögregla stöðvaði akst-
urinn við Bæjarhraun þar í bæ.
Fórnarlambið hlaut talsverða
áverka. - jss
Líkamsárás og frelsissvipting:
Ákærður fyrir
handrukkun
Alcan og Fjarðaál
flytja inn krónur
Tvö álfyrirtæki kaupa krónur erlendis til að greiða innlendan kostnað. Seðla-
bankastjóri segir undanþágur ekki ætlaðar til að fyrirtækin hagnist á þeim.
Fyrirtækin brjóta ekki lög en þetta gæti haldið aftur af styrkingu krónunnar.
Enduro-hjóli stolið
KTM 400 Enduro-mótorhjóli var stolið
aftan af bíl við Meðalholt í Reykjavík
aðfaranótt sunnudags. Hjólið er með
skráningarnúmerið RO-467. Fundar-
launum er heitið fyrir hjólið en allar
upplýsingar eru vel þegnar af Óðni í
síma 820-3444.
LÖGREGLUFRÉTTIR
ÁLVER Í STRAUMSVÍK OG VIÐ REYÐARFJÖRÐ Fyrirtækin tvö kaupa krónur erlendis.
Slík viðskipti draga úr flæði gjaldeyris til landsins.
Alcan hyggst breyta viðskiptaháttum sínum og hætta viðskiptum með
krónur á erlendum mörkuðum. Eftir umfjöllun Fréttablaðsins hafði Alcan
samband við Seðlabanka Íslands þar sem óskað var eftir því að gjaldeyris-
viðskipti fyrirtækisins færu alfarið fram hérlendis.
Fréttablaðinu barst eftirfarandi tilkynning frá Ólafi Teiti Guðnasyni fram-
kvæmdastjóra upplýsingasviðs Alcan á Íslandi seint í gær: „Við höfum fengið
margstaðfest að okkar viðskipti séu lögleg og heimil. Það kom okkur því á
óvart að lesa um það í fjölmiðlum að til stæði hjá Seðlabankanum að taka
þau til athugunar. Við settum okkur í samband við bankann af þessu tilefni
og kom þá fram ósk af hálfu bankans um að við keyptum krónur eingöngu
á Íslandi. Við svöruðum því strax til að við myndum verða við þeirri ósk.“ -bþa
BREYTA GJALDEYRISVIÐSKIPTUM
KJÖRKASSINN