Fréttablaðið - 23.06.2009, Síða 32
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Páls Baldvins
Baldvinssonar
Umhverfis grösin er sprottið þétt fagurgrænt teppi af arfa.
Kræklurnar standa uppúr teppinu
en undir er einhver tegund sem ég
ber ekki kennsl á. Þar í bland sé
ég fornan fjanda minn í garðrækt,
skriðsóleyjaranga. Í jaðrinum eru
njólablöð. Ofar öllu eru mín glæstu
kartöflugrös. Stæðileg og föngu-
leg liggja þau í brúskum ofan á ill-
gresinu, sem er svo þétt í smágerðri
rótinni að stinga má fingrum undir
teppið og svipta því burtu með einu
handtaki svo lófastórt gat verður
eftir í grænni voðinni.
HVER ber ábyrgð á þessu? Garður-
inn var nýplægður uppúr eldri görð-
um og í hann fór vænn skammtur
af hrossataði. Hér bar allt að sama
brunni: langvinn órækt hafði fyllt
mómoldina illgresisfræjum og ekki
bætti taðið úr: einhver hrossarækt-
andinn hefur beitt stóði sínu sem
þessu taði skeit á arfagresjur. Nú
þarf ég að þrífa eftir hann. Það er
létt verk að fletta illgresisbreið-
unni af beðinu, því fyrsta af fjórum.
Neðsta beðið í slakkanum er sýnu
verst: þar heyir skriðpuntur hetju-
lega baráttu fyrir lífi sínu og þegar
efri beðin öll eru hrein bærist blað-
fagur punturinn í kvöldblænum.
Þar örlar ekki á grasi. Gleymdist
að pota útsæði niður í það? Leit er
skipulögð í huganum eftir fáa daga.
Líkast til verður að stinga þann
part upp, hreinsa beðið á stórum
parti eins og veikan stjórnmála-
flokk. Gott að maður lumar á rauðu
útsæði á tryggum stað sem kemur
nú til góða, fagurlega spírað í svört-
um poka við rétt hitastig.
ALLT um kring eru félagar mínir,
allt ókunnir menn, karlar og konur
að huga að ræktinni. Bjartar akríl-
breiður, dimmgrá plöst og sérsnið-
in fyrir bogagrindur skreyta lund-
inn, götur teknar að verða torfærar
fyrir grjóttínslunni sem skilar
upp úr moldinni smáhrúgum milli
stærri fanga úr steinaríkinu.
ÞAÐ lítur vel út með uppskeruna,
grösin komin vel af stað. Keikir
kálblöðungar eru fyrirferðarmikl-
ir í beði nágrannans. Handan við
óræktina þusar umferðin með ein-
staka rokum manna með vélarafl
við tærnar. Lengst niðurfrá hjal-
ar áin. Okkur vantar rigningu, það
er stöku dreif af smádropum sem
standa ekki undir nafninu skúr. Þá
er kallað. Maður er kominn upp í
birkitré og lítur nú yfir veldi sum-
arsins í borgarlandinu. Hér er minn
heimur og sá er stór. Hann er yfir
tímanum snáðinn og greinin vagg-
ar ástúðlega undir honum. Og svo
dettur á dúnalogn í kvöldblíðunni.
Gatan tæmist andartak og þá heyr-
ist fugl.
Fjandskapur við
skriðsóley
Í dag er þriðjudagurinn 23. júní.
174. dagur ársins.
2.56 13.30 0.03
1.31 13.15 0.57
KONUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
9
-1
1
3
4
ÞÖKKUM ÞÁTTTÖKUNA Í
Frábær þátttaka var í Sjóvá Kvennahlaupi ÍSÍ á laugardaginn.
Þátttakendur voru yfir 16 þúsund en hlaupið var á yfir
90 stöðum á landinu og 18 stöðum erlendis.
Við þökkum öllum fyrir skemmtilegan dag.
Sjáumst að ári!
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%