Fréttablaðið - 05.08.2009, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.08.2009, Blaðsíða 6
6 5. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR EFNAHAGSMÁL Jóhanna Sigurðardóttir for- sætisráðherra segir að það hafi komið sér gjörsamlega í opna skjöldu hve miklar fjár- hæðir voru lánaðar til fárra aðila og hugs- anlega án nægilegra veða. Það sé hins vegar ánægjulegt að Kaupþing skuli hafa fallið frá fráleitu lögbanni á fréttaflutning Ríkissjón- varpsins um lánabók Kaupþings sem lekið var á vefsíðuna Wikileaks.org í síðustu viku. Hún segir að ekki sé hægt að nota banka- leynd til að fela markaðsmisnotkun í samfé- lagi þar sem krafist er gegnsæis. Þetta kom fram á blaðamannafundi í Stjórnarráðinu í gær. Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra segir nauðsynlegt að endurskipuleggja umgjörð bankastarfsemi hérlendis. Þrengja verði skorður lánveitenda til að taka óbeina geng- isáhættu með því að lána til innlendra aðila í erlendri mynt sem hvorki höfðu tekjur né eignir í erlendri mynt. Aðspurður segir Gylfi óeðlilegt að háar fjárhæðir séu lánað- ar einungis með veðum í hlutabréfum eigin banka. Hugsanlega sé það ólöglegt en það sé annarra að skera úr um. Hann segir að í raun hafi verið búið til gervi-eigið fé með þessum lánveitingum. Það eigið fé sem skap- að var með þessum hætti sé ekki að þjóna þeim tilgangi sem það á að þjóna. „Það þarf að koma í veg fyrir að hægt verði að endur- taka þennan leik.“ Nýtt frumvarp um bankaleynd verður lagt fyrir Alþingi í haust. Gylfi segir að það séu allar líkur á að farið verði eftir danskri fyrirmynd. Samkvæmt henni verður Fjár- málaeftirlitinu veittur aðgangur að upp- lýsingum sem alla jafna falla undir banka- leynd. Fjármálaeftirlitið getur í kjölfarið miðlað þessum upplýsingum til annarra opinberra eftirlitsaðila, svo sem skattayfir- valda og samkeppniseftirlitsins. Gylfi segir að lögin eigi að tryggja skilvirkan aðgang að upplýsingum auk þess sem erfiðara verði að fela slóð afbrota. Hann segir æski- legt að fjallað sé um það sem fór úrskeiðis og bankaleynd eigi ekki að verða til þess að ekki verði fjallað um þau málefni. Hins vegar eigi að ríkja bankaleynd um málefni almennra viðskiptavina bankanna sem ekk- ert hafa brotið af sér. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráð- herra segir að glannalega hafi verið farið í lánveitingum bankanna. Meiri innbyggð- ir veikleikar hafi verið í fjármálakerfinu en menn vildu viðurkenna á sínum tíma. Hann nefnir að erlendir aðilar hafi varað við krosseignatengslum en nú hafi komið í ljós að tengslin hafi verið umfangsmeiri en nokkurn óraði fyrir. bta@frettabladid.is Það þarf að koma í veg fyrir að hægt verði að endurtaka þennan leik. GYLFI MAGNÚSSON VIÐSKIPTARÁÐHERRA Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Bankaleynd á ekki að vera- skjól markaðsmisnotkunar Upplýsingar úr lánabók Kaupþings komu forsætisráðherra á óvart. Nýtt frumvarp um bankaleynd í smíðum þar sem Fjármálaeftirlitinu er gefið aukið vald. Líklega farið að danskri fyrirmynd segir viðskiptaráðherra. RÍKISSTJÓRNARFUNDUR Í STJÓRNARRÁÐINU Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segir ólíklegt að skuldabréf ríkissjóðs verði færð niður í svokallaðan ruslflokk. Vonast sé til að aðgerðir stjórnvalda undanfarið, til að eyða óvissu, dragi enn fremur úr líkum á því. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Formaður Sjálfstæðisflokksins gagnrýnir ummæli ráðamanna um Kaupþingsmál: Óskiljanlegt að verja lögbrot EFNAHAGSMÁL Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, segir ljóst að fara þurfi yfir þær reglur sem gilda um aðgang að upplýsingum sem tengjast bankahruninu, í ljósi frétta síðustu daga af lánamálum Kaupþings. Í þeim efnum hafi stjórnvöld brugðist algjörlega. Hann gagnrýnir einnig viðbrögð ráðamanna við fréttum helgarinnar. „Mér finnst hafa fallið ótrú- lega óábyrg orð í tengslum við það að þessi lánabók hefur verið gerð opinber,“ segir Bjarni, sem telur menn hafa farið fram úr sér. „Það má ekki missa sjónar á því að það er alvarlegt að lánabók Kaup- þings hafi verið birt. Það getur aldrei verið ásættan- legt að menn brjóti lög og mér finnst óskiljanlegt með öllu að menn séu að bera í bætifláka fyrir það þegar slíkt gerist.“ Bjarni segist skilja vel að þarna séu á ferðinni mikilvægar upplýsingar sem geti átt erindi inn í umræðuna. „En við viljum ekki að hérna verði hlut- irnir bara eins og í villta vestrinu þar sem er í lagi að fara á svig við lög og reglur.“ Þá bendir Bjarni á að þegar sé að störfum rann- sóknarnefnd sem hefur rannsóknarheimildir langt umfram það sem annars þekkist. Um lögbannið sem Kaupþing fór fram á, og sætt hefur mikilli gagnrýni, segist Bjarni skilja að mönnum þyki það umhugsunarvert, enda hafi það ef til vill ekki þjónað miklum tilgangi eftir að gögnin voru komin fram. - sh BJARNI BENEDIKTSSON Spyr hvernig á því standi að enginn velti fyrir sér hver beri ábyrgð á því að lánabók Kaupþings var lekið. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON HEILBRIGÐISMÁL Smitsjúkdóma- deild Landspítalans í Fossvogi var sett í sóttkví á laugardag eftir að vart varð við MÓSA- bakteríu í tveimur sjúklingum og einum starfsmanni deildarinnar. Deildinni var lokað í gær og hafin dauðhreinsun á henni. Gert er ráð fyrir að sú vinna taki nokkra daga. MÓSA er baktería sem venju- leg sýklalyf duga ekki á. Nái hún bólfestu á sjúkrahúsum getur reynst erfitt og kostnaðarsamt að uppræta hana. Slíkt vill spít- alinn hindra með öllum ráðum og því hefur deildin verið sett í sótt- kví. - kg Landspítalinn í Fossvogi: Smitsjúkdóma- deild í sóttkví HEILBRIGÐISMÁL Íslenska ríkið mun greiða rúmar 380 milljónir króna fyrir 300 þúsund skammta af bóluefni gegn svínaflensunni H1N1, þar sem hver skammtur kostar 7 evrur. Bóluefnið mun duga til að bólusetja um helming þjóðarinnar. Ögmundur Jónasson heilbrigðis- ráðherra kynnti aðgerðir gegn flensunni og greindi frá stöðu mála á ríkisstjórnarfundi í gær- morgun. „Í maí ákváðum við að halda því opnu að festa kaup á 150.000 til 300.000 skömmtum. Nú hefur hins vegar verið ákveðið að fara í efri mörkin, sem kostar sitt. Það er mat heilbrigðisyfirvalda að sýna ítrustu varúð í þessum efnum. Þessi ákvörðun er því í samræmi við ráðleggingar sótt- varnalæknis og okkar færustu sérfræðinga,“ segir Ögmundur Jónasson. Bóluefnið hefur ekki enn borist til landsins. Ögmundur segir það væntanlegt á næstunni. Þrjú ný tilfelli af flensunni greindust um helgina en gera má ráð fyrir að þeim muni fjölga í dag og næstu daga. Fólkið sem greind- ist um helgina var á aldrinum 16 til 25 ára. Um er að ræða tvo Íslendinga og einn útlending. Alls hafa því 54 tilfelli af flensunni verið staðfest hér á landi. - þeb/kg Heilbrigðisráðherra kynnti stöðu svínaflensunnar á ríkisstjórnarfundi í gær: Bóluefni kostar 380 milljónir HEILBRIGÐISRÁÐHERRA Ögmundur Jónasson kynnti ríkisstjórninni stöðu mála á fundi í gær. Kostnaður ríkisins við kaup á bóluefni er 380 milljónir króna. ÁSTRALÍA, AP Fjórir ungir menn voru handteknir í Ástralíu í gær, grunaðir um að hafa skipulagt hryðjuverk. Lögreglan réðst til inngöngu í 19 hús í Melbourne í fyrrinótt. Lögreglan telur að þeir hafi ætlað að gera árás á herstöð í Ástralíu og berjast þar til dauð- ans. Rannsókn lögreglu á málinu hefur staðið yfir í sjö mánuði. Mennirnir eru á aldrinum 22 til 26 ára, allir ástralskir ríkisborg- arar en af sómölskum og líbönsk- um uppruna. Fimmti maðurinn, sem er í haldi lögreglu af öðrum sökum, hefur einnig verið í yfir- heyrslum vegna þessa máls. - gb Fjórir handteknir í Ástralíu: Höfðu skipu- lagt hryðjuverk Hefur þú kynnt þér efni á síð- unni wikileaks.org? Já 37,1% Nei 62,9% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlar þú að taka þátt í hátíðar- höldum vegna Gay Pride? Segðu skoðun þína á Vísir.is STJÓRNMÁL Benedikt Stefánsson hefur verið ráðinn aðstoðar- maður Gylfa Magnússonar við- skiptaráðherra og hóf hann störf í gær. Benedikt er fæddur árið 1964. Hann er stúdent frá Menntaskólan- um við Hamra- hlíð, B.Sc. í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.A. í hagfræði frá University of California, Los Angeles (UCLA). Benedikt hefur meðal annars starfað fyrir Morgunblaðið, bandaríska ráðgjafarfyrirtækið CASA/ HNC, Íslenska erfðagreiningu og hagfræðideild Landsbank- ans. Benedikt er kvæntur Björgu Kjartansdóttur viðskiptafræð- ingi og eiga þau þrjá syni. - kg Viðskiptaráðuneytið: Nýr aðstoðar- maður Gylfa BENEDIKT STEFÁNSSON KJÖRKASSINN

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.