Fréttablaðið - 05.08.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 05.08.2009, Blaðsíða 12
 5. ágúst 2009 MIÐVIKUDAGUR Umsjón: nánar á visir.is KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf] Fjöldi viðskipta: 8 Velta: 21,9 milljónir OMX ÍSLAND 6 743,54 -0,36% MESTA HÆKKUN ENGIN MESTA LÆKKUN MAREL -0,98% BAKKAVÖR -0,68% ÖSSUR -0,44% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Alfesca 4,50 +0,00% ... Atlantic Airways 156,00 +0,00% ... Atlantic Petroleum 430,00 +0,00% ... Bakkavör 1,45 -0,68% ... Eik Banki 86,00 +0,00% ... Føroya Banki 120,50 +0,00% ... Icelandair Group 4,40 +0,00% ... Marel Food Systems 50,50 -0,98% ... Össur 112,50 -0,44% Pepsídós fylgir frítt m eð 33 cl MIÐVIKUDÖGUM Ódýrt í matinn á Tilboðið gildir alla daga Tilboðið gildir alla daga Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Fréttablaðið stendur upp úr Fréttablaðið er sem fyrr mest lesna dagblað landsins með glæsilegt forskot á samkeppnis- aðila sinn eins og síðasta könnun Capacent Gallup ótvírætt sýnir. Við erum auðvitað rífandi stolt af þessum góða árangri og bendum auglýsendum á að notfæra sér forskot okkar þegar þeir velja auglýsingamiðil. Allt sem þú þarft... 34% 74% 300P Holding ehf. Actavis Group hf. Alfesca hf. Atlantis Group hf. Avion Aircraft Trading hf. Bakkavör Group hf. Barry International á Íslandi ehf. Bombardier Corporate Financial Services Íslandi sf. CN Liquidity Management ehf. Dunedin á Íslandi sf. Flugfélagið Atlanta ehf. Frontier Energy Íslandi sf. GoPro ehf. Hf. Eimskipafélag Íslands Icecraft ehf. Icelandic Group hf. Ingersoll-rand Finance Íslandi slf Invent Farma ehf. Leikhúsmógúlinn ehf. Magna Íslandi sf. Magna Investment á Íslandi ehf. Marel Food Systems hf. MID Íslandi sf. Mogul Holding ehf. MSREF S Íslandi, slf MSREF T Íslandi, slf MSREF TE Íslandi, slf Nexfor fjármögnun ehf. Noranda Íslandi ehf. Norrænar Myndir ehf. Northern Lights Leasing ehf. Plus Farma ehf. Primera Travel Group hf. PrimeraAir ehf. Promens hf. Produmar ehf. Quebecor World á Íslandi ehf. SSF I Íslandi slf SSF II Íslandi slf Thomson Reuters á Íslandi sf. Úthafsskip ehf. Viking leiga ehr. Woodbridge á Íslandi sf. Össur hf. FYRIRTÆKI SEM ERU UNDANÞEGIN FRÁ REGLUM UM GJALDEYRISMÁL Össur er eina fyrirtækið á lista Seðla- banka Íslands sem hefur undanþágu frá reglum um gjaldeyrismál og hefur stundað viðskipti með krónur erlendis. Fréttablaðið sendi eftirfar- andi fyrirspurn til allra fyrirtækja á lista Seðlabankans: Hafið þið verið þátttakendur á markaði með krónur á erlendum mörkuðum? Alls svöruðu 36 fyrirtæki fyrir- spurn Fréttablaðsins, 35 svöruðu neitandi en eitt svaraði játandi, Össur hf.. Ekki fengust svör frá átta fyrirtækjum. Þau eru: 300P Holding, Avion Aircraft Trading, Flugfélagið Atlanta, Northern Ligths Leasing, Produmar ehf., Úthafsskip ehf., Víking Leiga og Woodbridge á Íslandi. Umtalsverður ávinningur getur verið af því fyrir fyrirtæki að stunda viðskipti með krón- ur á mörkuðum erlendis. Sam- kvæmt Reuters miðlunarkerfinu þá hefur gengi krónunnar í Evr- ópu verið að meðaltali um 230 krónur fyrir hverja evru í vetur. Gengið innanlands hefur hins vegar verið um 170 krónur fyrir hverja evru. Því geta útflutnings- fyrirtæki fengið um 60 krónum meira að meðaltali fyrir hverja evru af gjaldeyri séu viðskiptin stunduð erlendis. Með þessu móti geta fyrirtæki lækkað innlendan kostnað þar sem þau kaupa krón- ur á lægra verði. Athuga ber að þessi viðskipti eru ekki lögbrot en þau geta haldið aftur af styrk- ingu krónunnar. Í svari frá Össuri segir að ráð- stöfun á gjaldeyri fyrir krónur á erlendum mörkuðum sé umtalsvert lægri en þær fjárhæðir sem fyrir- tækið átti á erlendum bankareikn- ingum þegar höftin tóku gildi. Jafnframt segir að félagið hafi greitt um 19 prósent af innlendum kostnaði síðustu sex mánuði með þessu móti en félagið hefur skipt um 4,9 milljónum dala á erlendum mörkuðum frá því í október á síð- asta ári. Lauslega áætlað mé telja að ávinningur félagsins sé um 200 milljónir króna. Fyrirtækið stund- aði ekki viðskipti á þessum mark- aði fyrir hrun. bta@frettabladid.is Össur í gjaldeyrisviðskiptum Össur hefur greitt um 19 prósent af innlendum kostnaði með krónum sem keyptar eru erlendis. Ávinningur af viðskiptunum er um 200 milljónir króna. Skilanefnd Kaupþings mat það sem svo að lög- bann á fréttaflutning Ríkissjónvarpsins fengist ekki staðfest þar sem aðrir fjölmiðlar höfðu fjallað ítarlega um málið. Því var ákveðið að falla frá lög- bannskröfu á fréttaflutninginn í gær. Þetta kemur fram í upplýsingum frá skilanefnd Kaupþings. Skilanefndin sendi jafnframt frá sér tilkynningu í gær þar sem kom fram að telji ráðamenn þjóð- arinnar rétt að breyta lögum um þagnarskyldu sé brýnt að löggjafarvaldið taki málið föstum tökum þannig að fjármálafyrirtækjum sé unnt að fylgja þeim reglum sem þeim sé ætlað að starfa eftir. Samkvæmt heimildum frá skilanefndinni hafa forsvarmenn danska bankans FIH sem er á for- svari skilanefndarinnar fengið þó nokkrar fyrir- spurnir vegna lekans og margir lýst áhyggjum sýnum yfir því að þessar upplýsingarnar hafi verið gerðar opinberar. - bþa Töldu að lögbannið yrði ekki staðfest

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.