Fréttablaðið - 05.08.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
DRAGGKEPPNI ÍSLANDS
Glimmerbomba
og baðföt
Níu keppendur berjast um titlana.
FÓLK 20
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
KNATTSPYRNUSKÓLI BOBBYS CHARLTON
Skráning í Knattspyrnuskóla Bobbys Charlton 2010 á Eng-
landi hefst 1. september 2009. Nánari upplýsingar veittar í
síma 588 9900 eða með því að senda póst á fyrirspurn@itferdir.is.
„Þetta er búið að vera frábær-lega skemmtilegt,“ segir Guð-rún Helga þegar hún er spurð út í göngur sumarsins. „Ég hef allt-af notið þess að fara í fjallgöng-ur og ekki spillir að fá ferðafélaga eins og þá sem ég hef haft síðustu vikurnar, forvitna, áhugasama og skemmtilega. Fólk sem vill kast í l
lengi ég er og fer eftir því hversu hratt ferðafélagarnir vilja ganga. Ef farið er of rösklega í byrjun reyni ég að gíra aðeins niður en
ég rek ekki á eftir enda eru þetta skemmtigöngur en ekki áætlunar-ferðir. Samt stansa ég á vissuáningarstöð
ið á að stofna heimasíðuna www.mountainclimbing.is, taka meira-próf og kaupa litla rútu til að geta sótt ferðafélagana þangað sem þeir óska, innan höfuðborgar-svæðisins og skil
Í félagsskap ferðamanna upp um fjöll og hlíðar Göngur og útivist hefur lengi verið eftirlætisiðja Guðrúnar Helgu Sigurðardóttur fjölmiðlakonu. Hún
ákvað að gera það áhugamál að atvinnu, stofnaði fyrirtæki í vor með eiginmanninum og býður nú leið-
sögn í fjallgöngum í nágrenni höfuðborgarinnar, einkum á Helgafell í Hafnarfirði og hina vinsælu Esju.
Á leið á fjallið helga, það er að segja Helgafellið í Hafnarfirði.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
MIÐVIKUDAGUR
5. ágúst 2009 — 183. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
GUÐRÚN HELGA SIGURÐARDÓTTIR
Göngur og útivist lengi
verið eftirlætisiðja
• ferðir
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ný brjóstmynd af fyrsta
formanninum
Knattspyrnufélagið
Þróttur á 60 ára
afmæli í dag.
TÍMAMÓT 16
GUÐMUNDUR INGI ÞORVALDSSON
Heim með
SHUNT-sýningu
Leikur í sýningu Mischas Twitchin í Batteríinu.
FÓLK 26
Þjóðlegt
kaffihús við
höfnina
Víkin - safnkaffi-
hús býður upp
á séríslenskt
góðgæti.
FÓLK 26
Sigurður um lánaskýrslu
Sigurður Einarsson segir að
lánaskýrsla Kaupþings sýni að
heildarútlán bankans hafi verið
undir lögboðnu hámarki. Stór lán
hafi ekki verið veitt viðskiptavin-
um rétt fyrir hrun.
UMRÆÐAN 14
RIGNING Í FYRSTU Í dag verða
austan 3-10 en hvassara síðdegis
við suður og suðausturströndina.
Rigning eða skúrir í fyrstu en úr-
komulítið um miðjan dag. Rigning
suðaustan til undir kvöld. Hlýtt.
VEÐUR 4
20
13 17
17
18
Gervigrasið
hjálpar
Stjarnan í Garða-
bæ er alls ekki eina liðið
á Norðurlöndunum sem
hagnast á því að leika á
gervigrasi.
ÍÞRÓTTIR 22
VIÐSKIPTI Þótt upplýsingarnar sem fram
koma í lánabók Kaupþings séu mikilvægar
og eigi erindi í umræðuna er leki hennar
alvarlegt mál, segir Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæðisflokksins. Hann gagn-
rýnir ummæli ráðamanna um málið síðustu
daga.
„Það getur aldrei verið ásættanlegt að
menn brjóti lög og mér finnst óskiljanlegt
með öllu að menn séu að bera í bætifláka
fyrir það þegar slíkt gerist,“ segir Bjarni.
„Við viljum ekki að hérna verði hlutirn-
ir bara eins og í villta vestrinu þar sem er í
lagi að fara á svig við lög og reglur,“ segir
hann.
Rætt var um málið á ríkisstjórnarfundi í
gærmorgun og þar boðaði Gylfi Magnússon
viðskiptaráðherra breytingar á lögum um
bankaleynd.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra
kallaði lánveitingar Kaupþings siðlausar og
lögbannskröfu bankans á hendur fréttastofu
RÚV fráleita.
- sh , - bþa / sjá síðu 6
Bjarni Benediktsson segir alvarlegt mál að lánabók Kaupþings hafi verið birt:
Við viljum ekki villta vestrið
MENNING „Með þessu er
UNESCO að segja að handritin
séu minjar sem ber að hlúa sér-
staklega vel að og séu verð-
mæti á heimsvísu en ekki bara
á afmörkuðu svæði,“ segir Guð-
rún Nordal, forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar.
Stjórn menningarmálastofnun-
ar Sameinuðu þjóðanna, UNES-
CO, bætti handritasafni Árna
Magnússonar, auk 34 annarra
menningarminja, í sérstaka
varðveisluskrá sína á föstudag.
Handritasafnið var tilnefnt í
varðveisluskrána af hálfu ríkis-
stjórnar Íslands og Danmerkur í
fyrra, þar sem hluti safnsins er
varðveittur í Danmörku.
„Þessi viðurkenning skapar
okkur sóknarfæri til að kynna
safnið með mun markvissari
hætti erlendis en setur okkur
líka þær skyldur á herðar að
búa eins vel að handritunum og
við getum, eins og við höfum
reynt að gera, og miðla þeim og
varðveita eins og best verður á
kosið.“
- bs/kg sjá síðu 4
Handrit Árna Magnússonar:
Með merkustu
minjum heims
MERKAR MINJAR Stjórn menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, bætti handritasafni Árna Magnússonar,
í sérstaka varðveisluskrá sína á föstudag. Guðrún Nordal, forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar, segir þetta gleðileg
tíðindi sem staðfesti mikilvægi safnsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EFNAHAGSMÁL Mesta hættan við
Icesave-samningana liggur í því
hversu mjög skuldabyrði lands-
manna mun þyngjast ef fólk flýr
land í stórum stíl. Þetta er meðal
þess sem fram kemur í áliti Hag-
fræðistofnunar Háskóla Íslands
um Icesave-skuldbindingarnar,
sem kynnt var fjárlaganefnd í
gær.
Trúlegt er að margir Íslending-
ar flytji úr landi á næstu árum,
þótt erfitt sé að leggja mat á fjöld-
ann fyrirfram, segir í álitinu, en
ekki er líklegt að Icesave-skuld-
bindingarnar sem slíkar hafi mikil
áhrif þar á.
Í álitinu kemur fram nokkur
gagnrýni bæði á álit Seðlabanka
Íslands á sama máli og greinargerð
fjármálaráðuneytisins. Umfjöll-
un um ýmsa óvissuþætti vanti, að
miklu leyti sé horft fram hjá þeim
neikvæðu áhrifum sem Icesave-
skuldbindingarnar geta haft á hag-
vöxt og ekki sé lagt kerfisbundið
mat á áhættuþætti.
„Þetta hnekkir ekki í neinum
atriðum heildarmyndinni sem
hefur legið fyrir, heldur þvert á
móti staðfestir hana,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon fjármálaráð-
herra.
Umfjöllun um hugsanlegan
fólksflótta sé til dæmis ekki ný af
nálinni, og vitanlega myndi hann
þyngja róðurinn fyrir þá sem eftir
sætu. „Það er eitthvað sem allir
hafa vitað og oft hefur verið rætt
um. Það tengist ekki bara Icesave
heldur almennt þessu áfalli;“ segir
Steingrímur.
Fram kemur í álitinu að greiðslu-
byrði af Icesave-láninu myndi velta
á því hversu greitt aðgengi íslensk
stjórnvöld hefðu að erlendu lánsfé
á endurgreiðslutímanum. Greiðslu-
byrðin yrði þung ef aðgengi að
lánsfé yrði erfitt.
„Einhverjir myndu nú draga þá
ályktun í beinu framhaldi að þar
væru komin sterk rök fyrir því að
þetta Icesave-mál þyrfti að vera
með einhverjum hætti úr úr heim-
inum,“ segir Steingrímur. Það sé
ein af grunnforsendum þess að
Ísland öðlist traust og trúverðug-
leika á fjármálamörkuðum að leysa
slík deilumál.
Þótt viðbúið sé að álitið seinki
afgreiðslu fjárlaganefndar á frum-
varpinu um ríkisábyrgð vegna
Icesave, segist Guðbjartur Hann-
esson, formaður nefndarinnar, enn
vonast til þess að frumvarpið verði
afgreitt úr nefnd í vikunni. Enn sé
allt óvíst hvort tekst að ná þverpóli-
tískri sátt um málið. - sh
Fólksflótti er hættulegastur
Skuldabyrði landsmanna af Icesave-láninu mun þyngjast mikið ef margir flýja land. Það er mesta hættan
sem fylgir samningunum, að mati Hagfræðistofnunar. Álitið breytir ekki myndinni, segir fjármálaráðherra.
BJARNI
BENEDIKTSSON