Fréttablaðið - 23.06.2009, Side 24
20 23. júní 2009 ÞRIÐJUDAGUR
„Enginn getur tekið það frá kvikmyndaskólanum
að hann hefur nú brautskráð hæfileikaríkasta leik-
stjórann síðan Peter Schønau Fog útskrifaðist árið
1999,“ skrifar Claus Christensen, ritstjóri danska
kvikmyndatímaritsins Ekko, í nýjasta tölublaði
tímaritsins. Christensen á þar við Rúnar Rúnarsson
leikstjóra, sem útskrifaðist úr Danska kvikmynda-
skólanum um þarsíðustu helgi. „Það er ófyrirgefan-
legt ef danski kvikmyndabransinn þekkir ekki sinn
vitjunartíma og fær þennan sérstaka náttúrutalent
í sína þjónustu, áður en útlöndin ná að lokka hann í
burtu,“ segir Christensen enn fremur í grein sinni.
„Kommbakk Kvikmyndaskólans“ er yfirskriftin
á grein Christensens. Í henni fer ritstjórinn fögr-
um orðum um Önnu, útskriftarmynd Rúnars. „Ég
minnist þess ekki að hafa fyrr séð eins raunsæja og
nístandi, en þó upplífgandi túlkun á óhamingjusömu
skilnaðarbarni. Myndin er svo full af tilfinningum að
maður tekur ekki eftir því að stór hluti sýningartím-
ans, sem er 35 mínútur, er án samtala,“ segir Chris-
tensen og bætir við að nýútskrifaður árgangur Kvik-
myndaskólans sé sá besti síðan 2001.
Anna var frumsýnd á Cannes-kvikmyndahátíðinni
í vor. - kg
Rúnar sá besti í áratug
GLIMRANDI UMSÖGN Útskriftarmynd Rúnars Rúnarssonar fær
góða dóma hjá ritstjóra danska kvikmyndatímaritsins Ekko.
Hrannar Hafsteinsson er
einn þeirra Íslendinga sem
eru á leiðinni á Hróars-
kelduhátíðina í Danmörku.
Ekki þó til að njóta góðrar
tónlistar heldur til að sjá
um að lýsingin á stærsta
sviði hátíðarinnar, Orange-
sviðinu, verði eins og best
verður á kosið.
„Þetta er launað áhugamál. Sumir
fara í ferðalög en ég set upp ljós og
græjur,“ segir Hrannar Hafsteins-
son sem er titlaður sem tæknistjóri
yfir ljósunum á Orange-sviðinu á
Hróarskelduhátíðinni. Undir hans
stjórn eru fimm til tíu manns sem
saman sjá um að sviðsljósið bein-
ist að flytjendum á borð við Oasis,
Coldplay, Kanye West og Nick
Cave and the Bad Seeds, sem allir
spila á Orange-sviðinu í ár. Pláss
er fyrir um sextíu þúsund áhorf-
endur fyrir framan sviðið og því
er afar mikilvægt að ljósasýningin
sé eins tilþrifamikil og hægt er til
að fanga athygli gestanna.
Hrannar hefur starfað á Hró-
arskeldu síðan 2003, fyrir utan tvö
síðastliðin ár þegar hann ákvað að
eigin sögn að gifta sig og eignast
dóttur. Hann fékk starfið þegar
hann bjó í Kaupmannahöfn og
starfaði sem tæknistjóri hjá fyr-
irtækinu sem sér um tvö stærstu
sviðin á hátíðinni.
Ljósafólkið á Orange-svið-
inu verður þeirrar gæfu aðnjót-
andi að fá að borða með stjörnun-
um sem koma þar fram og hefur
Hrannar ekki farið varhluta af
því. „Við erum nokkrir af örfá-
um sem fáum að fara á bak við.
Það er sami kokkurinn sem eldar
fyrir okkur,“ segir hann. Eftir-
minnilegasti sessunauturinn til
þessa er gítargoðið Carlos Sant-
ana. „Hann er mjög skemmtileg-
ur gæi og það var gaman að ræða
við hann. Hann var að spyrja um
Ísland, hvernig það væri og sagði
að hann þyrfti einhvern tímann að
koma og spila þar.“ Rokkararnir í
Metallica sátu einnig með honum
til borðs eitt sinn, rétt eins og svo
margar aðrar stjörnur. Ein vildi þó
hvorki hafa afskipti af tæknimönn-
unum né öðru fólki baksviðs og
hélt sig algjörlega til hlés. Það var
Axl Rose, söngvari Guns N´Roses,
sem er einmitt þekktur fyrir sér-
visku sína.
„Það eru sér girðingar fyrir
innsta svæði en hann mætti með
eigin girðingu, þannig að hann
var með girðingu innan girðing-
arsvæðisins. Það var dálítið sér-
stakt og hafði aldrei verið gert
áður,“ segir Hrannar, sem fer út
til Danmerkur í vikunni og hefur
undirbúninginn sem tekur nokkra
daga. Hátíðin sjálf stendur síðan
yfir frá 2.-5. júlí.
freyr@frettabladid.is
SNÆDDI BAKSVIÐS MEÐ
SANTANA OG METALLICA
Grínistinn Rökkvi Vésteinsson
hélt nýverið þrjár uppistands-
sýningar í Kanada, þar af eina
í heimahúsi í Montreal. Þar er
haldið uppistandskvöld einu
sinni í viku sem nefnist The Too
Much Show þar sem grínistar
stíga á svið í miðri stofu heima
hjá listamanni nokkrum. „Þetta
er með því mest spes sem ég hef
gert í uppistandi,“ segir Rökkvi.
„Það er nett ruglaður málari
sem á þetta sem hengir upp mál-
verkin sín úti um allt. Þarna má
reykja af því að þetta er heima
hjá honum, þannig að þetta var
haldið í hitasvækju og reyk. Svo
drapst hljóðneminn líka þannig
að ég var hljóðnemalaus í ógeðs-
legri hitasvækju og reyk að æpa
yfir áhorfendur. Ég er mjög feg-
inn að hafa verið í söngtímum því
þeir björguðu því að ég skyldi
ekki rústa röddinni í mér,“ segir
hann.
Rökkvi kom einnig fram á
Comedyworks-klúbbnum í Montr-
eal og YukYuk´s í Ottawa, en Yuk-
Yuk´s er stór keðja af grínklúbb-
um í Kanada. Vann hann einmitt
uppistandskeppni í þeim klúbbi
fyrir þremur árum.
Næst á dagskrá hjá Rökkva
er að skipuleggja uppistands-
kvöld hér á landi fyrir belgíska
atvinnugrínistann Lieven Scheire
sem kemur hingað í júlí. Hann
kom síðast hingað fyrir þremur
árum og skemmti gestum með
gríni sínu og glensi. - fb
Með uppistand í kanadískri stofu
RÖKKVI VÉSTEINSSON Rökkvi er nýkom-
inn heim frá Kanada þar sem hann hélt
þrjár uppistandssýningar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
DRAUMADJOBB Hrannar
Hafsteisson stjórnar ljósa-
sýningunni á stærsta sviði
Hróarskelduhátíðarinnar.
NÝTT Í BÍÓ!
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
7
7
7
L
12
L
14
YEAR ONE kl. 5.50 - 8 - 10.10
GHOSTS OF A GIRLFRIEND PAST kl. 5.50 - 8
TERMINATOR: SALVATION kl. 10
7
7
12
YEAR ONE kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15
YEAR ONE LÚXUS kl. 3.30 - 5.45 - 8 - 10.15
GHOSTS OF A GIRLFRIEND PAST kl. 5.45 - 8 - 10.15
GULLBRÁ kl. 3.45
TERMINATOR: SALVATION kl. 8 - 10.30
NIGHT AT THE MUSEUM 2 kl. 3.30 - 5.40
ANGELS & DEMONS kl. 5 – 8 – 10.45
5%
FÆRÐ 5% ENDURGREITT EF ÞÚ BORGAR
BÍÓMIÐANN MEÐ KREDITKORTI
5%
7
7
L
14
YEAR ONE kl. 6 - 8.30 - 10.40
GHOSTS OF A GIRLFRIEND PAST kl. 5.45 - 8 - 10.15
GULLBRÁ kl. 6
ANGELS & DEMONS kl. 6 - 8 - 10
SÍMI 530 1919
7
12
L
14
14
YEAR ONE kl. 5.45 - 8 - 10.15
TERMINATOR kl. 5.30 - 8 - 10.30
NIGHT AT THE MUSEUM 2 kl. 5.40 - 8
X-MEN WOLVERINE kl. 10.20
ANGELS & DEMONS kl. 5.30 - 8.30
SÍMI 551 9000
upplifðu
fyndnasta
ferðalag
allra tíma !!
Gildir ekki í lúxussal eða Borgarbíó
- bara lúxus
Sími: 553 2075
YEAR ONE kl. 4, 6, 8 og 10 7
GHOSTS OF GIRLFRIENDS PAST kl. 6, 8 og 10.15 7
GULLBRÁ kl. 4 - Ísl. tal L
TERMINATOR SALVATION kl. 8 og 10.15 14
NIGHT AT THE MUSEUM 2 kl. 4 og 6 L
ÞRIÐJUDAGUR
ER TILBOÐSDAGUR
500 KR
Á A L L A R
M Y N D I R
500 kr.
500 kr.
500 kr.
500 kr.
500 kr.
ÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í SAMBÍÓUNUM Í DAG KR. 500
GILDIR EKKI Í VIP, Á ÍSLENSKAR MYNDIR OG Á MYNDIR Í 3DAUKASÝNINGAR Í ÁLFABAKKA!
HANGOVER kl. 3:40 - 5:50 - 8D - 8:30 - 10:20D - 11 12
THE HANGOVER kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 VIP
MANAGEMENT kl. 5:50 - 8 - 10:20 10
ADVENTURELAND kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 12
CORALINE 3D m/ísl.tali kl. 3:40 (3D) - 5:50(3D) L
THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 10:20 16
STAR TREK XI kl. 8 10
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN m/ísl.tali kl. 4 - 6 L
HANNAH MONTANA kl. 3:40 L
HANGOVER kl. 6 - 6:50 - 8D - 9D - 10:20 12
MANAGEMENT kl. 6 - 8 - 10:20 10
HANGOVER kl. 8 - 10 12
ADVENTURELAND kl. 8 12
LET THE RIGHT ONE IN kl. 10 16
THE HANGOVER kl. 8 - 10:20 12
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 8 L
ANGELS AND DEMONS kl. 10 14
YEAR ONE kl. 8 - 10:10 7
THE HANGOVER kl. 8 - 10:10 12
http://facebook.sambioin.is
vertu aðdáandi á FACEBOOK og þú
gætir unnið vegleg verðlaun
32.000 GESTIR - LANG VINSÆLASTA MYNDIN